Skessuhorn


Skessuhorn - 11.11.2020, Síða 21

Skessuhorn - 11.11.2020, Síða 21
MIÐVIKUDAGUR 11. NóVeMBeR 2020 21 Pennagrein Verkefnið „jól í skókassa“ er orðið árlegur viðburður sem KFUM og KFUK á Íslandi skipuleggur hér á landi. Félagar í Grundarfirði taka virkan þátt. Undanfarin misseri hafa þær Anna Husgaard Ander- sen og Salbjörg Nóadóttir tekið á móti ófáum jólakössum frá ung- um Grundfirðingum. Gefend- ur eru á öllum aldri en langflest- ir koma þó úr grunnskólanum. Í venjulegu árferði hafa bekkirnir í skólanum séð um þetta en vegna Covid-19 var ákveðið að auglýsa eftir pökkum frá einstaklingum en ekki hópum eins og áður hef- ur verið. Að þessu sinni söfnuðust 43 kassar í Grundarfirði og var Salbjörg að ganga frá þeim fyrir sendingu er ljósmyndari Skessu- horns náði tali af henni. Gjafirnar eru sendar til Úkraínu á munað- arleysingjaheimili og barnaspítala en viðtakendur gjafanna eru börn sem búa við sára fátækt. Þær Anna og Salbjörg vilja koma á framfæri kærum þökkum til íbúa Grundar- fjarðar fyrir frábærar viðtökur við verkefninu. tfk Í síðustu viku birtist grein í Skessu- horni eftir bæjarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins á Akranesi. Í henni draga bæjarfulltrúarnir upp mjög nei- kvæða mynd af væntanlegri upp- byggingu Fjöliðjunnar á Akranesi, mynd þar sem hljóð og mynd fara einfaldlega ekki saman. eins og fram kemur í greininni var það mikið áfall þegar Fjöliðjan brann en með mikilli vinnu tókst að tryggja að lágmarks röskun yrði á starfseminni. Fjöliðjan tók, nokkr- um vikum eftir brunann, til starfa í öðru húsnæði sem hugsað var til bráðabirgða. Það húsnæði hentar nokkuð vel undir vinnuhluta starf- seminnar, en síður undir þann hluta sem snýr að hæfingu. Þar vantar mikið upp á. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins benda réttilega á að starfshóp- urinn hafi verið skipaður eftir að ákvörðun lá fyrir í bæjarstjórn um að byggt skyldi upp að nýju við Dalbraut 10, þ.e. á fyrri stað. Hlut- verk starfshópsins var skýrt, hópur- inn skyldi skila af sér mögulegum sviðsmyndum um uppbyggingu á núverandi stað. Þeirra hlutverk var ekki að hlutast til um skipulagsmál líkt og fulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins virðast halda, sbr. meðfylgjandi beinu tilvitnanir í greinina: „Segja má að mikill hvalreki hafi rekið á fjörur starfshópsins í vinnu- ferlinu þegar samningar náðust á milli Akraneskaupstaðar og N1 um framtíðarlóð undir starfsemi fyrir- tækisins.“ „Þegar starfshópurinn skilaði sviðs- myndum sínum á dögunum urðu það okkur Sjálfstæðisfólki talsverð von- brigði hversu lítt hópurinn virðist hafa farið yfir þessar breyttu forsendur á svæðinu. Ef það hefur ekki verið hlut- verk þessa starfshóps þá klárlega verk- efni kjörinna fulltrúa.“ eins og bæjarfulltrúum Sjálf- stæðisflokksins er vel kunnugt höfðu samningaviðræður við Festi hf (N1) staðið yfir frá því í ágúst 2019 þó ekki hafi verið skrifað und- ir samninga fyrir en ári síðar eða í ágúst 2020. Á fundi bæjarráðs þann 8. ap- ril 2020 voru málefni Fjöliðjunnar rædd. Sjá bókun: „Bæjarráð felur bæjarstjóra að skipa vinnuhóp embættismanna um verk- efnið. Tillögur vinnuhópsins verði lagðar fyrir skipulags- og umhverf- isráð, velferðar- og mannréttindaráð og bæjarráð. Markmiðið er að vinnu- hópurinn skili af sér mögulegum sviðs- myndum um uppbyggingu starfsemi Fjöliðjunnar á núverandi stað við Dal- braut 10. Gert er ráð fyrir að vinnu- hópurinn skili af sér tillögum eigi síðar en 15. júní næstkomandi.“ Þarna höfðu viðræður við Festi hf. staðið yfir í átta mánuði og því hefði verið eðlilegt að fulltrúi Sjálf- stæðisflokksins í bæjarráði hefði á þessum fundi opinberað þá skoð- un minnihlutans að taka ætti allan reitinn fyrir en ekki bara lóðina að Dalbraut 10. Með þessa vitneskju verður það að teljast furðuleg fram- setning að tala um „hvalreka“ fyr- ir starfshópinn. Hans hlutverk var öllum ljóst frá upphafi. Beiðni frá fulltrúum Sjálfstæðisflokks um að allur N1 reiturinn yrði tekin með í vinnu starfshópsins, kom ekki fram fyrr en á lokametrum vinnunnar sem sætir furðu í ljósi þess að full- trúar flokksins sitja í öllum ráðum sem komu að samskiptum og vinnu við starfshópinn frá upphafi. Því skal þó haldið til haga að full- trúar Sjálfstæðisflokksins hafa talað fyrir því að núverandi húsnæði yrði rifið. Það breytir þó engu varðandi lóðina sjálfa, staðsetningu hennar eða stærð. Þá er fleira sem vekur furðu í grein Sjálfstæðismanna: „Skyndilega skapaðist rými til þess að hýsa ýmsa tengda starfsemi Fjöliðj- unnar eins og dósamóttöku og Búkollu nytjamarkaðs“. erfitt er að lesa út úr þessum skrif- um Sjálfstæðismanna, hvort þarna sé verið að leggja til að byggt verði sérstaklega yfir dósamóttökuna eða hvort umræddir bæjarfulltrúar hafi hreinlega ekki farið yfir teikning- arnar. Séu teikningarnar skoðaðar má einmitt sjá að gert er ráð fyr- ir stærri og betri dósamóttöku auk þess sem sá búnaður sem við íbúar, notendur þjónustunnar þekkjum í dag mun heyra sögunni til. Hvað Búkollu varðar, þá hefur hugmynd- in um að gert verði ráð fyrir starf- seminni í húsnæðinu að Dalbraut verið rædd. Hinsvegar, eins og fram kemur í skýrslu starfshópsins, eftir samtöl við starfsmenn, aðstandend- ur sem og leiðbeinendur, var ákveð- ið að falla frá þeim hugmyndum að blanda þessum starfstöðvum meira saman en gert er í dag. Það úti- lokar þó ekki þann möguleika að í framtíðinni muni starfsemi Búkollu byggjast upp á þessum reit. Akraneskaupstaður tók yfir hús- næði Fjöliðjunnar af Framkvæmda- sjóði fatlaðra árið 2011 eftir að þjónusta við fatlaða einstaklinga var flutt frá ríkinu til sveitarfélaga. Áður en að þessu kom, eða árið 2007, hafði farið fram greiningar- vinna sem unnin var af nefnd sem skipuð var af starfsmönnum fram- kvæmdasjóðsins á framtíðarþörfum Fjöliðjunar. Í framhaldi af þeirri vinnu var farið í endurbætur á nú- verandi húsnæði og hönnun á við- byggingu. Verkið var í framhald- inu boðið út en því miður bárust engin tilboð. efnahagshrunið á haustmánuðum 2008 gerði það svo að verkum að ekkert varð úr verk- efninu. Þegar starfshópur um upp- byggingu Fjöliðjunnar hóf störf fyrr á þessu ári, var farið í það að rýna fyrri hönnun. Þrátt fyrir að nokkuð sé liðið frá því að hún kom fram, kom í ljós að hún samræm- ist nær öllum þeim markmiðum sem stefnt er að. eftir viðræður við félagsmálaráðherra fékk hóp- urinn afhent öll hönnunar- og út- boðsgögn frá þeirri vinnu sem fram fór árið 2007. Lauslega má áætla að þarna hafi sparast um sextíu millj- ónir króna. Að sjálfsögðu er það svo að margt hefur breyst í kröfum til aðbúnaðar og aðstöðu frá 2007 en ytri ramminn er sá sami. Vinna við hönnun á innra skipulagi til sam- ræmis við kröfur nútímans er að fara af stað. Í grein sinni tala fulltrúar Sjálf- stæðisflokks um brunarústir. Húsnæðið fór vissulega illa í bruna eins og þekkt er. Samkvæmt tjónamati urðu mestar skemmdir á þaki en jafnframt töluverðar sót- skemmdir. Húsið er úr forsteyptum einingum og urðu þær ekki fyrir skemmdum. Skömmu fyrir brun- ann var gerð ástandsskoðun á hús- næði Fjöliðjunnar vegna hugsan- legra rakaskemmda. Niðurstaða þeirrar skoðunar var á þá leið að ráðast þyrfti í aðgerðir, en helstu merki um rakaskemmdir fundust í þaki. Það er ljóst að endurbætur húsnæðisins munu m.a. fela í sér nýtt þak, hreinsun og uppbyggingu með það að markmiði að koma í veg fyrir tjón af völdum raka, hvort heldur sem er á húsnæði eða fólki. Í grein sinni minnast fulltrúar Sjálfstæðisflokks aðeins á umsögn notendaráðs um málefni fatlaðra á Akranesi, en umsögn þeirra var á þá leið að skoða ætti betur þá mögu- leika sem fælust í breytingu á bygg- ingarreit. Það gæti þýtt töf í allt að 8-12 mánuði að bíða þess að skipu- lagsferli á reitnum ljúki. Það er skoðun meirihlutans að við þá töf verið ekki unað. Notendur þjón- ustunnar og starfsfólk Fjöliðjunnar eiga að geta treyst því að við bæjar- fulltrúar höfum þarfir Fjöliðjunnar að leiðarljósi við skipulagsvinnu á reitnum. Í fyrrnefndri grein bæj- arfulltrúa Sjálfstæðisflokks er ekki einu orði nefnd umsögn leiðbein- enda, aðstandenda eða starfsmanna Fjöliðjunnar. Í lokaskýrslu starfshóps um upp- byggingu Fjöliðjunnar kemur fram að tryggja þurfi andrými í kringum starfsemina. Meirihlutinn getur tekið undir það og er kaupstaður- inn einmitt í þeirri vænlegu stöðu, eins og hér að framan greinir, að geta aðlagað skipulag á nálægum byggingarreitum að starfsemi Fjöl- iðjunnar og þeirri vinnu sem þar fer fram. Meirihlutinn hefur kappkostað að nálgast þetta verkefni af metn- aði og fagmennsku og treysta þeim sérfræðingum sem valdir voru til þess að skipa starfshópinn. Hópur- inn samanstendur af starfsmönn- um kaupstaðarins sem búa allir yfir mikilli þekkingu á málefninu. Um- ræðan um Fjöliðju framtíðarinnar má ekki eingöngu snúast um hús- næðið og hvort það verði byggt svona eða hinsegin, við höfum sér- fræðinga til þess að leiðbeina okkur í rétta átt hvað það varðar. Umræð- an ætti miklu frekar að snúast um það hvað við sem samfélag erum tilbúin að gera fyrir þá einstaklinga sem þjónustuna nota og þar starfa. Hlutverk okkar bæjarfulltrúa er ekki að horfa eingöngu til starfsem- innar innan veggja Fjöliðjunnar og tækifæranna þar, þó svo að það sé vissulega stór þáttur. Við eigum einnig að horfa til þess og stuðla að því að fleiri og fjölbreyttari tækifæri verið sköpuð á vinnumarkaði fyrir þennan hóp samfélagsins. Fjöliðja framtíðarinnar á það inni hjá okkur. Elsa Lára Arnardóttir Ragnar Sæmundsson Valgarður Lyngdal Jónsson Bára Daðadóttir Kristinn Hallur Sveinsson Höfundar skipa meirihlutann í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar. Fjöliðja til framtíðar Tillaga að endurbyggðu húsi Fjöliðjunnar og viðbyggingu við Dalbraut. Salbjörg Nóadóttir er hér með fullt skottið af gjöfum á leið til Reykjavíkur þar sem pakkarnir verða afhentir til áframsend- ingar til Úkraínu. Með skottið fullt af gjöfum til úkraínskra barna

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.