Málfríður - 2016, Blaðsíða 8

Málfríður - 2016, Blaðsíða 8
Grein þessi er byggð á rannsókn greinarhöfundar á vorönn 2014. Þegar rannsóknin var framkvæmd voru tölvur og tækni þegar orðin hluti af daglegu lífi flestra. Síðan þá hefur almenn tækninotkun auk krafna nútímasamfélagsins til tæknikunnáttu stöðugt aukist. Í Aðalnámsskrá framhaldsskóla frá árinu 2011 kemur fram að hlutverk framhaldsskóla sé meðal ann- ars að búa nemendur undir frekara nám og þátttöku í atvinnulífinu (Aðalnámskrá framhaldsskóla, 2011, bls. 7). Mætti því gera ráð fyrir að tæknin væri orðin stór hluti af nútímaskólastarfi. Spurningin um hversu mikið tæknin væri nýtt í kennslu vakti áhuga greinar- höfundar og ákvað hún því að kanna stöðu tækninotk- unar í framhaldsskólum landsins. Þessar upplýsingar voru svo nýttar í M.Ed.-ritgerð hennar til útskriftar frá Háskóla Íslands. Grein þessi er stutt samantekt á niðurstöðum rannsóknarinnar. Rannsókn Rannsóknin var eigindleg og byggði á hálfopnum við- tölum sem tekin voru á vorönn 2014. Við rannsóknarvinnu voru eftirfarandi spurningar settar fram: 1. Hver eru viðhorf enskukennara gagnvart notkun tölvutækni í kennslu og hvernig nýta þeir hana? 2. Hvernig meta viðmælendur aðstöðu sína á vinnustaðnum til tölvu- og tækninotkunar? Úrtak Sjö enskukennarar með kennsluréttindi, starfandi við jafnmarga framhaldsskóla tóku þátt í rannsókninni. Viðmælendur voru af báðum kynjum, tveir karlmenn og fimm konur á aldrinum 28 – 44 ára. Kennslureynsla viðmælenda var frá einu og upp í 16 ár. Notkun og viðhorf viðmælenda til tækni í kennslu Þegar tekin voru saman svör viðmælenda varð ljóst að þeir höfðu ólíkar skoðanir á notkun tækni í námi en voru almennt jákvæðir gagnvart tækninni sjálfri og eigin persónulegu notkun. Viðmælendur töldu tölvur henta vel í kennslu þegar hægt væri að nýta þær til yfirferðar verkefna og villugreininga, ásamt því að tæknin þótti auka skilvirkni í undirbúningi kennslu jafnt sem og í kennslunni sjálfri. Upplýsingatæknin var ennfremur talin auðvelda kennurum að finna gögn til kennslu og gera þeim kleift að hafa efnið fjölbreyttara. Notkun viðmælenda á tölvutækni í kennslu var mismikil en allir virtust beita henni að einhverju leyti. Netið var þá helst nýtt til undirbúnings, upplýsinga- leitar, notkunar netorðabóka og til að finna efni ætlað til að æfa hlustun á markmálinu. Sumir nýttu netið á fjölbreyttan hátt í sinni kennslu en notkun annarra var einhæfari. Öllum viðmælendum þótti henta vel að nota tækni í enskukennslu hvað varðaði framboð efnis á netinu. Hinsvegar var skoðanamunur á því hversu mikið ætti að nýta tölvur og tækni í kennslunni sjálfri. Sumir reyndu að stjórna tölvu- og símanotkun nemenda sinna meðan aðrir gáfu nemendum lausari taum. Þeir viðmælendur sem voru jákvæðari gagnvart notkun tölvutækni í tungumálanámi, virtust hafa þá skoðun sameiginlega að nemendur bæru ábyrgð á eigin námi og að þeir þyrftu að læra að vinna með tæknina. Þeir viðmælendur sem höfðu efasemdir um notkun tölvutækni í náminu virtust að einhverju leyti telja að nemendum væri ekki fullkomlega treystandi fyrir eigin námi og það þyrfti að hafa vit fyrir þeim hvað varðar tölvu- og símanotkun. Hvernig meta viðmælendur aðstöðu sína á vinnustaðnum til tölvu- og tækninotkunar? Aðstaða á vinnustað og samstarfsfélagar virtust hafa afgerandi áhrif á hvort viðmælendur nýttu sér tölvu- tækni í sinni kennslu. Ekki var þó hægt að alhæfa um hvort afstaða viðmælenda væru önnur ef þeir störfuðu við aðra skóla eða með öðrum hópi samstarfsfélaga en leiða má líkur að því. Einn viðmælandi sagði að hann myndi eflaust nýta tækni meira í kennslu ef hann hefði fleiri fyrirmyndir meðal samkennara í þeim efnum. 8 MÁLFRÍÐUR Tölvustutt tungumálanám á framhaldsskólastigi – tæknin sem stuðningstæki í enskukennslu Magndís Huld Sigmarsdóttir, enskukennari við Menntaskólann að Laugarvatni

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.