Skessuhorn


Skessuhorn - 11.11.2020, Side 2

Skessuhorn - 11.11.2020, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 11. NóVeMBeR 20202 Skammdegið færist hratt yfir þessa dagana. Munum eftir endurskinsmerkj- um þegar við erum úti í myrkrinu og þá þurfa ökumenn að gæta þess að hafa opin augun fyrir gangandi veg- farendum. Á morgun, fimmtudag, gengur í aust- an og norðaustan 8-10 m/s með rign- ingu eða slyddu sunnan- og austantil á landinun, en lengst af þurrt fyrir norð- an og vestan. Hiti 0-5 stig, en um frost- mark fyrir norðan. Á föstudag er út- lit fyrir norðlæga átt 8-15 m/s. Dálítil él verða norðanlands, rigning eða slydda austan- og suðaustanlands, en ann- ars þurrt að kalla. Hiti um og yfir frost- marki. Á laugardag er útlit fyrir fremur hæga austlæga eða breytilega átt og skýjað með köflum eða bjartviðri. Dálít- il él á stöku stað. Hiti um og undir frost- marki, en heldur hlýrra syðst á landinu. Á sunnudag er útlit fyrir norðaustlæga átt og víða slyddu eða snjókomu, en úrkomulítið vestantil á landinu. Hiti um og yfir frostmarki. Á mánudag er spáð austlægri átt með skúrum eða éljum og hiti breytist lítið. Í síðustu viku var spurt á vef Skessu- horns hvort heimsfaraldurinn hafi haft áhrif á kauphegðun lesenda. 43% sögðu faraldurinn hafa haft lítilsháttar áhrif, en 31% sögðu hann ekki hafa haft nein áhrif. 26% sögðu hins vegar far- aldurinn hafa haft verulega mikil áhrif á kauphegðun sína. Í næstu viku er spurt: Notar þú skóhorn? Í Skessuhorni í dag er rætt við Jónínu Eiríksdóttur starfsmann Varaeintaka- safns Landsbókasafnins í Reykholti. Innan veggja gamla héraðsskólahúss- ins fer fram mikilvægt starf þar sem prentgripum fyrri tíma og samtímans er komið í örugga geymslu. Jónína er Vestlendingur vikunnar. Spurning vikunnar Til minnis Vestlendingur vikunnar Veðurhorfur Viðbrögð hjá Akraneskaupstað í tengslum við Covid-19 og samkomubann SK ES SU H O R N 2 02 0 Akraneskaupstaður heldur úti upplýsingasíðu um viðbrögð stofnanna bæjarins hvað varðar Covid-19 og samkomubann. Upplýsingar er að finna á www.akranes.is/covid-19 Við erum öll almannavarnir! Dregur úr fjölda smita LANDIÐ: ellefu greindust með kórónuveiruna innan- lands á mánudag, samkvæmt uppfærðum tölum á covid. is. Alls voru 70 inniliggj- andi á sjúkrahúsi í gær með veiruna og þar af þrír á gjör- gæslu. einn lést á Landsspít- alanum á mánudag vegna Covid-19 og hafa nú alls 24 látist hér á landi vegna veir- unnar frá upphafi faraldurs- ins. 569 manns voru í gær í einangrun vegna Covid-19 og 1.076 í sóttkví. Nýgengi innanlandssmita var 129 sem er töluverð lækkun frá því á mánudag þegar það var 142,1. Fjórir losnuðu úr einangrun á Vesturlandi í gær eftir Covid-19 og eru nú 14 veikir; tólf á Akranesi og tveir í Borgarnesi. Fimm höfðu í gær losnað úr sóttkví í landshlutanum frá deginum áður og eru nú 54 í sóttkví á Akranesi, 55 í Borgarnesi og einn í Búðardal, eða 110 á Vesturlandi. -arg Valkvæðar að- gerðir heimil- aðar á ný LANDIÐ: Heilbrigðisráð- herra hefur staðfest fyrir- mæli landlæknis um að fella úr gildi auglýsingu um frest- un valkvæðra skurðaðgerða og annarra ífarandi aðgerða. Ákvörðunin tekur gildi í dag. Auglýsing heilbrigðisráð- herra þessa efnis ásamt fyrir- mælum landlæknis var send í gær til birtingar í Stjórnar- tíðindum. -mm Slökkvilið Grundarfjarðar og ólafsvíkur voru kölluð út laust eftir klukkan 9 síðastliðinn sunnudags- morgun. eldur var laus í iðnaðar- húsnæði við Nesveg 21 í Grund- arfirði þar sem listsmiðjan Lava- land er til húsa. enginn var í hús- inu þegar eldurinn kom upp og var það vegfarandi sem tilkynnti um brunann. Þegar slökkviliðin mættu á svæðið var ekki mikill eld- ur í húsinu en mikill reykur og ljóst að töluverðar skemmdir eru af sóti, Eldur kom upp í iðnaðarhúsnæði í Grundarfirði reyk og vatni. Trésmiðjan Gráborg er í sama húsi en eldurinn náði ekki að komast í það rými. Slökkvistarf gekk vel og lauk á ellefta tíman- um um morguninn og var þá hafist handa við að reykræsa húsið. tfk Á miðvikudaginn í síðustu viku fengu allir leik- og grunnskólanem- ar á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit afhent endurskinsmerki frá Slysa- varnadeildinni Líf á Akranesi. Full- trúar frá Líf gátu í ljósi aðstæðna ekki afhent börnunum endurskins- merkin í eigin persónu í þetta skipt- ið, svo það kom í hlut starfsmanna skólanna að útdeila þeim. Öll börn á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit ættu því nú að vera vel sjáanleg í skammdeginu, svo fremi sem þau festi merkin við yfirhafnir sínar. arg Ingunn Ríkharðsdóttir leikskólastjóri á Garðaseli tók við merkjunum frá Hall- fríði Jónu Jónsdóttur formanni Lífar. Öll börn fengu endurskinsmerki frá Lífarkonum Á kirkjuþingi sem fram fór á laug- ardaginn var samþykkt tillaga sr. Agnesar M. Sigurðardóttur bisk- ups þess efnis að sameina Hvann- eyrar- og Reykholtsprestakall í eitt nýtt prestakall; Reykholtspresta- kall. Í greinargerð segir að bisk- upafundur hafi ákveðið 10. ágúst síðastliðinn að leggja til við kirkju- þing að prestaköllin verði sam- einuð og mun einn sóknarprestur þjóna í því eftirleiðis. Í greinargerð segir jafnframt að í vísitasíu biskups í Hvanneyrar- prestakalli í febrúar á þessu ári hafi biskup kynnt þau áform að sóknar- prestsstarfið á Hvanneyri yrði ekki auglýst laust til umsóknar þegar sóknarpresturinn, séra Flóki Krist- insson, léti af störfum enda hefði verið horft til þess þegar bætt var við þriðja presti á Akranesi. Árið 2018 var tillaga að samein- ingu prestakalla í Vesturlandspró- fastdæmi fyrst kynnt en þá sendi biskupafundur sóknarnefndum og sóknarprestum í Borgar-, Hvann- eyrar-, Reykholts- og Stafholts- prestaköllum, svo og héraðsnefnd prófastsdæmisins, beiðni um um- sagnir vegna fyrirhugaðra samein- ingar prestakalla í prófastsdæminu. Umsagnir hafa á þessu ári borist frá aðalsafnaðarfundi Reykholts- sóknar, aðalsafnaðarfundi Hvann- eyrarsóknar, sóknarnefnd Lundar- sókn og sóknarnefnd Bæjarkirkju, og þar hafi ýmist verið bókaðar stuðningsyfirlýsingar eða að bókað var að fólk væri ekki mótfallið sam- einingu. Séra Geir Waage sóknarprestur í Reykholti verður sjötugur í næsta mánuði og mun láta af embætti sóknarprests um áramót. Starfið verður því auglýst á næstunni. mm Reykholtskirkja. Ljósm. úr safni/ Guðlaugur Óskarsson. Samþykkt að sameina Hvann- eyrar- og Reykholtsprestaköll

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.