Morgunblaðið - 22.05.2020, Síða 12
H
engirúmið er bara svo notalegt, það gefur al-
gjöra slökun. Mér finnst ég alveg endurnýjast
við að leggjast þar í 15 mínútur,“ segir Elín
Ágústsdóttir, annar eigenda fyrirtækisins
Krumma, spurð af hverju hengirúm séu svona
vinsæl, en fyrirtækið hefur séð mikla aukningu í
vinsældum hengirúma undanfarin ár. Langt er síðan Elín upp-
götvaði sjálf kosti hengirúmsins, en hennar eigið hengirúm er
orðið 15 ára gamalt og er það mikið notað á heimili hennar.
„Það er orðið upplitað af sólinni en það virkar enn vel og mér
þykir vænt um það.“
Öryggið í fyrirrúmi
Það er vel við hæfi að leita til Elínar eftir ráðleggingum varð-
andi það hvernig best er að hengja upp hengirúm, því fyrirtæki
hennar hefur í 34 ár selt ýmis leikföng og leiktæki í garðinn þar
sem öryggið er ávallt í fyrirrúmi. „Fyrst og fremst ráðlegg ég
fólki að velja vandaðar og öruggar vörur. Margir horfa einungis
á það hvort varan er CE-vottuð en það skiptir ekki minna máli
að hún sé með evrópska öryggisstaðalinn EN1176,“ segir Elín.
Hún bætir við að vissulega sé aldrei hægt að koma í veg fyrir öll
slys en með því að velja gæðavörur sem uppfylli ákveðna ör-
yggisstaðla sé vissulega hægt að draga úr hættunni. „Síðan er
mikilvægt að fara eftir leiðbeiningum framleiðandans, bæði
hvað varðar uppsetningu og notkun. Hengirúm eru t.d. gerð
fyrir ákveðna þyngd og ákveðna hæð frá jörðu. Eins þarf að
ganga frá festingum á ákveðinn hátt.“ Þá bendir hún á að
ákveðin hætta geti verið fólgin í því að blanda vörum saman. Til
að mynda þegar standur fyrir hengirúm er keyptur stakur þarf
hann að vera í takt við hengirúmið. Tvöfalt hengirúm þarf stand
sem ber tvo einstaklinga o.s.frv. „Fólk horfir mikið í verðið og
vottaðar vörur eru yfirleitt dýrari en óvottaðar vörur. En þegar
upp er staðið vill enginn bjóða börnunum sínum upp á slysa-
gildru í garðinum. Það má aldrei gefa afslátt af örygginu.“
Fyrirbyggja nuddsár á trjám
Frístandandi standar sem hengirúm og hengirólur eru hengd
í hafa verið vinsælir því þá er hægt að hanga hvar sem er. Þar
sem trjáa nýtur við er þó tilvalið að nýta þau sem stoðir. Þegar
það er gert þarf ekki bara að huga að örygginu heldur líka að
velferð trjánna. Rúnar Ísleifsson, skógarvörður í Vaglaskógi,
Hengistólar gefa
suðræna stemn-
ingu í garðinn.
Hangið í
garðinum
Hengirúm og hengirólur af ýmsu tagi hafa
verið vinsæl undanfarin misseri bæði úti
sem og inni. Miklu máli skiptir að hafa allt-
af öryggið í fyrirrúmi og vanda til verka
þegar þessar græjur eru festar upp.
Snæfríður Ingadóttir | sneaja@gmail.com
SJÁ SÍÐU 14
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020