Morgunblaðið - 22.05.2020, Qupperneq 34
Þ
að er varla hægt að fá veðursælli
garð á Akureyri, hann snýr í há-
suður og hér er skjól frá hafgol-
unni. Í stað þess að fá okkur sum-
arbústað ákváðum við að setja
peninga í garðinn því hér er okkar sum-
arsæla,“ segir Andrea. Það er vor í lofti og
hjónin drekka kaffið utandyra á nýsteyptum
palli. „Við ætluðum að klára þetta síðasta
sumar en það rigndi svo mikið, aldrei þessu
vant, og því urðum við að skilja ákveðinn frá-
gang eftir. En við stefnum að því að klára
þetta í sumar,“ segir Hallur og er vongóður
um gott sumar. Áður en veturinn skall á náð-
ist þó að steypa pallinn sem er 90 fm að stærð
með niðurgröfnum heitum potti. „Okkur
fannst pallurinn vera óþarflega stór í byrjun
en eftir að veggirnir komu er töluvert
skuggavarp af þeim svo það er gott að hafa
hann rúman.“
Þau segja að steyptur pallur hafi verið það
eina sem kom til greina, trépallur hefði ein-
faldlega ekki passað við húsið sem byggt var
árið 1950. „Það er steypt girðing fyrir framan
húsið svo þetta var rökrétt framhald.“
Áberandi karrígult
Þegar þau keyptu húsið var bara gras og
tré á lóðinni. „Fyrsta sumarið felldum við
nokkur tré og grisjuðum til að fá meiri sól í
bakgarðinn. Þó við séum komin með þennan
stóra pall þá er nóg eftir af garðinum því hús-
ið er byggt framarlega á lóðinni sem er um
600 fm að stærð,“ segir Andrea. Það fyrsta
sem þau gerðu eftir kaupin var að mála húsið
karrígult og það meira að segja áður en þau
fengu það afhent. Andrea ítrekar að húsið
hafi verið dánarbú svo þau lágu nú ekki á
gluggunum hjá fyrrverandi íbúum þó þau hafi
verið óþolinmóð við að hefjast handa við að
gera húsið að sínu.
„Þetta hús var búið að vera draumahúsið
okkar lengi. Afi og amma Halls bjuggu í hús-
inu beint á móti svo við vorum oft búin að
horfa á húsið frá þeim. Húsið er mjög
skemmtilegt í laginu, með tvo strompa og
flotta glugga,“ segir Andrea þegar hún er
spurð út í það hvers vegna þau hafi fallið fyrir
því. Karríguli liturinn sem þau völdu á húsið
undirstrikar sérkenni þess enn frekar og fær
það til að skera sig enn betur úr umhverfinu,
ekki síst á veturna þegar allt er á kafi í snjó.
Eins og kuðungur í laginu
Fljótlega eftir að þau keyptu húsið kvikn-
aði sú hugmynd að gera pott í garðinum. „Þó
við séum ekki langt frá sundlauginni þá er
einhvern vegin allt öðruvísi að hafa eigin pott
í garðinum og það kom okkur eiginlega á
óvart hvað við höfum notað hann mikið í vet-
Bakgarður með baði
Fyrir fimm árum keyptu hjónin Hallur Gunnarsson og Andrea Hjálmsdóttir draumahúsið á Akureyri. Húsið hafa þau tekið í gegn að innan
sem utan og nú er fókusinn á garðinum. Þar er komin steypt verönd og skemmtilegur spírallaga pottur en fleiri framkvæmdir eru í farvatninu.
Snæfríður Ingadóttir | snaeja@gmail.com
Lóðin er um 600 fm
að stærð og snýr í
hásuður.
Ljósmyndir/Snæfríður Ingadóttir
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020
Gerir sláttinn auðveldari
Cub Cadet sláttutraktorarnir eru afar vandaðir og
vel útbúnir sláttutraktorar sem mæta þörfum og
kröfum vandlátra garðeiganda
og annarra sláttumanna.
Cub Cadet sláttutraktorarnir eru öflugir og
afkastamiklir og auðveldir í notkun.
Vandaðir garðtraktorar
ÞÓR FH
Akureyri:
Baldursnes 8
603 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is