Morgunblaðið - 22.05.2020, Page 36

Morgunblaðið - 22.05.2020, Page 36
þessi,“ segir Hallur og heldur áfram: „Þetta er í rauninni bara útibaðkar því við látum renna í pottinn í hvert sinn sem við notum hann en hann tekur um 1.500-2.000 lítra. Yf- irfallið var sett undir sætin og þar af leiðandi heyrist ekkert í soginu, sem mér finnst mikill kostur.“ Minni sól, meira næði Ákveðið var að steypa vegg í spíral í kring- um pottinn og ná þannig meira næði. „Húsin hér í kring standa frekar hátt þannig að við erum með nágranna á alla kanta. Þó við náum ekki eins mikilli sól með því að hafa vegg í kringum pottinn þá fáum við næðið í staðinn. Við notum hann líka mest á kvöldin þannig að það skiptir ekki öllu,“ segir Andrea. Við pottinn er útisturta og sérinn- fluttur arinn frá Kanada sem tengjast á gasi. „Fyrst vorum við að hugsa um að brenna við í arninum en fundum út að það væri of mikið vesen að viðhalda eldinum þegar verið er í pottinum svo gaslogi varð niðurstaðan, en hann gefur ekkert síðri stemningu,“ útskýrir Hallur sem er með fleiri plön í farvatninu en bara að tengja arininn. Hinum megin við vegginn er planið að koma upp yfirbyggðu útieldhúsi með pítsuofni. Eins er búið að leggja stíg lengra út í garðinn, steypa þar plötu fyrir garðskúr sem þar á að rísa og leggja lagnir fyrir gróðurhús. „Svo reikna ég með því að við notum þennan hluta garðsins til þess að rækta salat og slíkt,“ segir hann og bendir á vesturhluta garðsins. Þá eru ótal- in plön um gufubað, garðbekk meðfram steypta veggnum og fleira. En hvernig ganga allar þessar hugmyndir upp hjá þeim hjón- um? „Við vinnum vel saman og erum nokkuð sammála um flest. En það má nota neitunar- valdið og ef því er beitt þá er bara fundin enn betri lausn sem allir eru sáttir við,“ segja þessi samhentu hjón. Ljósmyndir/Snæfríður Ingadóttir Arininn var keyptur í Kanada. Hann á að tengjast gasi enda ómögulegt að vera alltaf að fara upp úr pottinum til að bæta á eldinn. 36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2020 Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar& sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði Sláttutraktorar 40 ár á Íslandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.