Morgunblaðið - 22.05.2020, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020
JARÐGERÐARÍLÁT
BÚÐU TIL ÞÍNA EIGIN MOLTU !
www.gamafelagid.is 577 5757 igf@igf.is
Jarðgerðarílátið er 310 lítra og er
hugsað fyrir þá sem vilja prófa sig áfram
við moltugerð.
Um það bil 30-35% af heildarmagni
heimilissorps er lífrænn úrgangur sem
má jarðgera. Afurð jarðgerðarinnar,
moltan, nýtist sem næringarríkur
áburður fyrir garðinn.
Jarðgerðarílátið er hægt að panta í
vefverslun okkar eða í síma 577 5757.
ursvæðum og hvað þá grenndargörðum þar sem börn
geta lært að rækta.“
Sólstofur geta lengt sumarið um þrjá mánuði
Líkt og með flest annað eru tískustraumar í görðum
sem og öðru sem snýr að lífsstíl. Á tímabili og jafnvel
ennþá hafa landsmenn haft mikla dellu fyrir því að fella
tré og koma upp stórum sólbaðspöllum úr svokölluðu
pallatimbri. Vilmundur er blátt áfram í skoðunum sínum
á þessu.
„Það er hálfleiðinlegt að segja þetta því sum fyrirtæki
sem selja hellur og pallaefni bjóða viðskiptavinum upp á
ókeypis garðhönnun. Það er í sjálfu sér ekkert slæmt en
auðvitað er leikurinn gerður til þess að selja fólki efni.
Allir garðar sem eru hannaðir hjá timbursölum eru með
pöllum og allir garðarnir sem eru hannaðir hjá hellusöl-
um eru með hellum. Þetta hefur gert það að verkum að
hér skortir oft fjölbreytileikann í görðum. Garðurinn og
umhverfið í kringum húsið er alltaf fallegra og notalegra
þegar fjölbreytileikinn fær notið sín og aldrei hefur verið
auðveldara en núna að hanna sinn eigin garð því á netinu
er úrval af allskonar forritum til þess,“ segir Vilmundur
og bætir við að með þessu sé hann samt ekki að segja að
fólk ætti að sleppa sólpallinum.
„Það er ekki skrítið að fólk sé svona hrifið af því að fá
sér pall því hann er einskonar framlenging á stofunni í
góðu veðri. Í mörgum tilfellum mætti fólk samt frekar
íhuga að byggja sér garðskála því það lengir sumarið um
þrjá mánuði í hvorn enda. Það er notalegt að sitja á pall-
inum, grilla og fá sér rauðvín, auðvitað er þetta allt mjög
næs en það er smá synd hvað við
getum notið þess í fáa daga á ári
og þess vegna gæti garðskáli verið
mikið betri kostur. Það er hægt að
útfæra þá á margvíslegan máta,
hafa opna að hluta til og margt
fleira svo ég held það væri sniðugt
fyrir þau sem eru í framkvæmda-
hug að kynna sér þann valkost.“
Pottaplöntur í tísku, innan sem
utan dyra
Á sjötta og sjöunda áratug síð-
ustu aldar nutu pottaplöntur gríð-
arlegra vinsælda á heimilum
landsmanna en svo hurfu þær næstum alveg af sjónar-
sviðinu. Fyrir örfáum árum skutu þær svo aftur upp koll-
inum og njóta nú blússandi vinsælda, aðallega hjá yngri
kynslóðinni. Vilmundur segir að nú séu pottarnir líka
komnir út í garða þar sem bæði tré og blóm séu höfð í
pottum til að fegra umhverfið. Þá segir hann líka að fólk
sé byrjað að skreyta skjólveggi, til dæmis með hengi-
plöntum.
„Ein besta leiðin til að rækta jarðarber er í hengipott-
um sem er auðvelt að festa á skjólveggina og þau má líka
rækta úti á svölum,“ segir hann.
„Svo er líka hægt að rækta talsvert fleiri tegundir af
gómsætum berjum á Íslandi en flestir gera sér grein fyr-
ir. Til dæmis eru sumir byrjaðir að rækta stikilsber og
aðra tegund sem heitir því afleita nafni hlíðaramall en
hét áður hunangsviður og það er nafn með rentu því ber-
in á honum eru alveg ævintýralega góð. Hunangsvið-
urinn er sterkur og harðgerður og þannig mátuleg
áskorun fyrir áhugasama ræktendur. Það er hægt að
rækta alveg furðulega mikið á þessu landi og með ólík-
indum hvað hægt er að gera í görðunum og á svölum ef
fólk nær að gefa sér tíma. Þó sumarið sé stutt þá er það
vel þess virði því lífið verður alltaf betra með gróðri og
plöntum.“
hann einnig Fornalund sem er í grennd við BM Vallá.
Grunnurinn að þeim garði var lagður af Jóni Dungal sem
bjó á bænum Hvammi sem áður stóð á þessum stað.
Fornilundur er fallegur lystigarður með ólíkum dvalar-
svæðum, bekkjum og blómabeðum í öllum stærðum og
gerðum.
„Svo er það auðvitað Hellisgerðið í Hafnarfirði og
gamli kirkjugarðurinn við Suðurgötu sem er mjög fal-
legur og fjölbreyttur í sínu blóma- og trjáskrúði. Reykja-
víkurborg mætti alveg fjölga fallegum görðum og gróð-
tekjurnar með því að rækta sitt eigið grænmeti. En
hvernig á nýgræðingur í þessu að bera sig að? Hvað á að
gera eftir að búið er að stinga upp beðið eða smíða rækt-
unarkassa?
Vilmundur segir að fyrst og fremst þurfi moldin að
vera næringarrík og góð og að það sé alveg nauðsynlegt
að nota áburð, sér í lagi lífrænan áburð.
„Lífrænn áburður er til dæmis þörungamjöl, hænsna-
skítur, molta og þessháttar. Hugsanlega er svo hægt að
fara í hesthúsin og fá kerru hjá hestafólkinu en slíkur
áburður er mjög góður. Svo þarf að blanda þessu öllu vel
saman,“ segir hann og bætir um leið við að matjurtir á
borð við kartöflur, gulrófur og grænkál séu mjög góðar
tegundir að rækta fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu
skref í þessu.
„Í matjurtagarða er gott að nota tilbúinn áburð en
maður þarf að passa sig að nota ekki of mikið. Hann pínir
plönturnar upp í vexti og það getur verið á kostnað
bragðsins. Matjurtarækt í heimagörðum er nefnilega
ekki keppni um stærð heldur fyrst og fremst bragð,“
segir hann og bætir við að í ræktun kálplantna, rófna og
hvítkáls sé nauðsynlegt að hafa akrýldúk yfir beðinu
fram á aðra viku í júlí til að halda á þeim hita og hrinda
frá kálflugum og annarri óværu.
Borgin mætti fjölga grenndargörðum
Spurður að því hvort hann eigi sér einhverja uppá-
haldsgarða í borginni nefnir hann fyrst Grasagarðinn í
Laugardal. Þar séu miklir snillingar í garðrækt að störf-
um og fróðlegt og skemmtilegt að fylgjast með. Þá nefnir
Morgunblaðið/Jim Smart
Morgunblaðið/ Jim Smart
Morgunblaðið/Jim Smart
Dagstjarna er
planta sem lengi
hefur verið
ræktuð á Ísandi.
„Það er hálfleiðinlegt að
segja þetta því sum
fyrirtæki sem selja
hellur og pallaefni bjóða
viðskiptavinum upp á
ókeypis garðhönnun.
Það er í sjálfu sér ekkert
slæmt en auðvitað er
leikurinn gerður til þess
að selja fólki efni.