Morgunblaðið - 22.05.2020, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020
S
tíll þeirra er persónulegur, nútímalegur, kúl og
töff enda parið afburða smekklegt og með
næmt auga fyrir umhverfinu en garðurinn var
kosinn einn af verðlaunagörðum bæjarins í
fyrra. Ýr gefur eiginmanninum heiðurinn af
bæði hugviti, hönnun og framkvæmd en Ant-
hony, sem er fæddur og uppalinn í Kaliforníu, starfaði hjá
Apple þar sem hann vann meðal annars í því að hanna
verslanir fyrir tölvurisann. Svo gerðist það að listamaðurinn
frá Kaliforníu fann ástina á Íslandi, nánar tiltekið á Kaffi-
barnum af öllum stöðum.
„Ég hafði verið að vinna að verkefni á Hótel Búðum og
aldrei komið til Reykjavíkur enda miklu hrifnari af sveit en
borg. Við Ýr hittumst svo bara á dansgólfinu á Kaffibarn-
um, urðum ástfangin og hér er ég, sjö árum síðar,“ segir
hann kíminn og bætir við að sagan hefði kannski getað ver-
ið rómantískari.
Hafnarfjörðurinn næstum því eins og bær úti á landi
Þau Ýr og Anthony eru samstillt par og ber umhverfi
þeirra merki þess. Ýr er fædd og uppalin í Hafnarfirði en
eins og áður segir hefði Anthony frekar kosið að búa úti í
sveit því þar líður honum best. „Hafnarfjörðurinn reyndist
millivegurinn því á margan hátt er þetta eins og að búa í
bæ úti á landi,“ segir Ýr og Anthony tekur undir. „Stutt í
allt, mikil bæjarstemning og góð samstaða meðal íbúa.“
Óhætt er að segja að hjónin hafi náð að skapa ákveðna
sveitastemningu í kringum sig. Bæði í eigin garði og á reit
sem stendur við hliðina á þeirra lóð og er í eigu Hafnar-
fjarðarbæjar en hjónin hafa tekið að sér að „fóstra“ reitinn.
Þar hafa þau sett upp snotur matjurtabeð og afar glæsi-
legan hænsnakofa með torfþaki og tilheyrandi. Þá stendur
einnig til að koma upp gróðurskála á lóðinni þar sem fólk
getur komið saman, fundað og sitthvað fleira. „Við erum
meira að segja búin að fá símtal frá jógakennara sem ætlar
að koma og vera með tíma í húsinu þegar allt er klárt.
Möguleikarnir eru í raun ótalmargir og við viljum leggja
Hönnunargarður í Hafnarfirði
Við reisulegt og afar snoturt timburhús við Suðurgötu 6 í Hafnarfirði hafa hjónin Anthony Bacigalupo og
Ýr Káradóttir skapað umhverfi ólíkt öllu sem almennt tíðkast í görðum og utanhússhönnun hér á landi.
Margrét Hugrún | margret.hugrun@gmail.com
SJÁ SÍÐU 8
Ýr Káradóttir og Anthony Bacigalupo
eiga einstakan garð í Hafnarfirði.
Húsið þeirra býr einnig yfir töfrum.
Húsið á Suðurgötu 6 í Hafnarfirði er með eindæmum
fallegt með sínu hvíta bárujárni og frönsku gluggum.
Beðið fyrir framan er bæði nýstárlegt og skemmtilegt
og hér eru túlípanarnir í sannkölluðu sumarskapi.