Morgunblaðið - 22.05.2020, Blaðsíða 16
V
ilmundur gleðst yfir því hversu mikið áhugi á garð-
yrkju og garðrækt hefur aukist á liðnum áratug.
Hann segist sérstaklega hafa tekið eftir kipp eftir
hrun en þá byrjaði landinn að fá áhuga á ræktun
grænmetis í ríkum mæli enda óhætt að segja að
hrunið hafi haft áhrif á lífsstíl og viðhorf okkar flestra.
„Allur hugsunarháttur í kringum garðyrkju hefur í raun tek-
ið stakkaskiptum frá því ég byrjaði á þessu árið
1980. Til dæmis héldu foreldrar mínir að ég
myndi svelta þegar ég ákvað að fara í
þetta nám. Þetta væri bara algjör vit-
leysa, svona svipað og ef ég hefði til-
kynnt að ég ætlaði bara að gerast ljóð-
skáld og lifa á því,“ segir hann og
hlær.
Hann segir að sér finnist sérstak-
lega gaman að koma í hverfi þar sem
hann vann fyrir þrjátíu til fjörutíu árum
og virða fyrir sér breytingarnar.
„Sums staðar eru þær alveg magnaðar og
það er ólýsanlega gefandi að sjá árangurinn af
því sem maður hefur gert og um leið staðfestingu á því hvað
það er í raun auðvelt að koma sér upp fallegum garði. Fólk
er meira að segja byrjað að rækta ávaxtatré. Ég hef séð
plómutré svigna undan ávöxtum í garði hér í Reykjavík,“
segir hann.
Heimaræktun er ekki keppni um stærðina heldur bragðið
Segja má að með heimsfaraldrinum sem nú gengur yfir hafi
átt sér stað önnur bylgja viðhorfsbreytinga hjá þjóðinni og aft-
ur lítur fólk inn á við, nýtur útiveru og byrjar að rækta garðinn
sinn í orðsins fyllstu merkingu. Sumir hafa orðið fyrir tekju-
missi og þá gerist það aftur að fólk fær áhuga á því að drýgja
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020
Heiðmörk 38
810 Hveragerði
Sími 483 4800
Fax 483 4005
floragardyrkjustod.is
flora@floragardyrkjustod.is
GRÓÐURINN Í GARÐINN
Fáið þið hjá okkur:
Sumarblóm
Tré og runnar
Matjurtarplöntur
Rósir
Fjölær blóm
Skógarplöntur
Lífið verður
alltaf betra
með gróðri
og plöntum
Vilmundur Hansen, garðyrkjumaður og
blaðamaður hjá Bændablaðinu, er ókrýndur
garðyrkjugúru þjóðarinnar en hann stofnaði
Facebook-hópinn Ræktaðu garðinn þinn
sem hefur tæplega 38.000 meðlimi. Þar eys
hann óspart úr viskubrunni sínum og miðlar
reynslu sem hann hefur öðlast í sínu starfi
síðustu fjörutíu árin.
Margrét Hugrún | margret.hugrun@gmail.com
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Grasagarðurinn er í miklu
uppáhaldi hjá Vilmundi.
Vilmundur
Hansen
garðyrkju-
fræðingur.
Hér má sjá
hvernig
hægt er að
gera garð-
inn heillandi
með hellu-
lögn.
SJÁ SÍÐU 18
Vilmundur segir að það sé ekki
góð þróun að byggingavöruversl-
anir bjóði upp á garðhönnun. Hann
vill hafa gróður í görðum ekki
endalaust timbur.