Skessuhorn


Skessuhorn - 11.11.2020, Qupperneq 18

Skessuhorn - 11.11.2020, Qupperneq 18
MIÐVIKUDAGUR 11. NóVeMBeR 202018 Ásmundur einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur und- irritað reglugerð um hlutdeildarl- án, sem ætlað er að hjálpa fyrstu kaupendum og þeim sem ekki hafa átt fasteign síðastliðinn fimm ár og eru undir ákveðnum tekjumörkum að brúa bilið við fasteignakaup. Lög um hlutdeildarlán tóku gildi 1. nóvember og fjallar reglugerðin um útfærslu þeirra. Í reglugerðinni er meðal ann- ars kveðið á um meðferð umsókna og úthlutun hlutdeildarlána. Þá er ákvæði um skilyrði hlutdeildarl- ána, til dæmis hvaða íbúðir verða keyptar með hlutdeildarlánum, hagkvæmni, gæði og ástand íbúða, hámarksverð og stærðir íbúða, sem og undanþágur frá almennum skil- yrðum hlutdeildarlána. Jafnframt er kveðið á um endurgreiðslu hlutdeildarlána og samstarf Hús- næðis- og mannvirkjastofnun- ar við byggingaraðila. einnig eru tilgreindar tímabundnar heim- ildir lántaka til útleigu íbúðar og gjaldfellingarheimild Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á hlut- deildarláni. Að lokum er kveðið á um tímabundnar undanþágur frá hámarksverðum íbúða sem gilda munu út árið 2021. Þannig verð- ur fyrir hendi undanþága vegna tilvika á höfuðborgarsvæðinu þar sem aðstæður á byggingarstað eða skilmálar á byggingarreit valda því að byggingarkostnaður er hærri en almennt gerist. einnig er gert ráð fyrir undanþágu frá hámarks- verði vegna íbúða sem þegar hafa verið byggðar, eru í byggingu eða sem fyrir liggja samþykkt bygg- ingaráform um sem eru þess eðl- is eða svo langt á veg komnar að óhagkvæmt er að breyta þeim til samræmis við stærðarviðmið reglugerðarinnar. er þannig gert ráð fyrir ákveðnum sveigjanleika fyrsta árið á meðan byggingarað- ilar eru að laga sig að nýjum við- miðum um hagkvæmni. Opnað var fyrir umsóknir um hlutdeildarlán í byrjun vikunnar og sér Húsnæðis- og mannvirkja- stofnun um afgreiðslu umsókna. Nánari upplýsingar má finna á upplýsingavef um hlutdeildarlán, hlutdeildarlan.is. mm Parhús úr timbureiningum í byggingu við Hjallatanga í Stykkishólmi. Ljósm. úr safni tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Reglugerð um hlutdeildarlán tekur gildi Starfshópur, sem falið var að greina þróun tollverndar og stöðu íslensks landbúnaðar gagnvart breytingum í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi, hef- ur skilað skýrslu til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Ráð- herra gerði grein fyrir skýrslunni á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Í skýrslunni er fjallað um markaðs- aðgang og tollaívilnanir í gegnum fríverslunar- og viðskiptasamninga sem Ísland hefur gert, ítarlega er farið yfir þróun á innflutningi land- búnaðarafurða og innlendrar fram- leiðslu síðasta áratuginn og fjallað er um þróun tollverndar og stuðn- ing við landbúnað í alþjóðlegu sam- hengi. Skýrslan er liður í aðgerðaáætlun í 17 liðum um að efla matvælaör- yggi, tryggja vernd búfjárstofna og bæta samkeppnisstöðu innlendrar matvælaframleiðslu. Hún verður tekin til athugunar í verkefnistjórn um mótun landbúnaðarstefnu. Meðal helstu niðurstaðna í skýrsl- unni segir að erlend samkeppni hafi aukist töluvert með auknum inn- flutningi landbúnaðarvara síðasta áratuginn. Stærstu áhrifaþættirnir eru aukin eftirspurn vegna fjölgun- ar ferðamanna, breytingar á neyslu- venjum og rýmri markaðsaðgangur fyrir innfluttar vörur til Íslands. Þar eru helst nefndir samningar Íslands við eSB um viðskipti með landbún- aðarvörur sem tóku gildi árið 2018. eftirspurn eftir tollkvótum hefur aukist mikið undanfarin ár og opn- ir tollkvótar hafa verið veittir tíma- bundið á ákveðnum vörum þegar þær skorti á innlendum markaði. Þá kemur í skýrslunni fram að innlend framleiðsla virðist í flestum tilvikum ekki hafa haldið í aukna eftirspurn og hefur henni verið mætt í meira mæli með innflutn- ingi. Sjá má að í ákveðnum vöru- flokkum hefur framboð ekki náð að anna eftirspurn og hafa ákveðnar vörur verið fluttar inn á tiltölulega háum tollum á síðari árum, sem var fáheyrt fyrr á tímum. Framleiðslu- ferill margra landbúnaðarvara er langur og getur reynst erfitt fyrir framleiðendur að bregðast skjótt við breytingum á markaði. Mark- aðshlutdeild innfluttra vara hefur því almennt aukist nokkuð umfram innlendar vörur. Í skýrslunni kemur fram að dreg- ið hafi úr tollvernd á ýmsum vöru- tegundum í formi tollaniðurfell- inga, tollalækkana og aukinna toll- kvóta. Stærsti einstaki áhrifaþáttur- inn eru samningar Íslands og eSB um viðskipti með landbúnaðar- vörur. Auknir tollkvótar hafa auk- ið markaðsaðgang hingað til lands á kjöti, ostum og unnum kjötvör- um. Samkvæmt OeCD hefur toll- vernd á Íslandi dregist saman yfir lengri tíma en breytilegt eftir því hvaða tímabil eru til skoðunar. Í alþjóðlegum samanburði er toll- vernd mest hjá Íslandi samanborið við aðildarríki OeCD og eSB, en hún er á svipuðu reki og hjá Nor- egi og Sviss. mm Skýrslu um þróun tollverndar Upptaka á íslensku hvítkáli. Ljósm. úr safni. Lyfjum stolið úr skipi GRUNDARFJ: Á föstudag- inn var brotist inn í skip sem lá við bryggju í Grundarfirði. Við athugun kom í ljós að lyfjum hafði verið stolið úr lyfjaskáp. Unnið er að rannsókn málsins og er verið að skoða upptök- ur úr myndavélakerfi Grundar- fjarðarhafnar en höfnin er vel vöktuð af myndavélum að sögn lögreglu. -frg Ógnandi viðskiptavinur bítur í harðfisk BORGARNES: Rétt fyrir mið- nætti að kvöldi föstudags barst Neyðarlínu tilkynning um ógn- andi viðskiptavin sem neitaði að nota grímu í verslun Olís við Brúartorg í Borgarnesi. Þegar lögregla mætti á staðinn hitti hún fyrir hinn meinta ógnandi viðskiptavin sem sat í bíl sín- um. Sá þverneitaði að hafa ver- ið ógnandi. Sagðist hafa verið með grímu í versluninni en hafa tekið hana niður við útidyr til þess að fá sér bita af harðfiski. Lögreglu tókst að róa viðstadda og leiðbeindi að því loknu um grímunotkun. -frg Bakkað glæfralega STYKKISHÓLMUR: Lög- reglumenn á eftirlitsferð um Stykkishólmi rétt fyrir miðnætti á laugardagskvöld sáu hvar bif- reið var ekið í veg fyrir aðra bif- reið. Í kjölfarið bakkaði öku- maður annarrar bifreiðarinnar á ógætilegan hátt eftir Aðalgötu nokkurn spöl. Lögreglumenn höfðu afskipti af ökumönnum beggja bifreiða og áminnti fyrir ógætilegan akstur. Vegna ungs aldurs ökumannanna var haft samband við foreldra þeirra auk þess sem barnaverndarnefnd var gert viðvart. -frg Skemmdarverk á gistiheimili GRUNDARFJ: Á mánudag barst lögreglu tilkynning um skemmdarverk í gistiheimili í Grundarfirði. Þar hafði verið brotist inn og nokkrar skemmd- ir unnar með því að sparka í hurðir og spenna nokkrar hurðir upp. Gistiheimilið er ekki opið og enginn var á staðnum um helgina. Starfsmenn sem mæta til vinnu á mánudag sáu að farið hafði verið inn í húsið. Talið er líklegt að neyðardyr hafi opnast í óveðrinu 5. nóvember og því hafi verið auðvelt að komast inn í húsið. ekki er vitað hver eða hverjir voru að verki. -frg Fíkniefnaakstur AKRANES: Ökumaður var stöðvaður á Akranesi um miðjan dag á mánudag. Fíkniefnapróf reyndist jákvætt fyrir amfeta- míni. Ökumaður viðurkenndi að hafa neytt amfetamíns nótt- ina áður. Hann var handtekinn og mál hans fór í hefðbundið ferli. -frg Kannabisneysla í skógrækt AKRANES: Að kvöldi mánu- dags barst lögreglu tilkynning um að ungmenni væru að reykja kannabis á salernum við skóg- ræktina á Akranesi. Þegar lög- regla kom á staðinn var fólk- ið horfið á braut og fannst ekki þrátt fyrir leit. Nokkuð hefur verið um skemmdarverk á kló- settunum og er fólk því frek- ar á tánum og tekur betur eft- ir óvenjulegum mannaferðum. -frg Dópaður á hlaupahjóli AKRANES: Rétt eftir miðnætti aðfararnótt þriðjudags tóku lögreglumenn á eftirlitsferð eft- ir aðila á ljóslausu hlaupahjóli. Þegar hann varð var við lög- reglu reynir hann að stinga af. Lögreglumennirnir skiptu liði og hljóp annar á eftir ökumanni hlaupahjólsins. Lögreglumað- urinn sem hljóp er afar fljótur að hlaupa og stingur t.d. vinnu- félaga sína auðveldlega af í fót- bolta. Átti ökumaður hlaupa- hjólsins því aldrei séns, að sögn lögreglu. Þegar lögreglumaður- inn er alveg að ná honum verð- ur honum svo um að hann fell- ur af hjólinu og til jarðar. Í kjöl- farið var ökumaður öryggis- leitaður, handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Á ökumannin- um, sem reyndist vera á fimm- tugsaldri, fundust ætluð kanna- bisefni og verður hann sóttur til saka fyrir brotin. -frg Aflatölur fyrir Vesturland 31. október - 6. nóvember. Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu Akranes: 3 bátar. Heildarlöndun: 4.736 kg. Mestur afli: ebbi AK-37: 2.131 í einni löndun. Arnarstapi: engar landanir á tímabilinu. Grundarfjörður: 8 bátar. Heildarlöndun: 304.780 kg. Mestur afli: Hringur SH-153: 38.318 kg í einni löndun. Ólafsvík: 13 bátar. Heildarlöndun: 95.725 Mestur afli: Brynja SH-236: 14.604 kg í þremur löndunum. Rif: 8 bátar. Heildarlöndun: 58.407 kg. Mestur afli: Hamar SH-224: 31.265 kg í einni löndun. Stykkishólmur: 1 bátur. Heildarlöndun: 8.090 kg. Mestur afli: Fjóla SH-7: 8.090 kg í fjörum löndunum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Hringur SH-153: 68.318 kg. 4. nóvember. 2. Runólfur SH-135: 64.653 kg. 2. nóvember. 3. Akurey AK-10: 58.945 kg. 5. nóvember. 4. Farsæll SH-30: 56.284 kg. 3. nóvember. 5. Sigurborg SH-12: 54.335 kg. 2. nóvember. -frg

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.