Skessuhorn - 16.08.2020, Page 20
MIÐVIKUDAGUR 16. SEpTEMBER 202020
Í byrjun mánaðarins var nýtt bíla-
og sprautuverkstæði opnað við
Dalbraut á Akranesi, við hliðina á
Smáprenti. Verkstæðið Brautin var
þar til húsa í fjölmörg ár þar til því
var lokað vorið 2017. Einn af eig-
endum Brautarinnar, Jónas Theó-
dór Sigurgeirsson, stendur að opn-
un nýja verkstæðisins, sem hefur
fengið nafnið Akbrautin.
Jónas hefur starfað við bifvéla-
og boddíviðgerðir svo gott sem
alla tíð. Hann rak Brautina ásamt
bræðrum sínum en þeir tóku við
verkstæðinu af föður þeirra. Þegar
verkstæðinu var lokað fyrir rúm-
um þremur árum fékk Jónas vinnu
á verkstæðinu hjá Norðuráli og á
Elkem verkstæðinu fyrir Meitil, en
ákvað að hætta þar störfum síðast-
liðið vor og hefja eigin rekstur á ný.
„Ætli þetta sé ekki bara smá ævin-
týraþrá hjá manni. Ég hafði það
mjög fínt inni á Grundartanga. Þar
var gott fólk og fínn vinnustaður en
ég hafði bara meiri áhuga á fólks-
bíla- og boddíviðgerðum og lang-
aði að fara aftur í það,“ segir Jón-
as. Hann tekur að sér réttingar og
sprautun og allar boddíviðgerðir.
„Ég tek að mér viðgerðir fyrir öll
tryggingafélögin og einnig fyrir
einstaklinga,“ segir Jónas í samtali
við Skessuhorn. arg
Frá og með síðasta föstudegi var
baðlaugin Guðlaug við Langa-
sand opnuð að nýju eftir lokun fyrr
í sumar. Laugin verður opin virka
daga nú í september frá klukkan
16-20 en á laugardögum og sunnu-
dögum frá klukkan 10-18.
mm
Það er margt sem gleður mig við að
vera kominn heim til Íslands eftir
dvöl mína í Níger í Afríku. Það sem
er ofarlega á þeim lista er að geta
byrjað morguninn minn með góð-
um kaffibolla. Það var alveg hægt
að fá kaffi í Níger, en það voru
helst bara útlendingar eins og ég
sem keyptu það í rándýru útlend-
ingabúðunum. Meðal almennings í
Níger er ekki mikil hefð fyrir kaffi-
drykkju, mun algengara er að fólk
þar fái sér ákveðna tegund af svörtu
tei og helst vel sykrað ef það er
mögulegt. Algengt er að sjá menn
sitja saman við göturnar í höfuð-
borginni Niamey eftir bænastund-
irnar. Þeir koma sér spekingslega
fyrir á sandinum og drekka brenn-
andi heitt te í brennandi hita. Ég
gat ómögulega skilið hvernig hægt
var að drekka heitan drykk í 45°C
hita, en mismunandi erum við og
líklegast ætti manneskja frá Níg-
er erfitt með að skilja okkar siði og
venjur. Sérstaklega ef hún kæmi til
Íslands um miðjan vetur og myndi
reka augun í biðröð af Íslending-
um, mögulega standandi í blind-
byl á myrku kvöldi, að bíða eftir að
komast inn í sjoppuna til að kaupa
sér rjómaís eða bragðaref.
En aftur að kaffinu, ég kynntist
kaffinu fyrst þegar ég vann í smíða-
vinnu 13 ára gamall í Borgarnesi.
Þetta var fyrsta alvöru sumarvinn-
an mín og þegar kaffihléið kom þá
mætti ég inn á kaffistofuna hjá körl-
unum með Andrésblað og kókó-
mjólk. Körlunum var flestum alveg
sama um matarvenjur þessa drengs,
en var þó einn smiðsneminn þarna
sem fussaði yfir þessu og sagði að
ég ætti að vera eins og alvöru karl-
maður fyrst ég væri kominn í alvöru
vinnu. Andrésblaðið og kókómjólk-
in hvarf úr höndunum á mér og í
staðinn fékk ég klámblað og kaffi-
bolla. Blaðið var svo sem áhuga-
vert en mikið ógurlega fannst mér
kaffið vont á bragðið. Mögulega
hefði kaffið verið betra með mjólk
og sykri, en smiðsneminn var stað-
fastur á því að þær viðbætur væru
bara fyrir kerlingar eða menn sem
girnast aðra karlmenn. Það bætti
ekki úr skák að þegar neminn hellti
upp á kaffið sjálfur þá var það sér-
staklega hræðilegt, mögulega var
það hrein leti, vankunnátta eða vit-
leysa hjá honum en hann átti það til
að endurnota korginn og pokann í
uppáhellingunni - þá var tekinn biti
af kaffinu frekar en sopi. En tíminn
leið og ég hlustaði á þessa vitlausu
visku hans um karlmennsku í gegn-
um sumarið og hellti þessum við-
bjóðslega vökva ofan í mig í hverri
pásu. Brenglaðar og bjánalegar
hugmyndir um karlmennsku eru
víða en ég man að ég var efins, ég
man að á meðan ég sötraði svarta
vökvann var ég mikið að hugsa og
pæla - líklegast væri betra að lifa
lífinu eins og brosandi barn með
kókómjólk en að verða svona leið-
inlegur karlmaður með kaffi.
Kaffið hefur verið samtvinnað ís-
lensku þjóðarsálinni og lífinu hér á
landi síðan það fyrst fluttist hing-
að inn í kringum 1760. Kaffið var
lengi vel hinn mesti munaður og
var bara hellt upp á við sérstök til-
efni, en eftir því sem tíminn leið
fór drykkurinn að verða hluti af
daglegu lífi landsmanna. Ætli hver
kynslóð hafi ekki þurft að upplifa
kaffispekinga eins og smíðanem-
ann minn, einhver svona aðili sem
otaði þessum óþverra að þeim sem
yngri voru ásamt einhverjum mis-
gáfulegum ráðleggingum. Sá grun-
ur læðist að mér að það hafi verið
einhverskonar kaffispekingur sem
bjó til þær kaffikreddur sem séra
Jónas Jónasson segir svo skemmti-
lega vel frá í bókinni sinni Íslenzkir
þjóðhættir. Þar kemur meðal ann-
ars fram að; “ef maður lætur rjóm-
ann í kaffið á undan sykrinum,
á maður ekki að giftast í 7 ár” og
“maður verði ófríður af að drekka
heitt kaffi, en fríkki við að drekka
það kalt, og þeir, sem drekka mikið
kaffi, verði geðvondir.”
Marga bollana drakk ég þarna
um sumarið og veit ég ekkert hvort
ég hafi fríkkað eða orðið geðvond-
ur við drykkjuna, en þegar sumrinu
lauk fór ég aftur að drekka kókó-
mjólkina mína. Það var einfald-
lega vegna þess að ég vandist aldrei
bragðinu, mér fannst kaffið þarna á
kaffistofunni hreinlega bara vont.
Síðan þá hef ég kvartað í gegnum
tíðina yfir vondu kaffi, en þá hafa
þeir sem eldri eru oft verið snögg-
ir að benda mér á þá staðreynd
að ég sé hreinlega of ungur til að
muna eftir alvöru slæmu kaffi. Það
er bara lúxus að geta kvartað yfir
baunakaffi, því lengi vel var siður
að nota meira en bara baunir í ís-
lenska kaffið.
Kaffibætir, oft kallaður “export”,
var fluttur inn til Íslands frá því um
1870 og var hann notaður til að
drýgja kaffið. Kaffibætir var gerð-
ur úr rótum kaffifífils eða sikoría,
þetta var þurrkað, ristað og mulið
og blandað saman við malað kaffi,
stundum allt að því til helminga.
Ekki líkaði öllum kaffibætirinn þó
hann hefði verið vinsæll fram und-
ir miðja síðustu öld. Halldór Lax-
ness var einn af þeim sem voru alls
ekki hrifnir af þessari útgáfu af sop-
anum: „Ég get ekki nema af sér-
stakri kurteisi drukkið kaffi með því
bragðvonda og heilsuspillandi skít-
brasi samanvið, sem í auglýsíng-
um er nefnt ,,kaffibætir“, en alþýða
nefnir ýmist rót, export eða sik-
korí.” Vert er að taka fram að O.Jo-
hnson & Kaaber flutti inn þennan
kaffibæti með nafninu Ludvig Da-
vid, en eins og Laxness segir þá var
þetta af einhverjum ástæðum oftast
kallað eitthvað annað í daglegu tali.
Skemmtilegt þykir mér að þetta
hafi verið kallað rót, og þá veit ég
loksins hvaðan lýsingin er tilkomin
sem við notum enn í dag, það er að
segja að tala um rótsterkt kaffi.
Þó að ég hafi sloppið við kaffibæt-
inn og verið svo heppinn að drekka
alvöru baunakaffi þarna í vinnunni,
þá var minningin um bollann slæma
samt svo sterk að ég vildi ekkert
drekka þetta sull. Tíminn leið og
einhvern tímann á þessum ung-
lingsárum var ég að lokum staddur
í fjölskylduboði. Stundin var runn-
in upp, fyrir framan mig voru tvær
hitakönnur, ein með kakói og hin
með kaffi, og kakóið var að klárast.
Ég smakkaði af forvitni kaffið aft-
ur. Nýlagað og vel sterkt fór það í
bollann og ilmurinn greip mig al-
veg. Þegar fyrsti sopinn kom með
þetta djúpa bragð og gaf þessa hlýju
þá kolféll ég alveg. Þessi drykkur
var alveg hreint himneskur, þetta
var svo langt frá því að vera svarta
karlmennskuleðjan úr smíðavinn-
unni, ég skildi bara ómögulega af
hverju þetta var svona gott. Ég hef
verið ástfanginn af kaffi frá þessari
stundu, og þegar ég horfi til baka
þá held ég að þessi fyrsti viðbjóðs-
legi slæmi kaffibollinn í smíðavinn-
unni hafi í raun bara verið bless-
un. Bragðlaukarnir mínir vöndust
því að drekka þetta heimsins versta
kaffi frá smíðanemanum - og bless-
unin var þá sú að eftir þá bragðlegu
þrekraun er allt annað kaffi him-
neskt í samanburðinum.
Þessi lexía kemur mér oft til hug-
ar. Þegar eitthvað kemur upp hjá
mér og lífið gengur illa þá hugsa
ég stundum um að þetta ástand sé
bara slæmur kaffibolli, ég þurfi bara
að klára hann. Ég veit nefnilega að
þegar lífið verður betra og kemur
loksins með góða kaffið þá mun ég
kunna svo miklu betur að meta það
- því ég hef upplifað og man svo vel
eftir lífsins vonda kaffibollanum.
Geir Konráð Theódórsson
Pstiill - Geir Konráð Theódórsson
Jónas hefur opnað nýtt verkstæði á Akranesi.
Akbrautin opnuð á Akranesi
Svipmynd úr Guðlaugu frá 4. júlí í sumar.
Guðlaug við Langasand
opnuð að nýju
Gömul blaðaauglýsing um kaffibæti.
Verður lífið betra með
slæmum kaffibolla?
Kaffibætir eða rót.