Vesturbæjarblaðið - dec 2020, Page 22

Vesturbæjarblaðið - dec 2020, Page 22
22 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2020 Verslun sem vert er að heimsækja Í Austurveri við Háaleitisbraut er vel falið leyndarmál. Það er bráðsmellinn nytjamarkaður, Basar Kristniboðssambandsins sem rekinn er til fjáröflunar fyrir starf þess. Hreyfingin hefur starfað í Eþíópíu síðan 1956 og Kenía 1978. Á þessum árum hafa verið byggðir fjölmargir skólar og heimavistir, auk þess sem ýmis þróunarverkefni hafa verið styrkt. Kristniboðssambandið er einnig með starf í Japan auk þess sem það starfar á Íslandi. Markaðurinn er rúmlega 10 ára gamall. Hann var opnaður á Grensásvegi en flutti í húsnæði Landsbankans í Austurveri, 2011 og verið þar síðan. Á Basarnum er einn launaður starfsmaður, öll önnur störf eru í höndum sjálfboðaliða. Án aðkomu þeirra væri rekstur verslunarinnar mjög erfiður og kostnaðarsamur. Á Basarnum fæst hreinlega „allskonar“ notaður fatnaður, bækur af betri gerðinni, falleg gjafa- og skrautvara, safngripir af ótrúlegustu gerðum og ýmis borðbúnaður. Versluninni er skipt niður; þannig er fatnaður sér, sömuleiðis gjafavaran og bækurnar sér. Nú er jólavertíðin og fæst skemmtilegt og fallegt jólaskraut og munir á hagstæðu verði. Stolt og prýði markaðsins er þó fólgið í bóksölunni. Allar bækur eru flokkaðar og þeim raðað eftir höfundarnafni. Það auðveldar aðgengi og leit að bókum. Verðmætari og sjaldgæfar bækur eru svo í sér hillum. Besta endurvinnslan er fólgin í endurnýtingu. Með því að gefa eða kaupa muni á Basarnum, styrkjum við gott málefni um leið og við endurnýtum þá. Ótrúlegt úrval allskonar muna má finna á Basarnum. Basarinn í Austurveri Svavar Björnsson og Karl Jónas Gíslason taka vel á móti viðskiptavinum, hvort sem þeir kaupa eða koma færandi hendi. Þú færð KR-vörurnar hjá okkur! Ármúli 36 • Reykjavík 108 S: 588 1560 Óskum KR-ingum og öllum Vesturbæingum gleðilegra jóla. VIÐ SUÐURSTRÖND Netverslun: systrasamlagid.is

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.