Morgunblaðið - 22.05.2020, Page 30

Morgunblaðið - 22.05.2020, Page 30
V ið konurnar í fjölskyldunni eigum það sameiginlegt að líða hvergi betur en úti í garði,“ segir Ásta sem á margar minningar úr garðinum en húsið við Hring- braut, sem var byggt af afa hennar, hefur haldist í fjölskyldunni alla tíð og ber garðurinn merki þess að hafa verið sinnt af mikilli alúð. Sem unglingur fór Ásta í garðvinnu hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur, Háskóla Ís- lands og Hljómskálagarðinum. „Þetta átti alveg svakalega vel við mig. Mér fannst þetta skemmtilegt og ég upplifði tilganginn í garðræktinni, sem er að skapa eitthvað fallegt um leið og maður tengist náttúr- unni.“ Hlustar á hljóðbækur um leið og hún nærir líkama og sál Fyrir Ástu eru öll verk í garðinum jafn skemmtileg og hún segist ómögulega geta kvartað yfir neinu, nema mögulega því að vera ekki nógu sterk til að grafa upp trjá- stubba og saga niður trjágreinar. Það sé þó ekki mjög alvarlegur vandi enda hjálpin allt- af skammt undan í stórri fjölskyldu. „Mér finnst frábært að kantskera, geggj- að að reyta arfa og skriðsóleyjar og sálbæt- andi að hlúa að blómunum mínum. Ef það Á bak við þriggja hæða parhús við Hringbrautina í Reykjavík dafnar fallegur unaðsreitur hvar Ásta Kristjánsdóttir, lög- maður og blómálfur í þriðja kvenlegg, ræður ríkjum. Hún tók við garðinum af móður sinni, sem áður hafði komið honum upp með sinni móður, en Ásta vill meina að áhugi á garðrækt sé sér að öllum líkindum í blóð borinn. Margrét Hugrún | margret.hugrun@gmail.com „Mér finnst frábært að kantskera, geggjað að reyta arfa og sálbætandi að hlúa að blómunum“ 30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020 POTTAGALDRAR VIÐ GRILLIÐ Í SUMAR Með sjálfbærni og mannúð að leiðarljósi • Engin aukaefni • 100% hrein krydd Kebab kjúklingakrydd Villijurtir Eðalsteik- og grillkrydd Best á allt Víkingaolía fyrir naut og lamb Ítölsk hvítlauksolía Grísk kryddolía fyrir kjúkling og fisk Piri piri kryddolía Uppskrift að góðri matargerð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.