Skessuhorn - 11.11.2020, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 11. NóVeMBeR 2020 17
Bergþór Kristleifsson á Húsafelli
undirbýr nú af krafti að næsta vor
geti hafist framkvæmdir við bygg-
ingu nýs hverfis heilsárshúsa á
stað sem nefnist Litlutunguskóg-
ur. Deiliskipulag fyrir svæðið hef-
ur verið til frá 2007 og gerir ráð
fyrir byggingu 54 húsa. Nú er sótt
um stækkun þess þannig að hverfið
rúmi 75 vel búin hús sem hæglega
geta verið til heilsársbúsetu með
öllum þeim þægindum sem farið er
fram á. Hverfið er gróið og skjól-
sælt og þaðan er víðsýnt, ofan til í
Húsafellsskógi, ekki langt frá far-
vegi Hvítár. Að sögn Bergþórs er
gert ráð fyrir þremur húsgerðum á
svæðinu, en að minnstu húsin verði
108 fermetrar að grunnfleti. Auk
þess verður á svæðinu byggt sér-
stakt þjónustuhús sem nýtast mun
íbúum sem þar dvelja í lengri eða
skemmri tíma. Bergþór og hans
fólk ætlar sjálft að byggja húsin.
„Við gerum ráð fyrir að öll húsin
verði á steyptum sökkli og grunni
en hyggjumst forsmíða timburein-
ingar inni á verkstæði hjá okk-
ur og reisa á byggingarstað. Hús-
in verða svo með öllum þægindum
til heilsársbúsetu. Þannig er mark-
hópur að kaupum á þessum hús-
um fólk sem gjarnan vill vera sem
mest úti á landi og starfa þar. Fyrir-
brigðið „sumarhús“ á í okkar huga
ekki lengur við, heldur byggjum
við heilsárshús með öllum þeim
þægindum sem markaðurinn kallar
eftir; heitu vatni, ljósleiðara og svo
framvegis. Rúsínan í pylsuendan-
um hjá okkur er að þetta nýja hverfi
býður upp á mjög gott útsýni nið-
ur héraðið og upp til jökla, þar sem
landið er í meiri halla en núverandi
byggð í skóginum,“ segir Bergþór í
samtali við Skessuhorn.
Sala hefst í vetur
Bergþór segir að hafist verði handa
við byggingu fyrstu húsanna næsta
vor. Verið er að leggja lokahönd á
þrívíddarteikningar þar sem vænt-
anlegir kaupendur munu geta valið
sér húsgerð og staðsetningu. „Lík-
lega í byrjun næsta árs getum við
farið að bjóða húsin til sölu. Þá mun
kostnaðaráætlun liggja fyrir og allar
teikningar sömuleiðis. ómar Pét-
ursson hjá Nýhönnun hefur verið
að teikna húsin. Við munum bjóða
þrjár húsgerðir; 108 og 130 fer-
metra hús og svo tveggja hæða hús
einnig sem verða eitthvað stærri.
Markhópur okkar í þessu verkefni
er fólk sem vill dvelja langdvöl-
um í fallegri náttúru og skapa sér
aðstöðu þar til vinnu eða náms. Í
hverfinu verður auk þess þjónustu-
hús þar sem verður hægt að leigja
vinnuaðstöðu, fundasal og einhver
afþreying verður í boði. Auk þessa
verður nokkru austar, eða við af-
leggjarann upp á Kaldadal, byggt
hús þar sem fólk getur leigt aðstöðu
fyrir fjórhjól, snjósleða eða önnur
tæki sem gjarnan fylgja afþreyingu
fólks í dag, eins konar dótakassa,“
segir Bergþór.
Samkvæmt núgildandi skipulagi
er gert ráð fyrir 54 lóðum á svæð-
inu en Bergþór er með það í farvegi
að stækka svæðið um tuttugu lóðir
til viðbótar þannig að alls verði 75
hús reist í Litlutunguskógi. „Þetta
verður alveg sjálfstætt hverfi frá
öðrum hér í skóginum, en teng-
ist því með stígum og gönguleið-
um. Göngufæri er því í afþreyingu
sem hér er í boði svo sem sundlaug,
golfvöll, verslun og veitingasölu.
Fimm ára verktími
Bergþór reiknar með að það taki um
fimm ár að byggja hverfið, gangi
salan að óskum, en framkvæmdir
hefjast næsta vor. Nú þegar er vega-
gerð og lagnavinna vel á veg kom-
in. Gerir hann ráð fyrir að a.m.k. tíu
manns muni starfa við byggingar og
frágang á svæðinu og væntir þess að
heildarkostnaður við verkefnið verði
innan við fimm milljarðar króna.
„Ávinningur okkar af þessu verkefni
er margþættur,“ segir Bergþór. „Við
erum þarna að taka í notkun gríðar-
lega fallegt svæði þaðan sem útsýni
er gott. Við horfum því til að fjölga
þeim sem hér dvelja að staðaldri og
vonumst náttúrlega til að þeir tímar
komi að fólk megi eiga lögheimili í
heilsárshverfum eins og þessum sem
fram til þessa hafa verið skilgreind
sem frístundasvæði. Þar þarf sveit-
arfélagið að koma til skjalanna og
hlýtur að gera það, því ella væri það
að hafna útsvarstekjum þeirra sem
hér vilja eiga lögheimilið sitt. Þessi
hús sem við erum að hefja byggingu
á eru fullbúin einbýlishús og gætu
sem slík allt eins verið byggð við
íbúðagötu í Borgarnesi eða Reykja-
vík. Þá horfi ég ekki síður til þess að
skapa hér mikla vinnu við uppbygg-
ingu og um leið erum við að styrkja
stoðir þeirrar þjónustu sem þegar er
til staðar á Húsafelli.“
Fjarvinna mun
áfram verða
„Framtíðin er að fólk velur að
búa utan þéttbýlis og stunda það-
an vinnu eða nám. Fjarvinna hef-
ur snaraukist í kóvidfaraldrinum og
það ástand mun ekki færast til baka
þótt sjúkdómurinn verði upprættur.
Þá setur fólk það skilyrði að aðbún-
aður sé góður, nettengingar örugg-
ar, samgöngur öruggar og svo fram-
vegis. „Hér höfum við nægt neyslu-
vatn, hitaveitu, góðar samgöngur,
ljósleiðara og til viðbótar fallegri
náttúru en mörg önnur svæði geta
státað af. Ég er því mjög bjartsýnn á
að það muni ganga vel að selja húsin
í Litlutunguskógi í Húsafelli,“ sagði
Bergþór að endingu. mm
Hefja á næsta ári framkvæmdir við
nýtt heilsárshverfi í Húsafelli
Dæmi um mögulegt útsýni frá Litlutunguskógi. Hönnun húsa: Nýhönnun ehf. / Ómar Pétursson, tölvugerð mynd/ ONNO.
Horft til austurs af svæðinu. Ljósm. Kristín Jónsdóttir.
Guðrún Bjarnadóttir eigandi
Hespuhússins í Ölfusi, sem flutti
úr Andakílnum á síðasta ári, hef-
ur aðlagað sig að breyttum aðstæð-
um vegna fækkunar ferðamanna í
kórónuveirufaraldrinum. Nú hef-
ur hún bætt púsluspili við vöruúr-
valið. Um er að ræða 1.000 púsla
jurtalitapúsluspil þar sem púsluð er
mynd af jurtalituðum hnyklum úr
Hespuhúsinu. „Í Covid-19 fóru all-
ir að púsla og prjóna svo púsluspilið
sameinar það sem er vinsælt í dag,“
segir Guðrún í samtali við Skessu-
horn. Hún segir púslið einnig vera
fræðsluefni þar sem því fylgir mynd
til að púsla eftir og þar er hægt að
sjá úr hverju hver hnykill er litað-
ur auk þess sem fræðsla um jurta-
litun á Íslandi fylgir með. „Ég segi
að púsluspilið sé fallegt, fræðandi
og fjölskylduvænt,“ segir Guðrún.
Hægt er að panta púslið í vefversl-
un á hespa.is. arg
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins á Akranesi lögðu það til á
fundi bæjarstjórnar síðdegis í
gær að ákvörðun um val á leið
við uppbyggingu á Fjöliðjunni,
vernduðum vinnu- og hæfing-
arstað á Akranesi, verði frestað.
Frá þessu var greint á facebook-
síðu flokksins síðdegis í gær, en
fundurinn var ekki hafinn þeg-
ar Skessuhorn var sent í prent-
un. Segja Sjálfstæðismenn að
fresturinn gæfi bæjaryfirvöldum
tækifæri til ítarlegrar skoðunar
á uppbyggingaráformum með
hliðsjón af breyttu skipulagi á að-
liggjandi lóðum og fari fram sam-
hliða fjárhagsáætlanagerð fyrir árið
2021, eins og segir í tillögunni. Í
greinargerð með henni er lagt til
að núverandi hús Fjöliðjunnar við
Dalbraut verði rifið og farið í hönn-
un og byggingu nýs húss sem henti
betur starfseminni í dag. Vísað er
til þess að mygla hafði greinst í hús-
inu við Dalbraut áður en bruni varð
í því vorið 2019. „Að hafa þessa vá
yfirvofandi er óþarfa áhætta og að
stefna viðkvæmum einstaklingum
inn í mögulega ótryggt húsnæði er
umhugsunarvert,“ segir í greinar-
gerð með tillögu Sjálfstæðismanna.
Í greinargerðinni segir m.a. að
bruninn í Fjöliðjunni á Akranesi í
maí á síðasta ári hafi verið íbúum
bæjarins mikið áfall ekki síst þeim
er þangað sóttu sína vinnu. „Þar
sem skemmdir af völdum brunans
urðu miklar varð strax ljóst að grípa
yrði skjótt til bráðabirgðaráðstaf-
ana svo tryggja mætti hið gefandi
starf er þar fer fram. Það tókst og
þá um leið skapaði bæjarstjórn sér
nauðsynlegt andrými til þess að
ákveða hvernig haga skyldi upp-
byggingu á aðstöðu Fjöliðjunnar til
framtíðar.“ Þá segir í greinargerð-
inni að fyrir bruna Fjöliðjuhússins
hafi verið búinn að koma í ljós al-
varlegur mygluvandi í húsnæðinu
sem ekki hafði verið komist fyr-
ir. „Umfjöllun fjölmiðla á síðustu
dögum um myglu í húsum, ásamt
þeim alvarlegu áhrifum sem hún
getur haft á heilsu fólks og hversu
erfitt hefur reynst að uppræta
hana með viðgerðum, kallar á
endurskoðun á því mati sem
meirihluti bæjarráðs lagði til
grundvallar sinni ákvörðun.
Fjölmörg dæmi eru um ein-
staklinga á Akranesi, sem glímt
hafa við veikindi vegna myglu,
tala einnig sínu máli.“ Þá segir
að dæmin hafi sannað að fyrir-
tæki og sveitarfélög hafa reynt
að koma í veg fyrir að þessi vá-
gestur, þ.e. myglan, lifi í húsa-
kynnum þeirra en niðurstaðan
leiðir oftar en ekki til niðurrifs
húsa. „Þá hefur jafnvel verið kost-
að miklu til sem reynist glatað fé.
Heilsa fólks er dýrmæt og verður
ekki metin til fjár. Að hafa þessa vá
yfirvofandi er óþarfa áhætta og að
stefna viðkvæmum einstaklingum
inn í mögulega ótryggt húsnæði er
umhugsunarvert. Horfum saman til
framtíðar,“ segir í greinargerðinni:
„Látum hanna og byggja nýtt hús-
næði fyrir starfsemi Fjöliðjunnar.
Húsnæði sem mætir öllum nútíma-
kröfum sem gerðar eru til starfsem-
innar, mætir þörfum starfsmanna
og væntingum skjólstæðinga nú og
til lengri framtíðar. Horfum á ný
tækifæri á stækkaðri lóð. Tækifærið
er svo sannarlega til staðar, vilji er
allt sem þarf,“ segir í greinargerð
Sjálfstæðismanna. mm
Bruni varð í Fjöliðjuhúsinu við Dalbraut að kvöldi
8. maí 2019. Starfsemin er nú í bráðabirgðahús-
næði við Smiðjuvelli.
Leggja til að Fjöliðjuhúsið verði rifið
og nýtt hús byggt
Hespuhúsið setur
púsluspil á markað