Málfríður - 2016, Blaðsíða 13

Málfríður - 2016, Blaðsíða 13
Við sýnum nemendum vinningssögur á skjávarpa og sendum svo okkar eigin útgáfu af kynningarbréfinu heim til foreldra. Við útbúum og dreifum mismunandi teiknimyndarömmum fyrir yngri nemendur og ræðum við eldri nemendur um ritun í tölvu, kennum á leið- réttingarforrit í Word, sýnum dæmi um vandaða upp- setningu, útlit, snyrtimennsku, skil í plastmöppu o.þ.h. Nemendur fá svo um tvær vikur í skólanum til ritunar og þeir mega líka gjarnan vinna að ritun- inni heima. Skilafresturinn er um miðjan október en dregst stundum svolítið og síðan tekur við yfirlestur. Um mánaðamótin október/nóvember afhendum við nemendum þær aftur, allar með jákvæðri umsögn og stundum ábendingum um það sem betur megi fara. Að því loknu höldum við hátíð í sal skólans þar sem Vinningshafar ásamt Óla og Fanneyju. við tilkynnum hvaða smásögur fara á uppskeruhátíð á bókasafni bæjarins í desember. Árið 2015 voru þær um 30 talsins og var um að ræða allskonar sögur, ekki endilega þær bestu. Við veitum bókaverðlaun fyrir þær þrjár sögur sem við teljum hafa skarað fram úr í hverj- um flokki fyrir sig og tilkynnum loks hvaða smásögur verða sendar í landskeppnina. Þeir sem eiga sögurnar sem fara í landskeppnina fá annan skilafrest fram í miðjan nóvember til að betrumbæta söguna ef þeir vilja, sem er þó alls engin skylda að gera. Við bendum nemendum á það sem að okkar mati mætti betur fara, s.s. varðandi stafsetningu, málfar o.þ.h. og eftirlátum svo nemendum að vinna úr því. Við höfum alla tíð lagt megináherslu á innihald sögunnar og skilum hiklaust inn smásögu með stafsetningarvillum ef svo ber undir. MÁLFRÍÐUR 13

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.