Morgunblaðið - 08.05.2020, Qupperneq 30
Friðriksdóttur, tímdi ekki að selja upprunalega eintakið því ég
ætla að neyða barnabörnin til að erfa það. Þá var það eina í
stöðunni að dröslast til að smíða nýjan skáp í aðeins öðruvísi
hlutföllum út frá óskum hennar í lítilli kompu uppi á annarri
hæð í Sundahöfninni. Það eru bara tvö eintök af þeim skáp til.“
Listin er frá sjálfum manni kominn
Er sami sköpunarkraftur á bak við listaverk í tónlist, hús-
gögnum og myndlist?
„Ég er naívisti með fullkomnunaráráttu.
Ég tek það alvarlega að gera mig að fífli.
Ég skoða minn eigin nafla af auðmýkt.
Ég geng fús til verka við að vorkenna sjálfum mér.
Ég viðurkenni vanmátt minn gagnvart listinni.
Ég vil hafa fullkomið vald á listinni.
Þetta er stutt ljóð sem við frændurnir Matthías og ég sömd-
um til að reyna að kjarna listsköpun mína. Ég tek eftir því að
þegar ég er sjálfur í ramma verður tónninn annar en þegar
myndin, skúlptúrinn, húsgagnið, verksummerkin fá sjálf að tala
sínu máli. Annars vegar geng ég sjálfur holdi klæddur í hlut-
verk listamannsins og viðfangsins, fjalla þá gjarnan um mið-
ilinn í gegnum miðilinn og geri grín að sjálfum mér í leiðinni.
Listamaðurinn Klemens gerir ljósmyndaseríu sem gerir grín
að fyrirbærinu „ljósmyndasería“ og um leið grín að Klemensi.
Þegar Klemens gengur í hlutverkið „poppstjarna í pólitískri
súpergrúppu“ er gengið í öfgakennda sviðsetningu þar sem
hann líkamnar sexý klámstrák, pervertískan narsissista í
djúpri sjálfsvorkunn. Þótt maður noti húmor sem hlífiskjöld
þarf að horfast í augu við að listin er, þegar allt kemur til alls,
frá sjálfum manni komin. Þannig stendur maður alltaf ber-
skjaldaður gagnvart listinni, hún verður að eilífri naflaskoðun
um leið og ég vona að hún nái yfir víðara samhengi – eigi sér
stærra bakland en bara mínar persónulegu upplifanir. Þegar ég
stíg sjálfur úr mynd blasir við allt annar tónn, eins og með
skápinn eða skúlptúrana. Auðmýktin gagnvart sköpunarverk-
inu verður meiri og ég leita eftir áferð sem gæti í senn verið
kölluð naívísk, expressjónísk en um leið formföst og lituð af
smekkbundinni áráttu. Óbeislaðar fígúrur líta dagsins ljós og
lifa sjálfstæðu lífi án þess að fjalla um miðilinn „mynd“ og gera
grín að þeim sem hana málar.“
Hvernig er myndlistarnámið í Listaháskóla Íslands?
„Þetta er skemmtilegt og gott nám. Ég er að vísu í árs leyfi
vegna barneigna og missti af seinni helmingi fyrsta ársins út af
Eurovision-geðveikinni okkar í Hatara. Ég bíð spenntur eftir
því að byrja aftur núna í haust.“
Hvað getur þú sagt mér um húsgögnin sem þú hefur gert fyr-
ir heimilið þitt?
„Þau setja ákveðinn karakter inn í húsið og ég er stoltur af
þeim.“
Smíðaði bókahillur fyrir foreldrana
Bókahillurnar hjá foreldrum þínum eru einstakar,
frágangurinn svo fallegur og litur á viðnum æðislegur. Gerðir
þú þetta eftir pöntun eða fékkstu að ráða og hanna sjálfur?
„Þau vildu í rauninni bara styrkja fátækan atvinnulausan
listamann á tímum Covid-veirunnar og gáfu mér þau fyrirmæli
að smíða hillur á þennan vegg. Pælingin var að henda ein-
hverjum vinklum á vegginn og planka ofan á, en ég fann enga
vinkla sem mér fannst nógu fallegir, ákvað þá að smíða þá frá
grunni, og í rauninni í hálfgerðu hugsunarleysi henti ég þeim
saman án þess að teikna þá upp nema bara einhverja grófa
skissu, ég var jafn spenntur og foreldar mínir að sjá hvernig
þeir myndu koma út.“
Hvernig lýsir þú þínu eigin heimili?
„Muy grandioso!“
Hverjir búa heima og eruð þið unnustuparið með sama
smekk?
„Stöpulinn í húsinu er Ronja konan mín, svo deilum við hús-
inu með dætrum okkar Valkyrju og Aþenu eða V-key og A-J.
Aþena er ekki komin með mikinn smekk enda bara tíu mánaða,
hin tveggja ára Valkyrja dáist að öllu og finnst allt vera lista-
verk svo hún er ekki kröfuhörð nema þegar það kemur að því
hvernig á að dýfa hafrakexi í haframjólk. Við Ronja erum
kannski ekki með svipaðan smekk en styrkleikar hennar bæta
upp veikleika mína og hún sýnir fullkomnunaráráttunni í mér
mikla þolimæði.“
Hvað er skemmtilegast að gera heima?
„Horfa á börnin hlæja og gráta, vökva blómin, bora í nefið og
láta tímann líða.“
Vill helst smíða öll húsgögn heima sjálfur
Ertu með vinnustofu þar sem þú sinnir húsgagnasmíðinni?
„Ekki eins og er, þó að það sé vissulega markmið. Smíða-
meistararnir Halldór Hreinsson og Kristinn Björnsson, sem
reka DK húsgagn, hafa verið svo góðir við mig að leyfa mér að
nota aðstöðuna þeirra og svo er mjög gott verkstæði uppi í
Listaháskóla.“
Án allra hindrana, hvað býr innra með þér á þessu sviði?
„Ég lifi drauminn.“
Þegar þú velur húsgögn heim, blandarðu saman nýju og þínu
eða þínu og tímabilshúsgögnum?
„Það er algjört púsluspil, blanda hinu og þessu saman sem ég
hef fengið gefins eða keypt notað og reyni að láta það virka,
reyni að forðast Ikea og fjöldaframleidda hluti þótt þeir séu
margir hverjir fallegir. Ég dáist mest að sérstöðu. Best er að
smíða flest sjálfur.“
Hvaða tímabil í húsgagnahönnun heillar þig mest?
„Mid-century modern og slick.“
Þegar þú leitar hugmynda, hvert ferðu þá?
„Niður í djúp undirmeðvitundarinnar og í verk Foucault.“
Skiptir garður eða útisvæði miklu máli þegar maður er kom-
inn með börn?
„Ó, já. Nýja trampólíníð, sem er reyndar fjöldaframleitt,
hefur reynst okkur vel.“
Hver er uppáhaldsviðurinn þinn til að smíða úr?
„Eik.“
Hver er uppáhaldsliturinn þinn á veggina?
„Það fer algjörlega eftir samhenginu í herberginu, birtunni
og laginu á rýminu, en ég elska mjög skæra liti og vil hafa mikið
af þeim.“
Er eitthvað sem þú ert mjög góður í að gera heima sem eng-
inn veit?
„Ég er mjög liðugur af Guðs náð.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Honum Klemens er margt til lista
lagt.
Hillur fyrir barnaleikföng hannaðar og smíðaðar af Klemens.
„Þau vildu í rauninni bara
styrkja fátækan atvinnu-
lausan listamann á tímum
Covid-veirunnar og gáfu mér
þau fyrirmæli að smíða hillur
á þennan vegg.“
Bókahillurnar sem Klem-
ens hannaði og smíðaði
inn á heimili foreldra sinna.
Klemens hefur gert margt
stórt og smátt fyrir heimilið.
Klemens hannaði og smíðaði þetta borð. Best finnst honum
að smíða sín húsgögn sjálfur.
„Þau vildu í
rauninni bara
styrkja fátækan
atvinnulausan
listamann á tím-
um Covid-veir-
unnar og gáfu
mér þau fyrirmæli
að smíða hillur á
þennan vegg.
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2020