Skessuhorn


Skessuhorn - 11.11.2020, Page 10

Skessuhorn - 11.11.2020, Page 10
MIÐVIKUDAGUR 11. NóVeMBeR 202010 Upplýsingafundi almannavarna síðastliðinn miðvikudag stjórnaði Rögnvaldur ólafsson aðstoðaryf- irlögregluþjónn. Gestir hans voru Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formað- ur Landssambands eldri borgara, og Anna Steinsen fyrirlesari, sem ræddi um fjarvinnu á tímum far- sóttar. Eldri eiga að skipu- leggja verslun sína vel Þórunn Sveinbjörnsdóttir hvatti aldraða til dáða og til þess að gef- ast ekki upp á þessum erfiðu tímum sem veiran væri að valda. Hún benti á leiðir fyrir aldraða til þess að létta sér lífið. Hvatti hún til þess að fólk panti vörur á netinu og ef fara þyrfti í búðir að fara þá snemma dags því þá væri minna að gera. Mikilvægt væri að hafa með sér innkaupamiða til þess að stytta tímann í búðinni hverju sinni. Hún nefndi einnig að á heimasíðu Nettó væru mjög góð- ar leiðbeiningar um hvernig eigi að panta vörur á netinu. Þá ráð- lagði hún fólki að geyma þau erindi sem ekki væru bráðnauðsynleg til betri tíma. Hún hvatti fólk til þess að vera duglegt að fara út að hreyfa sig. Stutt væri í að íþróttahús verði opnuð og aldraðir geti haldið áfram að ganga þar þó hált sé úti. Þórunn minnti á að enn væri margt fólk á lífi sem man eftir kreppunni á Íslandi og skömmt- unarseðlum. Þetta ástand nú tæki enda en á meðan það varir þurfi að hlúa að öldruðu fólki sem oft er einmana. Þá minnti hún á að Rauða krossinn vantar sjálfboðaliða í vina- verkefnið Heimsóknarvinir. Slíkt gæfi góða tilfinningu í hjartað. Hún hvatti fólk til þess að vera duglegt að tileinka sér tæknina; síma og tölvur, til þess að létta sér lífið. Að lokum lagði hún áherslu á að gæta þurfi sérstaklega að næringu aldr- aðra, hægt væri að fá tilbúna nær- ingardrykki í verslunum sem gott væri að eiga í ísskápnum. Jákvæðni fóstrar seiglu Anna Steinsen fyrirlesari hvatti for- eldra til þess að vera duglegir að tala við börnin sín og unglinga um þeirra hugðarefni án þess að vera sínöldrandi og leiðinlegur. Hún ræddi um mikilvægi þess að vera já- kvæður og gæta að því að horfa ekki of mikið á neikvæðar fréttir held- ur að tala meira um jákvæðni og bjartsýni því það fóstri seiglu. Hún hvatti fólk til þess að fara út með börnunum til dæmis að róla saman eða gera eitthvað annað skemmti- legt sem allir hefðu gaman af. enn fremur minnti Anna fólk á að gleyma ekki að hlæja heldur dansa eins og engin sé morgundagurinn. Að lokum ræddi Anna um hve mik- ilvægt er að leita sér hjálpar ef þörf krefur hjá fagaðilum eða sjálfboða- liðum. frg Í liðinni viku var greint frá því að Danir ákváðu að skera niður allan minkastofninn á búum þar í landi vegna kórónaveirusmits sem barst úr minkum í fólk. Um stökkbreytt af- brigði veirunnar er að ræða sem talið er að hafi borist upprunalega úr fólki í minka. Hætta er á að þau bólu- efni sem eru í þróun gegn kóróna- veirunni virki ekki á stökkbreytt af- brigði veirunnar. Förgun minnk- anna hófst sömuleiðis í vikunni. Á Íslandi eru starfrækt níu min- kabú og eru þau öll á Norðurlandi vestra og Suðurlandi. Hér á landi eru alls 15.000 eldislæður. Í ljósi smita af stökkbreyttu afbrigði kórónaveiru úr minkum í fólk í Danmörku ætlar Matvælastofnun að hefja skimun fyr- ir kórónaveiru á minkabúum lands- ins. ekki er grunur um að kóróna- veirusmit hafi komið upp á minka- búum hérlendis. „Þegar fregnir bár- ust af kórónaveirusmiti úr fólki í minka í sumar sendi Matvælastofn- un tilmæli til íslenskra minkabænda um hertar sóttvarnir á búunum og að einstaklingar með sjúkdómsein- kenni haldi sig fjarri þeim. Tilkynna skal grun um veikindi í minkum til Matvælastofnunar. Reglulega hefur verið minnt á þessi tilmæli en eng- ar tilkynningar hafa borist. ef smit greinist á búunum verða frekari að- gerðir skoðaðar í samráði við heil- brigðisyfirvöld,“ segir í tilkynningu frá MAST. mm / Ljósm. Dyrenes Beskyttelse Umsvif í hagkerfinu eru mun meiri nú en í fyrstu bylgju heimsfarald- ursins. Neysla Íslendinga innan- lands er nú svipuð og á sama tíma í fyrra en í fyrstu bylgju faraldursins dróst hún saman um 20%. Um- ferð á höfuðborgarsvæðinu hefur minnkað töluvert sem líklega end- urspeglar aukna fjarvinnu. Þetta kemur fram í samantekt frá fjár- mála- og efnahagsráðuneytinu fyr- ir helgi. Neysla Íslendinga sterkari Gögn um kortaveltu sýna mjög ólíka neysluhegðun Íslendinga í fyrstu og þriðju bylgju faraldurs- ins. Í fyrstu bylgjunni dróst neysla Íslendinga innanlands saman um 20% um tíma. Talið er að lands- framleiðsla hafi dregist saman um 9-14 milljarða króna vegna minni einkaneyslu í samkomubanninu í mars-maí. Að sama skapi óx hún milli ára um nærri sömu fjárhæð vikurnar eftir að slakað var á sam- komutakmörkunum í sumar. Heldur dró úr kortaveltu þeg- ar leið á október og seint í mán- uðinum dróst hún lítillega saman miðað við sama tíma í fyrra. Sam- drátturinn er þó engan veginn af sömu stærðargráðu og hann var í fyrstu bylgjunni í vor. Tölur um kortaveltu í þriðju bylgjunni á meðfylgjandi grafi ná til 24. októ- ber en í vikunni þar á undan dróst kortavelta Íslendinga innanlands saman um 1% á nafnvirði miðað við sama tíma í fyrra. Þegar jafn langt var liðið af fyrstu bylgjunni mældist samdrátturinn þá 21% á nafnvirði. Færri neysluflokkar Í fyrstu bylgju faraldursins dróg- ust kaup saman í flestum neyslu- flokkum en jukust í fáeinum flokk- um verslunar, þ.m.t. dagvöru og raftækjum. Í september urðu mun færri neysluflokkar fyrir mikl- um neikvæðum áhrifum af fjölg- un smita eins og sést á myndinni hér að neðan. Kaup á þjónustu, svo sem veitingum og afþreyingu, hafa vissulega orðið fyrir áhrifum af fjölgun smita og sóttvarnaaðgerð- um upp á síðkastið en samdrátt- urinn í september var mun minni en í fyrstu bylgjunni. Á sama tíma hefur vöxtur orðið í m.a. raftækja- og fataverslun. Umferð á höfuðborgar- svæðinu 20% minni Frá því faraldurinn hófst hafa tíð- indi af fjölda smita og sóttvarnar- aðgerðum haft mikil áhrif á um- ferð. Þetta skýrist ekki síst af auk- inni fjarvinnu, minni hreyfanleika vegna sóttvarnaaðgerða og minni efnahagsumsvifum. Í fyrstu bylgju faraldursins dróst umferð á höf- uðborgarsvæðinu þegar mest lét um 40% saman miðað við fyrra ár. Þegar núverandi bylgja faraldursins hófst í september dróst umferð ekki jafn mikið saman til að byrja með en snögg umskipti urðu í byrjun október þegar hertar aðgerðir tóku gildi á höfuðborgarsvæðinu. Þetta sést á mynd hér að ofan, en upp- hafspunktur fyrstu og þriðju bylgju faraldursins er þar valinn á þeim tímapunkti sem nýgengi smita á landsvísu fór yfir 50 í hvorri bylgju fyrir sig. mm Heimili og fyrirtæki í landinu hafa til þessa fengið rúma 38 milljarða króna í beinan stuðning vegna heimsfarald- urs kórónuveiru. Þetta kemur fram í skýrslu fjármála- og efnahagsráðu- neytisins um nýtingu efnahagsúrræða vegna faraldursins. Þá hafa 19,5 millj- arðar farið í frestun skattgreiðslna, 20 milljarðar í frestun aðflutningsgjalda auk þess sem 6,6 milljarðar hafa ver- ið lánaðir með ríkisábyrgð. Heimil- in munu auk þess hafa fengið fyrir- framgreiddan um 21 milljarð úr sér- eignarsparnaði fyrir árslok. Af þessu má sjá að faraldurinn mun hafa mik- il áhrif á afkomu ríkissjóðs og mun áhrifanna gæta í mörg ár. Stjórnvöld hafa kynnt til sögunnar fjölda efnahagsúrræða vegna heims- faraldursins sem nýtast heimilum og fyrirtækjum með beinum hætti. Úrræðunum er annars vegar ætlað að styðja við eftirspurn til skemmri tíma og hins vegar að minnka óaft- urkræfan skaða á getu hagkerfisins til að ná vopnum sínum að nýju þegar tímabundnum áhrifum faraldursins sleppir. Þessar aðgerðir eiga þátt í því að ríkissjóður verður rekinn með 260-270 milljarða króna halla árin 2020 og 2021 í stað þess að vera nærri í jafnvægi líkt og stefnt var að fyrir faraldurinn. Hallinn er þó að stærstum hluta til kominn vegna sjálfvirks viðbragðs skattkerfis og at- vinnuleysisbóta við minni efnahags- umsvifum. Að auki hafa útgjöld verið aukin beint vegna faraldursins, ekki síst á sviði heilbrigðis-, félags- og menntamála. Þessu til viðbótar hef- ur verið ákveðið að ráðast í viðamik- ið fjárfestingarátak. eftir því sem far- aldurinn hefur dregist á langinn og sóttvarnaraðgerðir verið hertar hafa úrræði tekið breytingum, sum verið framlengd og ný kynnt til sögunn- ar. Alþingi samþykkti í síðustu viku frumvarp um tekjufallstyrki og fram- lengingu lokunarstyrkja og í vikunni þar á undan var greint frá fyrirhug- uðum viðspyrnustyrkjum sem nú eru í mótun. 3.000 fyrirtæki nýtt úrræðin Fram kemur í skýrslu ráðuneytisins að úrræði stjórnvalda hafa verið nýtt af um 3.000 fyrirtækjum. Um 65% fjárhæðarinnar hefur farið til fyrir- tækja í ferðaþjónustu eða skyldum greinum. Ferðaþjónustan hefur ver- ið fyrirferðarmest í öllum stærstu úr- ræðunum að lokunarstyrkjum frá- töldum, en þar hefur mest verið greitt til fyrirtækja í ýmissi persónu- legri þjónustu og heilbrigðisþjón- ustu. Þessu til viðbótar var veitt rík- isábyrgð á lánalínur til handa Ice- landair auk þess sem sérstök ríkis- ábyrgð var veitt vegna vanda ferða- skrifstofa. Hlutabætur umfang- mesta aðgerðin Sé litið til greiðslu hlutabóta, barnabótaauka, nýtingu ferðagjaf- ar og útgreiðslu séreignarsparnaðar hafa heimilin fengið greidda sam- tals 43,8 milljarða króna. Hlutabæt- ur eru umfangsmesta aðgerðin til handa einstaklingum en um 36 þús- und einstaklingar hafa fengið hluta- bætur sem nema 19,8 milljörðum kr. Greiddir hafa verið 35 milljarðar í al- mennar atvinnuleysisbætur fram til október. mm Neysla Íslendinga svipuð þrátt fyrir Covid Viðspyrna stjórnvalda talin kosta ríkissjóð 270 milljarða á ári Kórónaveirusmit milli minka og manna Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara. Ljósm. er skjá- skot af vef almannavarna frá fundinum. Eldra fólk þarf að skipuleggja verslun vel og huga að næringu

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.