Skessuhorn - 10.06.2020, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 10. júNÍ 202016
Aflatölur fyrir
Vesturland
30. maí - 5. júní
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes: 29 bátar.
Heildarlöndun: 41.859 kg.
Mestur afli: Eskey ÓF-80:
5.108 kg í þremur róðrum.
Arnarstapi: bátar.
Heildarlöndun: 68.876 kg.
Mestur afli: Bárður SH-811:
6.822 kg í þremur róðrum.
Grundarfjörður: 26 bátar.
Heildarlöndun: 552.406 kg.
Mestur afli: Sigurborg SH-12:
88.589 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 40 bátar.
Heildarlöndun: 228.523 kg.
Mestur afli: Gunnar Bjarna-
son SH-122: 31.048 kg í
tveimur róðrum.
Rif: 24 bátar.
Heildarlöndun: 384.620 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH-270:
79.385 kg í tveimur löndun-
um.
Stykkishólmur: 26 bátar.
Heildarlöndun: 105.804 kg.
Mestur afli: Djúpey BA-151:
10.849 kg í fjórum róðrum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Sigurborg SH-12 - GRU:
88.589 kg. 2. júní.
2. Áskell ÞH-48 - GRU:
75.938 kg. 1. júní.
3. Farsæll SH-30 - GRU:
69.940 kg. 2. júní.
4. Hringur SH-153 - GRU:
67.908 kg. 4. júní.
5. Runólfur SH-153 - GRU:
66.253 kg. 1. júní.
-kgk
Egill Hansson og Samúel Halldórs-
son hafa í vetur verið með nám-
skeið fyrir elsta stig í Grunnskól-
anum í Borgarnesi. Þar kenna þeir
krökkunum hlutverkaspilið D&D,
Dýflissur og Drekar. Um er að
ræða spunaspil þar sem ímyndunar-
aflið og sköpunargáfan er notuð til
að búa til sögu. Einn leikmaður er
„master“ og sér hann um að stjórna
söguþræðinum og búa til ákveð-
inn söguheim. Hinir eru spilarar og
búa allir til sína eigin sögupersónu
sem getur í raun verið hvernig sem
er. Hver og einn skrifar niður lýs-
ingu á sinni persónu á blað og skrif-
ar hjá sér allt sem kemur fyrir pers-
ónuna í sögunni á meðan á spilinu
stendur. „Persónurnar geta í raun
verið hvernig sem er, þetta geta
verið álfar, hetjur, tröll eða eitt-
hvað allt annað. Svo gefur hver og
einn sinni persónu ákveðinn kar-
akter, það getur verið að viðkom-
andi sé huglaus, mjög hugrakkur,
sterkur, fljótur eða eitthvað annað,“
útskýra þeir Egill og Sammi í sam-
tali við Skessuhorn. Notaðir eru
Sammi sögustjóri og krakkarnir fylgjast áhugasamir með.
Kenna krökkum hlutverkaspil með
ímyndunaraflið og sköpunargáfuna að vopni
Rætt við Egil Hansson og Samúel Halldórsson um hlutverkaspilið D&D
Samúel Halldórsson og Egill Hansson eru með námskeið í hlutverkaspili fyrir krakka í Borgarnesi. Ljósm. arg
Egill að skapa sögu fyrir krakkana.
sérstakir teningar og reglubók sem
stjórnar því hvernig atburðir í sög-
unni fara. „Masterinn segir söguna
en hver spilari stjórnar svo hvernig
sín persóna bregst við aðstæðum í
sögunni. Spilararnir kasta svo upp
20 hliða teningi sem segir til hversu
vel persónunni tekst að gera það
sem hún ætlar sér,“ útskýrir Egill.
Fleiri nördar til
Egill kynntist D&D þegar hann
var um 14 ára og varð strax hrifinn.
„Ég fann mig ekki alveg með jafn-
öldum mínum en þegar ég kynnt-
ist D&D kynntist ég líka nokkr-
um eldri strákum sem voru á kafi í
þessu og þá sá ég að það væru al-
veg fleiri svona nördar eins og ég,“
segir Egill og hlær. Hann kynnti
Samma fyrir D&D þegar þeir voru
í menntaskóla og hafa þeir ver-
ið að spila saman síðan. „Þetta er
svo skemmtilegt og frábær leið til
að fá útrás fyrir sköpunargáfuna,“
segir Sammi og Egill tekur undir
það. Síðastliðið haust var haft sam-
band við Samma og hann beðinn
um að halda D&D námskeið fyrir
elsta stig í Grunnskólanum í Borg-
arnesi. Hann fékk Egil til liðs við
sig og annan félaga þeirra og héldu
þeir tveggja daga námskeið sem
hluta af þemadögum í skólanum.
Hitti þetta í mark og voru margir
krakkanna sem vildu fá fleiri nám-
skeið. Var þá ákveðið að fá Egil
og Samma til að vera með lengri
námskeið í félagsmiðstöðinni fyrir
kakka í 7. – 10. bekk. „Ég vildi að
það hefði einhver verið með svona
námskeið í skólanum þegar ég var
á þessum aldri. Þetta er svo frábær
leið fyrir krakka að ná saman og
að styrkja vináttu. D&D snýst svo
mikið um samvinnu og krakkarnir
hverfa alveg inn í söguna. Allir eru
að vinna saman og halda ótrúlega
mikið með persónum hvers annars
og vilja að öllum gangi vel,“ segir
Egill og bætir við að í sumar ætli
þeir að verða með námskeið fyrir
krakka í 4. – 6. bekk í Borgarnesi.
Söguefnið getur verið
hvað sem er
En hvernig kvikna hugmyndirn-
ar að sögunum í D&D? „Maður
er alltaf að finna söguefni og oft er
maður í aðstæðum þar sem kvikn-
ar hugmynd sem hægt væri að nota
í sögu og hausinn er því fullur af
hugmyndum. Það er aldrei neitt
mál fyrir mann að búa til sögu þeg-
ar hugmyndaflugið er gott,“ segir
Sammi og Egill tekur undir það.
„Ég er með lista í tölvunni minni
af hugmyndum sem mig langar að
nota til að gera sögur,“ segir Eg-
ill tekur sem dæmi hugmynd sem
hann er með af sögu sem teng-
ist þungarokki. „Þungarokk snýst
mikið um myrkur, beinagrindur,
undirheima og alls konar svoleið-
is og ein hugmyndin mín snýst ein-
mitt um að gera sögu út frá því. En
sögurnar geta verið um hvað sem
er, það eina sem þarf er ímynd-
unarafl,“ segir Egill. En er sögu-
maðurinn þá búinn að gera sög-
una áður en spilið hefst? „Ekki al-
veg. Hann er með tilbúna ákveðna
hugmynd og beinagrind að sögu
en þar sem spilararnir geta líka
tekið ákvarðanir í sögunni sjálfri
getur sögumaðurinn ekki séð sög-
una alveg fyrir sér svo hann verður
að geta unnið út frá þeim aðstæð-
um sem koma upp. Sögumaðurinn
getur ekki ákveðið að persónurnar
fari til hægri ef spilararnir vilja svo
láta þær fara til vinstri. Maður þarf
því að vera tilbúinn að búa til sögu-
þráðinn bara á meðan sagan er að
gerast, þetta er í raun bara spuni,“
svarar Sammi.
Frábærar viðtökur
Spurðir hvernig krökkunum líki
námskeiðin segja þeir viðtökurn-
ar hafa farið langt fram úr þeirra
vonum. „Það er frábært að sjá hvað
þetta gerir mikið fyrir þau og hvað
þeim þykir þetta skemmtilegt. Þau
eru svo ótrúlega flott að vinna sam-
an og lifa sig alveg inn í sögurnar.
Við erum í þrjá klukkutíma í einu
og tíminn hverfur bara og þau eru
aldrei tilbúin að hætta þegar tím-
inn er búinn,“ segir Egill. „Sumir
krakkarnir eru búnir að kaupa sína
eigin teninga og eru farnir að spila
líka sjálfir. Við fréttum að í skól-
anum þurfi kennararnir að minna
þau á að hætta að spila þegar þau
koma í tíma því þau eru þá að spila
í frímínútum og eiga erfitt með að
fara úr karakter þegar þau koma í
tíma,“ segir Sammi og hlær.
arg/ Ljósm. glh.