Morgunblaðið - 22.05.2020, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 22.05.2020, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020 JARÐGERÐARÍLÁT BÚÐU TIL ÞÍNA EIGIN MOLTU ! www.gamafelagid.is 577 5757 igf@igf.is Jarðgerðarílátið er 310 lítra og er hugsað fyrir þá sem vilja prófa sig áfram við moltugerð. Um það bil 30-35% af heildarmagni heimilissorps er lífrænn úrgangur sem má jarðgera. Afurð jarðgerðarinnar, moltan, nýtist sem næringarríkur áburður fyrir garðinn. Jarðgerðarílátið er hægt að panta í vefverslun okkar eða í síma 577 5757. ursvæðum og hvað þá grenndargörðum þar sem börn geta lært að rækta.“ Sólstofur geta lengt sumarið um þrjá mánuði Líkt og með flest annað eru tískustraumar í görðum sem og öðru sem snýr að lífsstíl. Á tímabili og jafnvel ennþá hafa landsmenn haft mikla dellu fyrir því að fella tré og koma upp stórum sólbaðspöllum úr svokölluðu pallatimbri. Vilmundur er blátt áfram í skoðunum sínum á þessu. „Það er hálfleiðinlegt að segja þetta því sum fyrirtæki sem selja hellur og pallaefni bjóða viðskiptavinum upp á ókeypis garðhönnun. Það er í sjálfu sér ekkert slæmt en auðvitað er leikurinn gerður til þess að selja fólki efni. Allir garðar sem eru hannaðir hjá timbursölum eru með pöllum og allir garðarnir sem eru hannaðir hjá hellusöl- um eru með hellum. Þetta hefur gert það að verkum að hér skortir oft fjölbreytileikann í görðum. Garðurinn og umhverfið í kringum húsið er alltaf fallegra og notalegra þegar fjölbreytileikinn fær notið sín og aldrei hefur verið auðveldara en núna að hanna sinn eigin garð því á netinu er úrval af allskonar forritum til þess,“ segir Vilmundur og bætir við að með þessu sé hann samt ekki að segja að fólk ætti að sleppa sólpallinum. „Það er ekki skrítið að fólk sé svona hrifið af því að fá sér pall því hann er einskonar framlenging á stofunni í góðu veðri. Í mörgum tilfellum mætti fólk samt frekar íhuga að byggja sér garðskála því það lengir sumarið um þrjá mánuði í hvorn enda. Það er notalegt að sitja á pall- inum, grilla og fá sér rauðvín, auðvitað er þetta allt mjög næs en það er smá synd hvað við getum notið þess í fáa daga á ári og þess vegna gæti garðskáli verið mikið betri kostur. Það er hægt að útfæra þá á margvíslegan máta, hafa opna að hluta til og margt fleira svo ég held það væri sniðugt fyrir þau sem eru í framkvæmda- hug að kynna sér þann valkost.“ Pottaplöntur í tísku, innan sem utan dyra Á sjötta og sjöunda áratug síð- ustu aldar nutu pottaplöntur gríð- arlegra vinsælda á heimilum landsmanna en svo hurfu þær næstum alveg af sjónar- sviðinu. Fyrir örfáum árum skutu þær svo aftur upp koll- inum og njóta nú blússandi vinsælda, aðallega hjá yngri kynslóðinni. Vilmundur segir að nú séu pottarnir líka komnir út í garða þar sem bæði tré og blóm séu höfð í pottum til að fegra umhverfið. Þá segir hann líka að fólk sé byrjað að skreyta skjólveggi, til dæmis með hengi- plöntum. „Ein besta leiðin til að rækta jarðarber er í hengipott- um sem er auðvelt að festa á skjólveggina og þau má líka rækta úti á svölum,“ segir hann. „Svo er líka hægt að rækta talsvert fleiri tegundir af gómsætum berjum á Íslandi en flestir gera sér grein fyr- ir. Til dæmis eru sumir byrjaðir að rækta stikilsber og aðra tegund sem heitir því afleita nafni hlíðaramall en hét áður hunangsviður og það er nafn með rentu því ber- in á honum eru alveg ævintýralega góð. Hunangsvið- urinn er sterkur og harðgerður og þannig mátuleg áskorun fyrir áhugasama ræktendur. Það er hægt að rækta alveg furðulega mikið á þessu landi og með ólík- indum hvað hægt er að gera í görðunum og á svölum ef fólk nær að gefa sér tíma. Þó sumarið sé stutt þá er það vel þess virði því lífið verður alltaf betra með gróðri og plöntum.“ hann einnig Fornalund sem er í grennd við BM Vallá. Grunnurinn að þeim garði var lagður af Jóni Dungal sem bjó á bænum Hvammi sem áður stóð á þessum stað. Fornilundur er fallegur lystigarður með ólíkum dvalar- svæðum, bekkjum og blómabeðum í öllum stærðum og gerðum. „Svo er það auðvitað Hellisgerðið í Hafnarfirði og gamli kirkjugarðurinn við Suðurgötu sem er mjög fal- legur og fjölbreyttur í sínu blóma- og trjáskrúði. Reykja- víkurborg mætti alveg fjölga fallegum görðum og gróð- tekjurnar með því að rækta sitt eigið grænmeti. En hvernig á nýgræðingur í þessu að bera sig að? Hvað á að gera eftir að búið er að stinga upp beðið eða smíða rækt- unarkassa? Vilmundur segir að fyrst og fremst þurfi moldin að vera næringarrík og góð og að það sé alveg nauðsynlegt að nota áburð, sér í lagi lífrænan áburð. „Lífrænn áburður er til dæmis þörungamjöl, hænsna- skítur, molta og þessháttar. Hugsanlega er svo hægt að fara í hesthúsin og fá kerru hjá hestafólkinu en slíkur áburður er mjög góður. Svo þarf að blanda þessu öllu vel saman,“ segir hann og bætir um leið við að matjurtir á borð við kartöflur, gulrófur og grænkál séu mjög góðar tegundir að rækta fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í þessu. „Í matjurtagarða er gott að nota tilbúinn áburð en maður þarf að passa sig að nota ekki of mikið. Hann pínir plönturnar upp í vexti og það getur verið á kostnað bragðsins. Matjurtarækt í heimagörðum er nefnilega ekki keppni um stærð heldur fyrst og fremst bragð,“ segir hann og bætir við að í ræktun kálplantna, rófna og hvítkáls sé nauðsynlegt að hafa akrýldúk yfir beðinu fram á aðra viku í júlí til að halda á þeim hita og hrinda frá kálflugum og annarri óværu. Borgin mætti fjölga grenndargörðum Spurður að því hvort hann eigi sér einhverja uppá- haldsgarða í borginni nefnir hann fyrst Grasagarðinn í Laugardal. Þar séu miklir snillingar í garðrækt að störf- um og fróðlegt og skemmtilegt að fylgjast með. Þá nefnir Morgunblaðið/Jim Smart Morgunblaðið/ Jim Smart Morgunblaðið/Jim Smart Dagstjarna er planta sem lengi hefur verið ræktuð á Ísandi. „Það er hálfleiðinlegt að segja þetta því sum fyrirtæki sem selja hellur og pallaefni bjóða viðskiptavinum upp á ókeypis garðhönnun. Það er í sjálfu sér ekkert slæmt en auðvitað er leikurinn gerður til þess að selja fólki efni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.