Morgunblaðið - 22.05.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.05.2020, Blaðsíða 32
Ásta fylgist grannt með fólki sem elskar garðrækt á Instagram. Nú er hún farin að rækta allskonar í glugganum heima hjá sér. Til dæmi setti hún stein úr lárperu og bíður nú eftir að sú rækt taki við sér. „Ég upplifði tilganginn í garðræktinni, sem er að skapa eitthvað fallegt um leið og maður tengist náttúrunni.“ vel allt sumarið. Sáning fræja almennt kallar á þolinmæði sem ég á ekki til í stórum skömmt- um, en það er auðvelt að rækta baunablóm og þau eru voða sumarleg og sæt.“ Verndar frumbyggjana sem amma setti niður Þegar fólk er jafn djúpt sokkið í áhuga- málin sín og Ásta þá hikar það vanalega ekki við að gera tilraunir og prófa sig áfram. „Ef mig langar að prófa að rækta eitthvað þá geri ég það hiklaust enda er umbunin svo góð ef það tekst. Fyrir nokkrum árum lang- aði mig til dæmis að prófa hvort ég gæti ræktað fingurbjargarblóm af fræi. Það gekk svona glimrandi vel og þau eru svo dugleg að sá sér að við erum enn að njóta góðs af, fáum þessi fallegu blóm sjálfsáð á hverju sumri,“ segir Ásta glöð og bætir við að næst- síðasta sumar hafi hún sett niður valmúafræ í þeirri von að sjá svo litríka valmúa skjóta upp kollinum. Sá draumur rættist svo í fyrra og af þeim öllum er eftirlætið hennar hvíti risavalmúinn. Þá segist hún einnig mjög stolt af því hvað hún á orðið margar tegundir í garðinum. „Ég er líka ánægð með þá stefnu sem ég tók nýlega, að reyna að varðveita tegundir sem mér fundust lengi vel hversdagslegar af því þær hafa verið í garðinum alveg frá upp- hafi. Til dæmis gullhnappur og silfursóley, riddaraspori og liljur vallarins. Nú finnst mér eitthvert gildi í því að vernda þessa frumbyggja og þar með halda gömlum minn- ingum á lofti,“ segir Ásta sem ræðst einnig í nýstárlegri tilraunir, eins og til dæmis að rækta hvítlauk og nú lárperu, eða avókadó sem hún segir nýjasta æðið. „Nú er ég komin með fullan glugga af lárperusteinum“ „Ég hef verið að fylgjast með frábærri konu á Instagram sem er að rækta alls kyns plöntur úr ávaxtasteinum, ákvað að prófa og nú er ég komin með fullan glugga af lárperu- steinum sem eru að gera sig líklega til að dafna. Nokkrir þeirra eru reyndar komnir með lauf og ég var að setja þá í mold en framan af er þetta vatnsræktun. Ég er líka með mangósteina sem eru að gera góða hluti. Þetta er mjög skemmtilegt og svo finnst mér þetta líka fallegt hvort sem búast má við uppskeru eða ekki. Það er aldrei að vita hvað getur gerst,“ segir hún og rifjar upp eitt sumarið þegar hún rakst á framandi lauf milli blómanna. „Mig grunaði að þetta gætu verið kart- öflugrös svo ég ákvað að bíða bara og sjá. Þetta reyndist rétt greining því um haustið fengum við ágætis uppskeru þrátt fyrir að hafa ekki sett niður eina einustu kartöflu. Ég hallast helst að því að útsæðið hafi komið úr moltukassanum mínum þegar við tæmdum hann í beðin um vorið og dafnað svona ansi vel. Síðan þá hef ég leikið mér að því að stinga tveimur til þremur kartöflum niður inni á milli blómanna og oft fengið nokkrar kartöflur að hausti,“ segir hún kankvís. Sækir innblástur í aðra garða og á Instagram Ásta segist sækja innblástur frá allskonar garðagúrúum og þá helst á Instagram. Þar nefnir hún Monty Don sem sinn uppá- halds en hún fylgist einnig með þáttunum hans „Gardeners’ World“ á BBC. Hún nefnir einnig Danann Claus Dalby og Alexander Ásta segist vera hálfgerður blómatrúboði. Hún segist fá betri tengingu við náttúr- una með því að stunda garðrækt. Næsta verkefni Ástu er að koma upp gler- húsi í garðinum. 32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.