Málfríður - 2016, Blaðsíða 17
Samband eistneskra tungumálakennara hélt ráðstefnu
í Tallinn ásamt NBR. Þetta var fyrsta alþjóðaráð-
stefna tungumálakennara í Eistlandi og því mikil-
vægt að styðja við þennan atburð. Eistnesku samtökin
(Estonian Association Evol) sem stofnuð voru 2009
komu skemmtilega á óvart. Rammi ráðstefnunnar, fyr-
irlesarar, vinnustofur, menningardagskrá og móttökur
voru til fyrirmyndar.
Ráðstefnan fór fram í Tallinn frá 9. júní til 11. júní.
Þarna komu saman kennarar 130 erlendra tungumála
frá 20 löndum: Austurríki, Ástralíu, Búlgaríu, Brasilíu,
Finnlandi, Frakklandi, Ungverjalandi, Þýskalandi,
Eistlandi, Íslandi, Ítalíu, Japan, Lettlandi, Litháen,
Hollandi, Noregi, Póllandi, Rússlandi, Slóveníu og
Tyrklandi.
Ráðstefnan var vettvangur umræðu um breytingar
á hlutverki kennara, miðlun nýrra starfsvenja við
kennslu á 21. öld með sérstakri áherslu á innsæirann-
sóknir og nýjar hugmyndir. Á ráðstefnunni voru fjórir
aðalræðumenn. Terry Lamb fyrrverandi forseti FIPLV
gerði að umræðuefni hvernig faglegt samstarf tungu-
málasamtaka, hvort sem er innlands eða milli landa,
getur stuðlað að því að efla nám og kennslu tungu-
mála og auka fjöltyngi. Mart Laanpere, eistneskur
fræðimaður, kynnti fyrir okkur hvernig til hefur tekist
með nám og kennslu tungumála með nýjum miðlum.
Martin Ehala ræddi um „vistfræði eistnesku á 21. öld“
og gerði góða grein fyrir stöðu tungumála í Eistlandi.
Franz Mittendorfer fjallaði á líflegan hátt um nemenda-
sjálfstæði og tvíþætt nám (CLIL).
Einnig var boðið upp á 31 kynningu, 8 veggspjalda-
kynningar og 7 örnámskeið.
Frá Íslandi voru fjórir fulltrúar. Fulltrúar STÍL voru
Petrína Rós Karlsdóttir, frönskukennari og formaður
STÍL, og Ásta Henriksen enskukennari. STÍL lagði
til fyrirlestur í dagskrána, þar sem Ásta gerði grein
fyrir rannsókn sem hún gerði hérlendis á sköpun í
tungumálanámi. Auk fulltrúa STÍL sóttu ráðstefnuna
Sigurborg Jónsdóttir, þýsku- og frönskukennari og
forseti NBR, og Solveig Þórðardóttir, formaður þýsku-
kennara. Á sama tíma fór fram aðalfundur NBR sem
Petrína Rós og Sigurborg sátu. Þar var Sigurborg end-
urkjörin sem forseti NBR.
Ráðstefnan minnti okkur á mikilvægi vináttunnar
milli fólks og landa. Það var einstaklega gaman að vera
einmitt í Eistlandi á þessu 25. ári frá sjálfstæði landsins
frá Sovétríkjunum, þar sem Ísland var fyrsta landið til
að viðurkenna sjálfstæðið!
Ráðstefnur styrkja böndin milli fólks og skapa ný
tækifæri og tengslanet. Það er alltaf mikilvægt að
hittast og skiptast á skoðunum og reynslusögum úr
kennslunni! Það er hreint ótrúlegt hvað við upplifum
oft það sama í ólíkum löndum. Óþarfi að finna upp
hjólið í öllum heimsálfum.
Vive l’Amitié!
MÁLFRÍÐUR 17
NBR Ráðstefna tungumálakennara
í Tallinn 9. júní til 11. júní 2016
Petrína Rós Karlsdóttir,
formaður STÍL