Skessuhorn - 11.11.2020, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 11. NóVeMBeR 202016
Nú þegar jólin nálgast og marg-
ir eru í gjafahugleiðingum hafði
Skessuhorn samband við nokkra
kaupmenn á Vesturlandi og ræddi
við þá um mikilvægi þess að versla í
heimabyggð. Sumir hafa opnað vef-
verslanir og bjóða upp á heimsend-
ingu, en allir eru sammála um að
mikilvægast sé að vera samkeppn-
ishæfur.
Vefverslunin aukist hjá
Kram í Stykkishólmi
Heiðrún Höskuldsdóttir, eigandi
verslunarinnar Krams í Stykkis-
hólmi, segir verslanir á landsbyggð-
inni treysta á viðskipti heimamanna,
sérstaklega fyrir jólin. „Við lifum
á því yfir þennan árstíma. ef fólk
verslar ekki hjá okkur er ekki mögu-
leiki að halda verslun gangandi,“
segir hún og bætir við að Hólmarar
séu mjög duglegir að styðja verslun í
heimabyggð. „Mér hefur líka fund-
ist verslun í heimabyggð hafa auk-
ist og að almennt sé meira af fólki
af öllu Snæfellsnesi að koma til okk-
ar, sem er mjög jákætt,“ segir Heið-
rún. Kram verslun er einnig hægt
að finna á netinu, kram.is, og segir
Heiðrún mikla aukningu hafa ver-
ið á sölu þar í kórónuveirufaraldr-
inum. „Það hefur gengið mjög vel
í vefversluninni og viðskiptin þar
aukist mikið, af öllu landinu. Vef-
verslanir eru þannig að það skiptir
í raun engu hvar maður er staddur
á landinu; Ísland verður bara einn
markaður. Það koma sérstaklega
margar pantanir af þeim vörum sem
við erum sjálf að flytja inn. Það eru
vörur sem kannski fást hvergi ann-
ars staðar,“ segir Heiðrún.
en eru Hólmarar einnig að velja
vefverslunina frekar en að koma í
búðina? „Nei, þeir koma frekar til
okkar en sumir panta á netinu líka.
Í þessum takmörkunum sem hafa
verið í gildi höfum við bara þurft
að stökkva á lásinn og telja höfuð-
in sem eru inni og það hefur geng-
ið mjög vel. Fólk bíður bara ró-
legt fyrir utan og kemur inn þegar
einhver fer út. en vonandi verður
þetta ekki svona þegar nær dregur
jólum,“ segir Heiðrún og bætir við
að á meðan Covid hefur gengið yfir
er boðið upp á heimsendingar sam-
dægurs innanbæjar. „Við afgreið-
um þá bara í gegnum síma og svo
hengjum við vörurnar á hurðar-
húninn. en almennt finnum við að
fólk er meira að versla heima núna
en áður,“ segir hún.
Mikið að gera í net-
verslun Krums.is í
Grundarfirði
Á vinnustofu Krums í Grundarfirði
er hægt að kaupa ýmsar gjafavör-
ur; plaköt, jólaskraut og fleira sem
Hrafnhildur Jóna, eigandi versl-
unarinnar, gerir sjálf. Hrafnhild-
ur segir það mjög mikilvægt fyr-
ir svona lítil fyrirtæki að fólk versli
í heimabyggð. „Það er bara for-
senda þess að svona gangi upp. Það
að fólk versli í heimabyggð ger-
ir okkur kleift að hafa lífsviður-
væri af því sem við erum að gera,“
segir Hrafnhildur. einnig er hægt
að versla hjá versluninni Krums í
gegnum netverslunina krums.is og
segir hún mikla aukningu hafa ver-
ið í sölu þar. „Ég myndi segja að
svona 70-80% af því sem ég sel sé
í gegnum netverslunina og það er
líka fólk hér af svæðinu sem versl-
ar hjá mér í gegnum netið,“ segir
hún. Aðspurð segir hún fólk vera
byrjað að versla fyrir jólin og seg-
ist hún bjartsýn fyrir komandi vik-
um. „Ég get ekki kvartað yfir Covid
í minni verslun þar sem ég er með
netverslun og þar hefur orðið mik-
il aukning.
Fólk duglegt að
versla í heimabyggð í
Snæfellsbæ
„Fólk í Snæfellsbæ er mjög dug-
legt að versla í heimabyggð,“ seg-
ir Rut Ragnarsdóttir í Útgerðinni í
ólafsvík í samtali við Skessuhorn.
„Ég held að fólk hérna átti sig al-
veg á því að það er ekki sjálfgefið
að geta gengið að góðri þjónustu í
smærri samfélögum á landsbyggð-
inni og ef þú getur sótt verslun og
þjónustu í nærsamfélaginu er mik-
ilvægt að gera það til að viðhalda
henni á svæðinu. Það er hagur allra
að halda uppi góðu þjónustustigi,“
heldur Rut áfram.
Í Útgerðinni var brugðist fljótt
við ástandinu vegna kórónuveir-
unnar með því að setja á fót vef-
verslunina utgerdin.shop strax í
apríl síðastliðnum. Aðspurð segir
Rut vefverslunina fara vel af stað
hjá þeim og að alltaf sé salan þar
að aukast. „Það er líka mikið um að
íbúar skoði fyrst vefverslunina en
komi svo hingað þegar það er búið
að ákveða hvað það ætli að kaupa.
Við sendum líka frítt um allt land
og komum vörunum samdægurs
til kaupenda í Snæfellsbæ,“ segir
Rut. Þá er hægt að kaupa jólagjaf-
ir hjá Útgerðinni og láta senda þær
beint til þess sem á að fá gjöfina.
„Þá pantar fólk bara eins og venju-
lega í vefversluninni og skrifar þar
kveðju til þess sem á að fá gjöfina
og við sjáum um að pakka inn og
senda gjöfina með kveðjunni á við-
takanda. Þetta býður upp á alveg
rafræn og snertilaus viðskipti og
fólk getur klárað allt tengt gjöfun-
um áhyggjulaust í rólegheitunum
heima í sófa,“ segir Rut.
„Það er svo mikilvægt fyrir svona
lítil fyrirtæki eins og okkar, og ég
gæti nefnt nokkra aðra þjónustu-
aðila hérna líka, að finna stuðning
íbúa, sérstaklega á þessum furðu-
legu tímum. Við í Snæfellsbæ búum
við frábæra þjónustu og það er að
stórum hluta bæjarbúum að þakka,“
bætir Rut við.
Meiri vitundavakning
í Borgarfirði
„Það er alltaf mikilvægt fyrir minni
samfélög að heimamenn versli í
heimabyggð sé það hægt,“ seg-
ir ómar Örn Ragnarsson, eig-
andi verslunarinnar Tækniborg-
ar í Borgarnesi. „Það er fyrst og
fremst mikilvægt til að halda störf-
um í samfélaginu. ef við verslum
ekki í heimabyggð getum við ekki
búist við því að þjónusta sé fyrir
hendi í samfélaginu,“ segir ómar.
Aðspurður segir hann Borgfirðinga
almennt duglega að versla í heima-
byggð en að þó hafi orðið tölu-
verð aukning undanfarið. „Ég held
það hafi orðið meiri vitundarvakn-
ing um mikilvægi þess að versla í
heimabyggð bara á þessu ári. Mér
fannst fólk líka aðeins meira pæla í
þessu fyrir síðustu jól,“ segir ómar
og bætir við að verslanir í hans sam-
félagi gæti þess að vera samkeppn-
ishæfar við verslanir á höfuðborg-
arsvæðinu. „Það er kannski meira
úrval í Reykjavík en fólk gerir samt
ekki endilega betri kaup þar. ef við
verslum ekki í heimabyggð gæti það
farið svo að verslunin sé ekki leng-
ur á svæðinu næst þegar fólk þarf á
henni að halda,“ segir ómar.
Samkeppni á Akranesi
nær til Reykjavíkur
Aðspurður segir Guðni Tryggva-
son, eigandi verslunarinnar Mod-
el á Akranesi, það fyrst og fremst
mikilvægt að vera samkeppnishæf-
ur vilji kaupmaðurinn fá viðskipta-
vini til sín. „Auðvitað höfum við
hag af því að fólk versli í heima-
byggð en fyrir mér snýst þetta fyrst
og fremst um að vera samkeppnis-
hæfur. ef ég stend mig ekki þá bara
fer fólk annað, það er eðlilegt,“ seg-
ir Guðni. Akranes er nálægt höfuð-
borgarsvæðinu og samkeppnin nær
því þangað en Guðni segir það ekki
hafa áhrif á sína verslun. „Göng-
in eru opin í báðar áttir. Ég fagna
öllum sem versla í heimabyggð en
fyrst og fremst verð ég að standa
mig,“ segir hann. Aðspurður seg-
ir hann að í kórónuveirufaraldr-
inum sé nú boðið upp á það að fá
keyrt frítt heim að dyrum á Akra-
nesi. „Við erum líka dugleg að setja
inn myndir af vörum á Facebook og
Instagram og erum núna að vinna
í að opna vefverslun,“ segir hann
og bætir við að það verði vonandi í
þessari viku sem hún verður opnuð.
arg
Hægt er að skoða vöruúrval hjá Model á samfélagsmiðlum.
Fólk er hvatt til að beina verslun sinni í heimabyggð
Hjá Kram í Stykkishólmi hefur verið mikið að gera í vefversluninni. Á Vinnustofu Krums í Grundarfirði eru fallegar jólavörur sem Hrafnhildur Jóna gerir.
Jólavörurnar eru komnar í Útgerðina.
Heimamenn eru duglegir að versla í Tækniborg.