Morgunblaðið - 22.05.2020, Blaðsíða 22
Hönnuðu
og smíðuðu
sinn eigin
sælureit í
Kópavogi
V
ið erum búin að gera allan garðinn upp sunnanmegin
og nú erum við að taka hina hliðina sem snýr í norður
í gegn,“ segir Alma. Hún segir að hugmyndirnar að
pallinum og umhverfinu hafi komið smátt og smátt.
Til dæmis af Pinterest þar sem hægt er að útbúa
myndamöppur og sækja innblástur en líka úr görðum annarra.
Svo fengu þau arkitekt til að aðstoða við að útbúa teikningar.
Eins og sjá má á myndunum er þessi pallur, og garður, svolít-
ið öðruvísi en við eigum að venjast. Til dæmis bara gróðurhúsið
og beðið þar við hlið. Þessi hugmynd er nýstárleg og frábær
lausn fyrir fólk sem langar að rækta eitthvað en langar ekki að
viðhalda stórum garði með trjám og tilheyrandi.
„Ég smitaðist eiginlega af garðyrkjuáhuga í gegnum Martein
son minn, sem vann í garðyrkju í fjögur ár. Við keyptum gróð-
urhúsið strax árið 2018 þegar framkvæmdirnar stóðu sem hæst
og þetta er því þriðja sumarið sem við erum að rækta,“ segir
hún og bætir við að þau séu þannig bara algjörir byrjendur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vorið 2017 festu hjónin Alma María
Rögnvaldsdóttir hjúkrunarfræðingur og
Guðmundur Guðnason tölvunarfræð-
ingur kaup á 220 fermetra einbýlishúsi
við Hrauntungu í Kópavogi. Með húsinu
fylgdi stór garður sem hefur tekið alger-
um stakkaskiptum á síðustu tveimur ár-
um og er það aðallega að þakka elju-
semi feðganna Guðmundar og Marteins
sem er 21 árs.
Margrét Hugrún | margret.hugrun@gmail.com
Alma María Rögn-
valdsdóttir og Guð-
mundur Guðnason
eiga sérlega fallegan
garð sem þau hafa
sett mikinn metnað í.
Hér sést hvernig gróð-
urhúsið og pallur tengjast.
SJÁ SÍÐU 24
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020