Morgunblaðið - 22.05.2020, Blaðsíða 28
á moldina, eykur örverulífið sem frjósemi og
endurnýjunarkraftur moldarinnar byggist á,“
segir hann og bætir við að tilbúinn áburður sé
vissulega þarna og gott sé að geta gripið til
hans, sé moldin tiltölulega líflaus massi sem
krafinn er um full afköst.
„En tilbúinn áburður er fyrst og fremst sölt
og hafragrauturinn verður ekkert betri ef við
erum að kakka í hann meira salti í von um að
gera hann hollari og lystugri svo að krakkarnir
vaxi hraðar og verði feitari. Tilbúinn áburð er
ágætt að líta á sem vítamíntöflurnar sem við
kaupum í heilsuvöruhornum apótekanna eða
stórmarkaðanna – og notum hann samkvæmt
því.“
Spurður að því hvort runnar og tré þurfi sér-
stakan áburð segir Hafsteinn svo ekki vera en
að dálítil meðgjöf við gróðursetningu sé ágætis
byrjun og veganesti fyrir þau.
Stálpuð tré í görðum standi yfirleitt vel á
eigin fótum og þurfi ekki áburðargjöf úti í nátt-
úrunni og sama gildi um runnagróður. „Aftur á
móti þiggja berjarunnar og aðrir ræktunar-
runnar sem standa þétt í görðum dálitla áburð-
argjöf og þá gjarna um 30-35 grömm af til-
búnum garðáburði á hvern fermetra snemma á
vorin – eða svo sem eina hjólbörufylli á fer-
metra af lífrænum áburði (moltu eða taði) ann-
að til þriðja hvert haust.“
Mælir alls ekki með því að
láta úða tré og runna
Margir garðeigendur taka upp á því að láta
úða tré og runna á vorin en Hafsteinn mælir
alls ekki með því.
„Allir garðar eru í sjálfu sér heilt vistkerfi
með sjálfstæðum lífkeðjum. Líka lífinu sem við
sjáum ekki. Þess vegna er eiginlega út í hött að
grípa þar inn í og rugla ferlið,“ segir hann.
„Með eiturúðun falla líka frá gagnlegu dýrin
sem halda skaðvöldunum niðri og sé látið ógert
að úða myndast fljótt jafnvægi. Hinsvegar get-
um við gengið um með slatta af volgu sápu-
vatni í dollu og tínt þar í lirfur og önnur kvik-
indi sem við sjáum og vitum að muni skilja eftir
sig spor á laufum plantnanna. Þá er bara að
kynna sér kvikindin og lesa gjarna um þau þar
sem um þau er fjallað. Fallegir garðar byggj-
ast kannski fyrst og fremst á athygli, skilningi
og virðingu fyrir því sem í þeim er.“
Tilraunareitir víða um land
og gott úrval af gömlu og nýju
Svo vitnað sé í orð Hafsteins um að garð-
yrkjan sé „kúltúr“ þá fara tískustraumar í
garðyrkju ekki framhjá þeim sem fylgjast
með. Fólk reynir að koma upp nýjum plöntum
og sumt tekst en annað ekki.
„Í aldanna rás hefur fólk dregið að sér
plöntur frá öllum hlutum heims til að rækta í
görðum sínum – og seint verður lát á því reikna
ég með,“ segir hann og bendir á að á hverju ári
bætist við nýjar tegundir, eða tilbrigði af þeim
í ræktunarflóruna. „Sumt af því er og verður
til frambúðar. Annað gefst upp á veðurfarinu
þegar meira reynir á,“ segir hann og bætir við
að ekki sé hægt að minnast á eina tegund um-
fram aðra í þessu samhengi. „Ef fólk vill fylgj-
ast með er best að skoða úrvalið í gróðrar-
stöðvunum um land allt – og kíkja reglulega í
grasagarðana á Akureyri og í Reykjavík. Og
Garðyrkjufélag Íslands, Félag garðplöntu-
framleiðenda og Landbúnaðarháskólinn
standa fyrir yndisgörðum – sem eru tilrauna-
reitir víða um landið fyrir garðagróður, nýtt
úrval sem gamalt, þar sem er verið að finna úr-
val af plöntum sem henta í skrúðgarða um allt
land – og þá gjarna flokkað niður eftir vaxt-
arsvæðum,“ segir ráðagóði garðyrkjumeist-
arinn Hafsteinn Hafliðason að lokum.
Unsplash
„Fjöldi íslenskra fáráðlinga hefur verið að sleppa kanínum
hist og her í kringum þéttbýli um allt land á undanförnum
áratugum án þess að gera sér grein fyrir hve „þessi krútt“
eru mikil skaðræðisdýr í gróðurlendi landsins.“
Hafsteinn segir að
kanínur séu mikil
skaðræðisdýr þegar
kemur að gróðri.
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020
Rafhitun
Ryðfríir neysluvatnshitarar, hitöld (element),
hitastillar, hitastýringar, rafhitarar til húshitunar
og flest annað til rafhitunar.
Við hjá Rafhitun erum sérfræðingar í öllu sem við
kemur rafhitun. Við bjóðum einungis úrvals tæki
sem hafa sannað sig með áralangri reynslu.
Rafhitarar fyrir heita potta
Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði • Sími: 565 3265 • ww.rafhitun.is
íslensk
framleiðsla
í 25 ár
Hiti í bústaðinn