Skessuhorn - 11.11.2020, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 11. NóVeMBeR 2020 19
Sylvaine Scharapenko hefur ekki
látið kórónuveirufaraldur stoppa
sig í að elta draumana og stefn-
ir hún á að opna nýjan veitinga-
stað á Hellissandi á næstu dögum.
Veitingastaðurinn, sem hefur feng-
ið nafnið RAM, mun vera til húsa
þar sem Kaffi Sif var áður. Sylvaine
er 52 ára kona, uppalin nærri Lut-
herstadt Wittenberg, sem er mitt á
milli Berlínar og Leipzig í Þýska-
landi. Hún flutti ásamt börnun-
um sínum til Hellissands 1. sept-
ember síðastliðinn og þótti það til-
valinn staður til að opna veitinga-
stað. „Mig langaði að opna stað þar
sem ég gæti bæði búið til list og
mat,“ segir Sylvaine og bætir við að
á RAM verði ekki bara boðið upp
á veitingar heldur mun listin skipa
þar stórt hlutverk.
RAM hennar framlag
til samfélagsins
Í Þýskalandi hefur Sylvaine mik-
ið unnið með geitaafurðir, búið til
osta úr mjólkinni og listaverk úr
ullinni. „Það var svona mín leið,“
segir hún. „Mér þykir gott að vinna
og ég vil líka alltaf vinna að því að
uppfylla drauma mína,“ segir Syl-
vaine og bætir við að RAM sé ein-
mitt einn af þeim draumum. „Í
Þýskalandi upplifði ég hversu fljótt
dreifbýlið verður fátækt þegar veit-
ingastöðunum er lokað. Ég upplifði
hvernig fólk villist í atvinnuleysi og
upplifir sig einskis virði. Með því
að opna RAM vil ég leggja mitt
að mörkum fyrir samfélagið svo
ég geti sjálf einfaldlega tekið þátt
í samfélaginu líka,“ segir Sylvaine.
„Ég reyni alltaf að vera hugrökk í
því sem ég geri,“ bætir hún við.
Enginn ætti að þurfa að
vera einn
Aðspurð segir hún að á boðstólnum
verði einfaldir þýskir réttir dags-
ins, brauð og pretzels og heima-
lagaða linsubaunasúpur. Í desemb-
er bætist svo við þýskir jólaréttir
auk þess sem Sylvaine ætlar að til-
einka sér íslenska matargerð líka.
„Því miður er tungumálakunnáttan
mín ekki nógu góð svo ég hef þurft
að seinka opnuninni því ég á erfitt
með að finna út öll þau skilyrði sem
ég þarf að uppfylla,“ segir hún en
ætlar samt ekki að láta það stoppa
sig. en hefur heimsfaraldurinn ekki
haft nein áhrif á áform hennar?
„Þetta er sannarlega erfiður tími
til að opna svona stað, ég geri mér
grein fyrir því. Takmarkanirnar eru
líka erfiðar, að það geta bara verið
tíu á staðnum í einu og við þurf-
um að loka klukkan níu. Þetta leyfir
okkur bara að byrja mjög rólega,“
svarar hún. „en ég hlakka til að búa
til stað þar sem fólki getur liðið vel,
setið, hitt annað fólk, talað saman
og hlegið smá. enginn ætti að þurfa
að vera einn,“ segir Sylvaine.
arg
Soffía Guðrún Guðmundsdóttir
hefur verið ráðin nýr félagsmála-
stjóri Félagsþjónustu Stranda- og
Reykhólahrepps. Á vef Reykhóla-
hrepps kemur fram að hún taki við
starfinu af Guðrúnu elínu Benón-
ýsdóttur. Soffía Guðrún lauk stúd-
entsprófi frá Verslunarskóla Ís-
lands vorið 1986 og hefur lokið
B.A gráðu og M.A. gráðu í félags-
ráðgjöf frá Háskóla Íslands, M.A
gráðu í kynjafræði frá Háskóla Ís-
lands og B.A gráðu í félags- og
þjóðfélagsfræði frá Háskóla Ís-
lands. Hún hefur áður starfað við
félagsráðgjöf í Rygge í Noregi, sem
verkefnastjóri við félagsmiðstöðina
Bólstaðarhlíð 43 í Reykjavík, sem
móttökuritari hjá landlæknisemb-
ættinu, skrifstofustjóri/ læknarit-
ari á lyflækningadeild LHS, ritari
sóttvarnarlæknis við landlækna-
embættið auk þess sem hún hefur
starfað á sambýlum, í athvarfi fyr-
ir geðfatlaða og á frístundaheimili.
Hefur hún því víðtæka menntun
og reynslu fyrir starf félagsmála-
stjóra. arg
Opnar veitingastað á Hellissandi
RAM er til húsa þar sem Kaffi Sif var áður.
Á RAM veður boðið upp á einfalda þýska rétti dagsins, brauð og pretzels og
heimalagaða linsubaunasúpu.
Soffía Guðrún Guðmundsdóttir er nýr félagsmálastjóri Félagsþjónustu Stranda-
og Reykhólahrepps. Ljósm. Reykhólahreppur.
Soffía Guðrún er
nýr félagsmálastjóri
á Reykhólum
Hettupeysur
fáð� verðtilboð fyrir þin� hóp
www.smaprent.is • smaprent@smaprent.is • sími 666-5110
Ef verslað er fyrir 10.000 kr eða meira
er enginn sendingarkostnaður!
www.smaprent.is
900 kr/stk
Verð áður 1.290 kr/stk
1.290 kr/stk
1.500 kr/stk
Verð áður 2.990 kr/stk
990 kr/stk
400 kr/stk
Verð áður 1.990 kr/stk
1.990 kr/stk 1.490 kr/stk
Elís�
w
w
w
.s
m
ap
re
n
t.
is
TI
LB
O
Ð
SH
O
R
N
Við sendum út
um alLt LAND!