Skessuhorn


Skessuhorn - 16.08.2020, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 16.08.2020, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 16. SEpTEMBER 202020 Í byrjun mánaðarins var nýtt bíla- og sprautuverkstæði opnað við Dalbraut á Akranesi, við hliðina á Smáprenti. Verkstæðið Brautin var þar til húsa í fjölmörg ár þar til því var lokað vorið 2017. Einn af eig- endum Brautarinnar, Jónas Theó- dór Sigurgeirsson, stendur að opn- un nýja verkstæðisins, sem hefur fengið nafnið Akbrautin. Jónas hefur starfað við bifvéla- og boddíviðgerðir svo gott sem alla tíð. Hann rak Brautina ásamt bræðrum sínum en þeir tóku við verkstæðinu af föður þeirra. Þegar verkstæðinu var lokað fyrir rúm- um þremur árum fékk Jónas vinnu á verkstæðinu hjá Norðuráli og á Elkem verkstæðinu fyrir Meitil, en ákvað að hætta þar störfum síðast- liðið vor og hefja eigin rekstur á ný. „Ætli þetta sé ekki bara smá ævin- týraþrá hjá manni. Ég hafði það mjög fínt inni á Grundartanga. Þar var gott fólk og fínn vinnustaður en ég hafði bara meiri áhuga á fólks- bíla- og boddíviðgerðum og lang- aði að fara aftur í það,“ segir Jón- as. Hann tekur að sér réttingar og sprautun og allar boddíviðgerðir. „Ég tek að mér viðgerðir fyrir öll tryggingafélögin og einnig fyrir einstaklinga,“ segir Jónas í samtali við Skessuhorn. arg Frá og með síðasta föstudegi var baðlaugin Guðlaug við Langa- sand opnuð að nýju eftir lokun fyrr í sumar. Laugin verður opin virka daga nú í september frá klukkan 16-20 en á laugardögum og sunnu- dögum frá klukkan 10-18. mm Það er margt sem gleður mig við að vera kominn heim til Íslands eftir dvöl mína í Níger í Afríku. Það sem er ofarlega á þeim lista er að geta byrjað morguninn minn með góð- um kaffibolla. Það var alveg hægt að fá kaffi í Níger, en það voru helst bara útlendingar eins og ég sem keyptu það í rándýru útlend- ingabúðunum. Meðal almennings í Níger er ekki mikil hefð fyrir kaffi- drykkju, mun algengara er að fólk þar fái sér ákveðna tegund af svörtu tei og helst vel sykrað ef það er mögulegt. Algengt er að sjá menn sitja saman við göturnar í höfuð- borginni Niamey eftir bænastund- irnar. Þeir koma sér spekingslega fyrir á sandinum og drekka brenn- andi heitt te í brennandi hita. Ég gat ómögulega skilið hvernig hægt var að drekka heitan drykk í 45°C hita, en mismunandi erum við og líklegast ætti manneskja frá Níg- er erfitt með að skilja okkar siði og venjur. Sérstaklega ef hún kæmi til Íslands um miðjan vetur og myndi reka augun í biðröð af Íslending- um, mögulega standandi í blind- byl á myrku kvöldi, að bíða eftir að komast inn í sjoppuna til að kaupa sér rjómaís eða bragðaref. En aftur að kaffinu, ég kynntist kaffinu fyrst þegar ég vann í smíða- vinnu 13 ára gamall í Borgarnesi. Þetta var fyrsta alvöru sumarvinn- an mín og þegar kaffihléið kom þá mætti ég inn á kaffistofuna hjá körl- unum með Andrésblað og kókó- mjólk. Körlunum var flestum alveg sama um matarvenjur þessa drengs, en var þó einn smiðsneminn þarna sem fussaði yfir þessu og sagði að ég ætti að vera eins og alvöru karl- maður fyrst ég væri kominn í alvöru vinnu. Andrésblaðið og kókómjólk- in hvarf úr höndunum á mér og í staðinn fékk ég klámblað og kaffi- bolla. Blaðið var svo sem áhuga- vert en mikið ógurlega fannst mér kaffið vont á bragðið. Mögulega hefði kaffið verið betra með mjólk og sykri, en smiðsneminn var stað- fastur á því að þær viðbætur væru bara fyrir kerlingar eða menn sem girnast aðra karlmenn. Það bætti ekki úr skák að þegar neminn hellti upp á kaffið sjálfur þá var það sér- staklega hræðilegt, mögulega var það hrein leti, vankunnátta eða vit- leysa hjá honum en hann átti það til að endurnota korginn og pokann í uppáhellingunni - þá var tekinn biti af kaffinu frekar en sopi. En tíminn leið og ég hlustaði á þessa vitlausu visku hans um karlmennsku í gegn- um sumarið og hellti þessum við- bjóðslega vökva ofan í mig í hverri pásu. Brenglaðar og bjánalegar hugmyndir um karlmennsku eru víða en ég man að ég var efins, ég man að á meðan ég sötraði svarta vökvann var ég mikið að hugsa og pæla - líklegast væri betra að lifa lífinu eins og brosandi barn með kókómjólk en að verða svona leið- inlegur karlmaður með kaffi. Kaffið hefur verið samtvinnað ís- lensku þjóðarsálinni og lífinu hér á landi síðan það fyrst fluttist hing- að inn í kringum 1760. Kaffið var lengi vel hinn mesti munaður og var bara hellt upp á við sérstök til- efni, en eftir því sem tíminn leið fór drykkurinn að verða hluti af daglegu lífi landsmanna. Ætli hver kynslóð hafi ekki þurft að upplifa kaffispekinga eins og smíðanem- ann minn, einhver svona aðili sem otaði þessum óþverra að þeim sem yngri voru ásamt einhverjum mis- gáfulegum ráðleggingum. Sá grun- ur læðist að mér að það hafi verið einhverskonar kaffispekingur sem bjó til þær kaffikreddur sem séra Jónas Jónasson segir svo skemmti- lega vel frá í bókinni sinni Íslenzkir þjóðhættir. Þar kemur meðal ann- ars fram að; “ef maður lætur rjóm- ann í kaffið á undan sykrinum, á maður ekki að giftast í 7 ár” og “maður verði ófríður af að drekka heitt kaffi, en fríkki við að drekka það kalt, og þeir, sem drekka mikið kaffi, verði geðvondir.” Marga bollana drakk ég þarna um sumarið og veit ég ekkert hvort ég hafi fríkkað eða orðið geðvond- ur við drykkjuna, en þegar sumrinu lauk fór ég aftur að drekka kókó- mjólkina mína. Það var einfald- lega vegna þess að ég vandist aldrei bragðinu, mér fannst kaffið þarna á kaffistofunni hreinlega bara vont. Síðan þá hef ég kvartað í gegnum tíðina yfir vondu kaffi, en þá hafa þeir sem eldri eru oft verið snögg- ir að benda mér á þá staðreynd að ég sé hreinlega of ungur til að muna eftir alvöru slæmu kaffi. Það er bara lúxus að geta kvartað yfir baunakaffi, því lengi vel var siður að nota meira en bara baunir í ís- lenska kaffið. Kaffibætir, oft kallaður “export”, var fluttur inn til Íslands frá því um 1870 og var hann notaður til að drýgja kaffið. Kaffibætir var gerð- ur úr rótum kaffifífils eða sikoría, þetta var þurrkað, ristað og mulið og blandað saman við malað kaffi, stundum allt að því til helminga. Ekki líkaði öllum kaffibætirinn þó hann hefði verið vinsæll fram und- ir miðja síðustu öld. Halldór Lax- ness var einn af þeim sem voru alls ekki hrifnir af þessari útgáfu af sop- anum: „Ég get ekki nema af sér- stakri kurteisi drukkið kaffi með því bragðvonda og heilsuspillandi skít- brasi samanvið, sem í auglýsíng- um er nefnt ,,kaffibætir“, en alþýða nefnir ýmist rót, export eða sik- korí.” Vert er að taka fram að O.Jo- hnson & Kaaber flutti inn þennan kaffibæti með nafninu Ludvig Da- vid, en eins og Laxness segir þá var þetta af einhverjum ástæðum oftast kallað eitthvað annað í daglegu tali. Skemmtilegt þykir mér að þetta hafi verið kallað rót, og þá veit ég loksins hvaðan lýsingin er tilkomin sem við notum enn í dag, það er að segja að tala um rótsterkt kaffi. Þó að ég hafi sloppið við kaffibæt- inn og verið svo heppinn að drekka alvöru baunakaffi þarna í vinnunni, þá var minningin um bollann slæma samt svo sterk að ég vildi ekkert drekka þetta sull. Tíminn leið og einhvern tímann á þessum ung- lingsárum var ég að lokum staddur í fjölskylduboði. Stundin var runn- in upp, fyrir framan mig voru tvær hitakönnur, ein með kakói og hin með kaffi, og kakóið var að klárast. Ég smakkaði af forvitni kaffið aft- ur. Nýlagað og vel sterkt fór það í bollann og ilmurinn greip mig al- veg. Þegar fyrsti sopinn kom með þetta djúpa bragð og gaf þessa hlýju þá kolféll ég alveg. Þessi drykkur var alveg hreint himneskur, þetta var svo langt frá því að vera svarta karlmennskuleðjan úr smíðavinn- unni, ég skildi bara ómögulega af hverju þetta var svona gott. Ég hef verið ástfanginn af kaffi frá þessari stundu, og þegar ég horfi til baka þá held ég að þessi fyrsti viðbjóðs- legi slæmi kaffibollinn í smíðavinn- unni hafi í raun bara verið bless- un. Bragðlaukarnir mínir vöndust því að drekka þetta heimsins versta kaffi frá smíðanemanum - og bless- unin var þá sú að eftir þá bragðlegu þrekraun er allt annað kaffi him- neskt í samanburðinum. Þessi lexía kemur mér oft til hug- ar. Þegar eitthvað kemur upp hjá mér og lífið gengur illa þá hugsa ég stundum um að þetta ástand sé bara slæmur kaffibolli, ég þurfi bara að klára hann. Ég veit nefnilega að þegar lífið verður betra og kemur loksins með góða kaffið þá mun ég kunna svo miklu betur að meta það - því ég hef upplifað og man svo vel eftir lífsins vonda kaffibollanum. Geir Konráð Theódórsson Pstiill - Geir Konráð Theódórsson Jónas hefur opnað nýtt verkstæði á Akranesi. Akbrautin opnuð á Akranesi Svipmynd úr Guðlaugu frá 4. júlí í sumar. Guðlaug við Langasand opnuð að nýju Gömul blaðaauglýsing um kaffibæti. Verður lífið betra með slæmum kaffibolla? Kaffibætir eða rót.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.