Skessuhorn - 10.06.2020, Blaðsíða 32
MIÐVIKUDAGUR 10. júNÍ 202032
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Akranesleikarnir, hið árlega sumar-
mót Sundfélags Akraness fyrir 14
ára og yngri, verður haldið í jað-
arsbakkalaug dagana 12.-14. júní
næstkomandi. Mótið verður með
breyttu sniði í ár til að mæta leið-
beiningum stjórnvalda vegna Co-
vid-19 faraldursins.
Verðlaun verða veitt fyrir 1.-3.
sæti í öllum einstaklings- og boð-
sundsgreinum nema í hnokka- og
hnátuflokki, þar sem allir keppend-
ur fá viðurkenningu fyrir þátttöku.
Nánar um mótið á vef Sundfélags
Akraness, www.iasund.is.
kgk/ Ljósm. úr safni/ kgk.
Kári samdi á dögunum við króat-
íska markvörðinn Dino Hodzic.
Hann vermdi varamannabekkinn
hjá ÍA á síðasta keppnistímabili,
en var áður á samningi hjá Vejle
BK í Danmörku. „Dino er mik-
ill liðsstyrkur fyrir Káraliðið enda
frábær markvörður og flottur kar-
akter,“ segir í tilkynningu á Fa-
cebook-síðu Kára.
kgk
Knattspyrnumaðurinn Garðar Gunn-
laugsson hefur skrifað undir samning
við Kára. Hann lagði skóna á hilluna
síðasta haust, en hefur nú ákveðið að
taka þá fram að nýju og leika með
Káramönnum í 2. deildinni í sumar.
Garðar þarf vart að kynna fyrir
knattspyrnuáhugamönnum. Hann
hóf meistaraflokksferilinn með ÍA
árið 2001 og varð Íslandsmeistari
með liðinu sama sumar og bikar-
meistari 2003. Árið 2004 gekk hann
til liðs við Val áður en leiðin lá í at-
vinnumennskuna. Á árunum 2006 til
2011 lék Garðar með Dunfermline í
Skotlandi, IFK Norrköping í Svíþjóð,
CSKA Sofiu í Búlgaríu, LASK Linz í
Austurríki og SpVgg Unterhaching í
Þýskalandi. Þaðan lá leiðin aftur heim
á Akranesi árið 2012 og með Skaga-
mönnum lék Garðar þar til árið 2018
að hann gekk til liðs við Val. „Þessi
mikli markaskorari státar af löngum
og farsælum ferli í efstu deildum með
ÍA og Val, en þar hefur hann skorað
yfir 100 mörk,“ segir í tilkynningu á
Facebook-síðu Kára. kgk
Knattspyrnufélagið Kári hefur sam-
ið við Gunnar Einarsson um að taka
við þjálfun liðsins. Var hann val-
inn úr hópi átta umsækjenda. Eins
og áður hefur verið greint frá var
jón Aðalsteinn Kristjánsson ráðinn
þjálfari liðsins síðasta haust en þurfti
að láta af störfum nú í vor. Kára-
menn hófu leit að þjálfara og hafa
núna ráðið Gunnar til starfsins.
Gunnar var aðstoðarþjálfari Þor-
steins Gíslasonar hjá Leikni R. frá
2009-2012 og var um tíma aðalþjálf-
ari félagsins. Hann hefur að undan-
förnu þjálfað hjá Val og starfar sem
rekstrarstjóri Mjölnis.
Á sínum leikmannaferli varð
Gunnar fjórfaldur Íslandsmeist-
ari með KR og Val og tvisvar bik-
armeistari. Hann lék auk þess sem
atvinnumaður í Hollandi og Eng-
landi. kgk
Sex ungir og efnilegir leikmenn
fóru á dögunum í lán frá Víkingi
Ó til nágrannafélagsins Snæfells.
Þetta voru þeir Anel Crnac, Brynjar
Vilhjálmsson, Leó Örn Þrastarson,
Sanjin Horoz, Sigurjón Kristinsson
og Þráinn Sigtryggsson. Urðu þeir
allir löglegir með Snæfelli í bikar-
leiknum sem spilaður var gegn Sel-
fossi síðasta föstudagskvöld. Þetta
var gert til að hjálpa piltunum að
öðlast leikreynslu í meistaraflokks-
fótbolta og ef vel gengur hjá þeim á
Víkingur Ó möguleika á að kalla þá
til baka í ágúst. Fjórir af piltunum
voru í byrjunarliði kvöldsins; þeir
Anel, Brynjar, Leó Örn og Sigur-
jón en þeir Sanjin og Þráinn voru
ekki með það kvöld. Ferð Snæfells
á Selfoss í þennan bikarleik var þó
ekki til fjár en leikurinn endaði 5 -
0 fyrir Selfossi. Strákarnir í Snæ-
felli láta þó engan bilbug á sér finna
og mæta Birninum á Fjölnisvelli -
gervigrasinu laugardaginn 20. júní
klukkan 14:00. Það er einnig gaman
að segja frá því að Benedikt Björn
Ríkarðsson og Andri Már Magna-
son sem báðir hafa spilað með Vík-
ingi í yngri flokkum eru nú einn-
ig skráðir í Snæfell og komu báð-
ir inná í bikarleiknum. Á meðfylgj-
andi mynd eru fimm þeirra. þa
Þessi unga kona æfði spretthlaup
af kappi á afleggjaranum að Bæjar-
gili í Húsafelli á laugardaginn. Um-
gjörðin var sannarlega ekki til að
kvarta yfir og veðrið sömuleiðis.
mm
Gunnar Einarsson
Ljósm. fengin af Facebook-síðu Kára.
Gunnar Einarsson þjálfar Kára
Garðar Gunnlaugs í Kára
Garðar Gunnlaugsson í Kárabúningn-
um. Ljósm. Knattspyrnufélag Kára.
Markvörðurinn Dino Hodzic í búningi
Kára í Akraneshöllinni.
Ljósm. Knattspyrnufélag Kára.
Dino Hodziz
í Kára
Sprett úr spori
Akranesleikarnir um helgina
Sex piltar lánaðir til Snæfells