Morgunblaðið - 08.05.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.05.2020, Blaðsíða 14
Þykir gaman að finna hluti á ferðalögum Hvað keyptir þú þér síðast inn á heimilið? „Ég á töluvert af kaffiborðsbókum sem mér finnst skemmtilegar og síðast komst ég yfir mjög flotta þannig bók með myndum af Audrey Hepburn teknum af Bob Willoughby á árunum 1953-1966. Þetta er mjög vegleg bók sem var gefin út í aðeins 1.000 eintökum og mitt ein- tak er númer 250 og áritað af sjálfum Willoughby. Mig langaði mikið í hana en hún var náttúrulega uppseld fyrir löngu. Síðan fann ég hana notaða og þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um með þau kaupin.“ Uppáhaldslitir Helgu eru jarðtónar og brass. „Svo finnst mér gaman að poppa upp með smá lit, þótt ekki sé nema í til dæmis púðum, bókum eða blómum. Að mínu mati er alltaf hægt að breyta um stemmningu með smáhlutunum.“ Helga á sér ekki einn uppáhaldshönnuð en er hrifin af mörgum hlutum sem gerðir eru í dag. „Skemmtilegast finnst mér að finna hluti sem mér finnst einstakir á hinum ýmsu stöðum og þá oft á ferðalögum. Þannig get ég tengt þessa hluti við ferðalögin og upplifanir og þykir þá enn vænna um þá fyrir vikið.“ Þegar kemur að barnaherbergjunum segir Helga að hún hafi reynt að velja eins fullorðinsleg húsgögn og hún gat í herbergi dóttur sinnar svo þau gætu nýst henni lengi. „Við mæðgurnar erum um margt með mjög svipaðan smekk og við völdum ljósan lit og brass inn í herbergið hennar. Eins völdum við húsgögn með ǵðum hirslum til að hafa herbergið snyrtilegt. Í herbergi sonar míns þá var svipað upp á teningnum, góðar hirslur en þar völd- um við dökkan við og bláa tóna þegar kom að málningu. Mjög reglulega tökum við okkur til og förum í gegnum fatnað og dót og gefum. Þannig verður meira rými í her- bergjunum og börnin læra að það er gott að gefa.“ Helga er mikið fyrir afskorin blóm í vasa og kaffibækur. Skenkur úr Restoration Hardware og spegill úr Heimahúsinu. Ljósmynd/Saga Sig Það fer vel um Mörtu, dóttur Helgu, í hennar herbergi. Dökkur viður og bláir tónar eru í barna- herbergi Ró- berts, sonar Helgu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Leðurstólar ættaðir af herragarði í Dan- mörku. Skápurinn er kínverskur og er antík og listaverkið er frá Katmandú í Nepal. 14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2020

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.