Víkurfréttir - 29.12.2020, Blaðsíða 15
Flestir eiga eftir að minnast ársins 2020 með hryllingi en það
á sennilega ekki við um Sveindísi Jane Jónsdóttur. Afreka-
listi hennar á árinu er langur, hún fór á láni frá Keflavík til
Breiðabliks og varð Íslandsmeistari með þeim, þá varð hún
markahæst og valin sú besta í Pepsi Max-deildinni. Sveindís
kom sem nýliði inn í A-landsliðið, fór beint í byrjunarlið þar
sem hún stóð þig ótrúlega vel og eru þær komnar í úrslita-
keppni EM – og síðast en ekki síst er Sveindís búin að landa
samningi við þýska knattspyrnuliðið Wolfsburg, eitt besta
félagslið í Evrópu. Blaðamaður Víkurfrétta settist niður með
Sveindísi Jane til að fá að kynnast henni aðeins betur.
Samningu við eitt
besta lið Evrópu
„Þetta er búið að vera frábært og
viðburðarríkt ár fyrir mig og ég er
eiginlega bara svolítið þakklát fyrir
það,“ segir Sveindís Jane. „Ég á ör
ugglega bara eftir að líta til baka og
hugsa geggjað fyrir mig.“
– Svo er það nýjasta, samningur við
Wolfsburg – eitt besta lið í Evrópu.
„Já, ég er bara rosalega spennt fyrir
þessu. Ég er mjög ánægð og þakklát
fyrir þetta tilboð sem ég fékk og ég
bara gat ekki neitað þessu.“
– Ferðu beint til Þýskalands?
„Nei, ég verð lánuð í eitt ár til Kristi
anstad í Svíþjóð. Wolfsburg er bara
að tryggja sér mig og vilja lána mig í
sterkari deild en hérna á Íslandi. Ég
er mjög sátt við þetta skref.“
Hefur bara verið í
kringum gott fólk
„Ég er uppalin í Keflavík, á íslenskan
pabba en mamma mínn er frá Ghana
í Afríku. Ég á fimm systkini en engin
alsystkini. Bróðir minn og systir,
mömmu megin, búa hérna á Íslandi
en svo á ég systkini frá pabba sem
búa í útlöndum.“
– Hefurðu komið til Ghana?
„Já, ég hef einu sinni komið til Ghana,
þá var ég fimm ára svo ég man lítið
eftir því. Við fjölskyldan ætluðum
þangað í september en faraldurinn
eyðilagði það, því miður. Það verður
að bíða betri tíma.“
– Áttu mörg skyldmenni þar?
„Já, alveg rosalega mörg – þannig að
það hefði verið gaman.“
– Og ertu í sambandi við þetta fólk?
„Nei, ekki ég en mamma heldur góðu
sambandi við þau öll.“
– Þú gekkst í skóla hérna og átt þína
vini, fannstu aldrei fyrir því að þú
værir öðruvísi en aðrir?
„Nei, alls ekki. Þetta er mjög góð
spurning en ég hef aldrei lent í
neinu svoleiðis og er mjög þakklát
fyrir það. Ég hef bara verið í kringum
mjög gott fólk og á mjög góðan
vinnahóp, svo það hefur aldrei verið
neitt vesen.“
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
Sveindís undirritar samninginn við Wolfsbu
rg. Með henni
á myndinni er kærasti hennar, Sigurður Ing
i Bergsson.
Sveindís Jane fór beint inn í byrjunarlið landsliðsins
og skoraði tvö mörk í sínum fyrsta leik. Mynd: Fótbolti.net
... ég verð lánuð
í eitt ár til
Kristianstad í
Svíþjóð. Wolfsburg
er bara að tryggja
sér mig og vilja
lána mig í sterkari
deild en hérna á
Íslandi ...
Við þökkum íbúum, fyrirtækjum og samstarfsaðilum
á Reykjanesi frábært samstarf á árinu sem er að líða
og vonum að allir fari öruggir inn í það nýja.
Starfsfólk Securitas Reykjanesi
Farsælt komandi ár
VÍKurFrÉttir á suðurNEsjum Í 40 ár // 15