Málfríður - 2016, Blaðsíða 4

Málfríður - 2016, Blaðsíða 4
Þegar ég byrjaði að kenna aftur í grunnskóla haustið 2013 var aðalnámskrá grunnskóla nýútkomin og var hún mikið lesin í mínum skóla og þá sérstaklega af skólastjórnendum. Námskráin innihélt miklar breyt- ingar á námsmati skólanna sem kölluðu á ný vinnu- brögð og nýja hugsun. Flestir fundanna næstu tvo veturna fóru í umræður um hana og hvernig hægt væri að nýta þá vinnu sem við höfðum unnið og hvað þyrfti að hugsa alveg upp á nýtt. Eftir mikla yfirlegu fóru ýmsar hugmyndir að koma og við fórum að sjá ýmsa kosti við þetta nýja námsmat, en fram að því voru margir sem litu á þetta sem til- gangslausa vinnu. Úr Excelskjali í leiðsagnarmat Þegar starfsfólkið í minni deild hóf að skipuleggja námsmat fyrir 10. bekk sáum við strax kostina við að hafa leiðsagnarmat, en það er í raun forsenda þessa nýja námsmats. Breytingin var m.a. sú að námsmatið í október, desember og mars gilti ekki lengur sem hluti af lokaeinkunn, nema ekki væri farið aftur í þá efnis- þætti. Nemendur fengu í staðinn munnlega endurgjöf þar sem farið var yfir hvað mætti betur fara og hvað þyrfti til að ná betri hæfni í efninu. Við fundum strax hvað andrúmsloftið varð miklu betra og afslappaðra þegar nemendur vissu að próf giltu ekki lengur X% af lokamati og það var heldur ekki merkjanlegt að nemendur leggðu eitthvað minna á sig. Með þessu vorum við farin að líta á veturinn sem ferli sem byrjaði strax með símati og nemendur fengu leiðsögn um hvað mætti gera betur og hvar pottur væri brotinn. Vonuðumst við svo eftir því að nemendur æfðu það sem betur mætti fara og bættu færni sína sem leiddi til meiri hæfni. Skiptir þá ekki lengur máli hvernig færnin er í byrjun vetrar svo lengi sem nemandi bætir færnina og lokahæfnin skipti svo öllu máli. Margir kennarar höfðu áhyggjur af þessu og hugsuðu að nemendur legðu sig þá síður fram í þeim verkefnum og prófum sem sett voru fyrir um veturinn en sú varð ekki raunin. Allir nemendur sem vilja ná árangri sjá að það þarf að æfa færnina allan veturinn annars næst hann ekki. Námsmatið segir því ekki lengur hvað þú manst, heldur hvað þú getur. Prófagerð og einkunnagjöf Kostirnir við nýja matskerfið frá hlið kennarans eru margvíslegir. Fyrir það fyrsta þarf nú ekki að hugsa um stig eða vægi spurningar heldur þarf að meta hvort svarið eða úrlausnin séu C hæfni, B hæfni eða A hæfni. Verkefnin/textarnir þurfa því að vera misþung/ir og spurningar misauðveldar. Í öðru lagi þurfum við að tengja hæfniviðmiðin við prófin í byrjun þannig að bæði við og nemendur vitum hvað verkefnið reynir á og í þriðja lagi er matið auðveldara þar sem við höfum gefið út matskvarða fyrir matið m.t.t. matsviðmiðanna og því er matið auðveldara. En við höfum líka rekið okkur á ýmislegt sem við getum ekki lengur notað í okkar námsmati, t.d. kros- saspurningar. Hér í skólanum erum við með mjög marga sem eru góðir í að „tippa“ á réttan kross. Þegar maður hefur samið spurningu sem á að reyna vel á A hæfni þá er ekki hægt að bjóða nemendum að geta giskað á rétt svar. Því höfum við ekki boðið upp á slíkt. Annað er að nemendur eru stundum ekki alveg eins og maður reiknar með. Nemandi getur flaskað á C spurn- ingu en svarað svo öllum B spurningunum. Þetta olli okkur þó nokkrum heilabrotum og leystum við þetta með sjóngreiningu sem var kynnt fyrir okkur á einum fundi í vetur. Hún virkar þannig að þegar við horfum á fjölda réttra C, B og A svara þá getum við metið hvað hann eigi að fá. Nemandi sem svarar þrem af fjórum C spurningum og öllum B spurningum og engri A spurningu fær B. Hér höfum við líka brugðið á það ráð að kalla nemenda til okkar og spyrja þá aftur og athuga hvort hann skilji ekki alveg örugglega viðkom- andi spurningu. Við höfum ekki lent í mörgum svona atvikum en það eru alltaf eitt og eitt. Ekki svo erfitt fyrir tungumálakennara Þessi nýja hugsun er kannski ekki svo frábrugðin þeirri hugsun sem við tungumálakennarar höfum haft. Við höfum alltaf verið með áhersluna á hæfni frekar en 4 MÁLFRÍÐUR Katrín Jónsdóttir, dönskukennari við Réttarholtsskóla Nýtt námsmat - jákvæð breyting

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.