Morgunblaðið - 22.05.2020, Side 33

Morgunblaðið - 22.05.2020, Side 33
Hoyle og til að halla ekki á kynjakvótann þá nefnir hún einnig blómadísirnar Violet Grey, Emily Thompson og Karolinu hjá Länsmans- gården. „Ég fæ líka innblástur af því að ganga um bæinn og skoða garða sem ég veit að eru fallegir og vel hirtir. Ég furða mig stundum á því hversu fáir hafa áhuga á að gera garðana sína fallega en það fer ekkert framhjá manni ef sá áhugi er fyrir hendi og mér finnst voðalega gaman að rölta og kíkja á þessa garða og fá hugmyndir.“ Ásta er með nokkuð róttækar breytingar á prjónunum fyrir garðinn sinn en síðast var honum bylt fyrir rúmlega áratug. „Árið 2008 gerðum við talsverðar breyt- ingar á garðinum. Gerðum til dæmis út- gengt úr stofunni, grófum fyrir nýrri stétt og hellulögðum auk þess sem við breyttum uppröðun beðanna allverulega. Þetta var talsverð vinna en hún lagði grunn að garð- inum eins og hann er í dag. Nú rúmum ára- tug síðar er næsta verkefni að koma upp glerhúsi þar sem við getum framlengt ís- lenska sumarið, ræktað og yljað okkur yfir kaffibolla. Þetta verkefni er á teikniborðinu og er farið að taka á sig mynd svo nú reynir á framtakssemina,“ segir blómálfurinn Ásta sem nýlega tók blómaástríðuna upp nýtt þrep. „Það má segja að ég sé orðin einskonar blómatrúboði. Ég er alltaf að reyna að breiða út blómaboðskapinn“ segir hún og kímir. „Ég er nýlega byrjuð að setja saman blómaskreytingar í útipotta sem eru hafðir við útidyr, á pöllum, borðum og annars stað- ar þar sem fólk vill fegra umhverfi sitt utan- dyra. Þetta hefur fallið vel í kramið enda margir sem vilja njóta fegurðarinnar! Blóm- in gleðja,“ segir lögmaðurinn, náttúruunn- andinn og garðálfurinn Ásta Kristjánsdóttir að lokum. „Nú finnst mér eitthvert gildi í því að vernda þessa frum- byggja og þar með halda gömlum minningum á lofti.“ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020 MORGUNBLAÐIÐ 33 Opnunartími alla virka daga 8-18 og á laugardögum 10-14Sævarhöfða 12, 110 Reykjavík, s. 577 5400, throttur@throttur.is Bjóðum upp á allar tegundir af VÖRUBÍLUM, KRANABÍLUM og VINNUVÉLUM sem henta í flest verk Seljum einnig hellusand, drenmöl og tökum á móti jarðvegi á Sævarhöfða 12

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.