Skessuhorn - 11.11.2020, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 11. NóVeMBeR 2020 21
Pennagrein
Verkefnið „jól í skókassa“ er orðið
árlegur viðburður sem KFUM og
KFUK á Íslandi skipuleggur hér á
landi. Félagar í Grundarfirði taka
virkan þátt. Undanfarin misseri
hafa þær Anna Husgaard Ander-
sen og Salbjörg Nóadóttir tekið á
móti ófáum jólakössum frá ung-
um Grundfirðingum. Gefend-
ur eru á öllum aldri en langflest-
ir koma þó úr grunnskólanum. Í
venjulegu árferði hafa bekkirnir í
skólanum séð um þetta en vegna
Covid-19 var ákveðið að auglýsa
eftir pökkum frá einstaklingum
en ekki hópum eins og áður hef-
ur verið. Að þessu sinni söfnuðust
43 kassar í Grundarfirði og var
Salbjörg að ganga frá þeim fyrir
sendingu er ljósmyndari Skessu-
horns náði tali af henni. Gjafirnar
eru sendar til Úkraínu á munað-
arleysingjaheimili og barnaspítala
en viðtakendur gjafanna eru börn
sem búa við sára fátækt. Þær Anna
og Salbjörg vilja koma á framfæri
kærum þökkum til íbúa Grundar-
fjarðar fyrir frábærar viðtökur við
verkefninu.
tfk
Í síðustu viku birtist grein í Skessu-
horni eftir bæjarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins á Akranesi. Í henni draga
bæjarfulltrúarnir upp mjög nei-
kvæða mynd af væntanlegri upp-
byggingu Fjöliðjunnar á Akranesi,
mynd þar sem hljóð og mynd fara
einfaldlega ekki saman.
eins og fram kemur í greininni
var það mikið áfall þegar Fjöliðjan
brann en með mikilli vinnu tókst að
tryggja að lágmarks röskun yrði á
starfseminni. Fjöliðjan tók, nokkr-
um vikum eftir brunann, til starfa
í öðru húsnæði sem hugsað var til
bráðabirgða. Það húsnæði hentar
nokkuð vel undir vinnuhluta starf-
seminnar, en síður undir þann hluta
sem snýr að hæfingu. Þar vantar
mikið upp á.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins benda réttilega á að starfshóp-
urinn hafi verið skipaður eftir að
ákvörðun lá fyrir í bæjarstjórn um
að byggt skyldi upp að nýju við
Dalbraut 10, þ.e. á fyrri stað. Hlut-
verk starfshópsins var skýrt, hópur-
inn skyldi skila af sér mögulegum
sviðsmyndum um uppbyggingu á
núverandi stað. Þeirra hlutverk var
ekki að hlutast til um skipulagsmál
líkt og fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins virðast halda, sbr. meðfylgjandi
beinu tilvitnanir í greinina:
„Segja má að mikill hvalreki hafi
rekið á fjörur starfshópsins í vinnu-
ferlinu þegar samningar náðust á
milli Akraneskaupstaðar og N1 um
framtíðarlóð undir starfsemi fyrir-
tækisins.“
„Þegar starfshópurinn skilaði sviðs-
myndum sínum á dögunum urðu það
okkur Sjálfstæðisfólki talsverð von-
brigði hversu lítt hópurinn virðist hafa
farið yfir þessar breyttu forsendur á
svæðinu. Ef það hefur ekki verið hlut-
verk þessa starfshóps þá klárlega verk-
efni kjörinna fulltrúa.“
eins og bæjarfulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins er vel kunnugt
höfðu samningaviðræður við Festi
hf (N1) staðið yfir frá því í ágúst
2019 þó ekki hafi verið skrifað und-
ir samninga fyrir en ári síðar eða í
ágúst 2020.
Á fundi bæjarráðs þann 8. ap-
ril 2020 voru málefni Fjöliðjunnar
rædd. Sjá bókun:
„Bæjarráð felur bæjarstjóra að skipa
vinnuhóp embættismanna um verk-
efnið. Tillögur vinnuhópsins verði
lagðar fyrir skipulags- og umhverf-
isráð, velferðar- og mannréttindaráð
og bæjarráð. Markmiðið er að vinnu-
hópurinn skili af sér mögulegum sviðs-
myndum um uppbyggingu starfsemi
Fjöliðjunnar á núverandi stað við Dal-
braut 10. Gert er ráð fyrir að vinnu-
hópurinn skili af sér tillögum eigi síðar
en 15. júní næstkomandi.“
Þarna höfðu viðræður við Festi
hf. staðið yfir í átta mánuði og því
hefði verið eðlilegt að fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í bæjarráði hefði á
þessum fundi opinberað þá skoð-
un minnihlutans að taka ætti allan
reitinn fyrir en ekki bara lóðina að
Dalbraut 10. Með þessa vitneskju
verður það að teljast furðuleg fram-
setning að tala um „hvalreka“ fyr-
ir starfshópinn. Hans hlutverk var
öllum ljóst frá upphafi. Beiðni frá
fulltrúum Sjálfstæðisflokks um að
allur N1 reiturinn yrði tekin með í
vinnu starfshópsins, kom ekki fram
fyrr en á lokametrum vinnunnar
sem sætir furðu í ljósi þess að full-
trúar flokksins sitja í öllum ráðum
sem komu að samskiptum og vinnu
við starfshópinn frá upphafi.
Því skal þó haldið til haga að full-
trúar Sjálfstæðisflokksins hafa talað
fyrir því að núverandi húsnæði yrði
rifið. Það breytir þó engu varðandi
lóðina sjálfa, staðsetningu hennar
eða stærð.
Þá er fleira sem vekur furðu í
grein Sjálfstæðismanna:
„Skyndilega skapaðist rými til þess
að hýsa ýmsa tengda starfsemi Fjöliðj-
unnar eins og dósamóttöku og Búkollu
nytjamarkaðs“.
erfitt er að lesa út úr þessum skrif-
um Sjálfstæðismanna, hvort þarna
sé verið að leggja til að byggt verði
sérstaklega yfir dósamóttökuna eða
hvort umræddir bæjarfulltrúar hafi
hreinlega ekki farið yfir teikning-
arnar. Séu teikningarnar skoðaðar
má einmitt sjá að gert er ráð fyr-
ir stærri og betri dósamóttöku auk
þess sem sá búnaður sem við íbúar,
notendur þjónustunnar þekkjum í
dag mun heyra sögunni til. Hvað
Búkollu varðar, þá hefur hugmynd-
in um að gert verði ráð fyrir starf-
seminni í húsnæðinu að Dalbraut
verið rædd. Hinsvegar, eins og fram
kemur í skýrslu starfshópsins, eftir
samtöl við starfsmenn, aðstandend-
ur sem og leiðbeinendur, var ákveð-
ið að falla frá þeim hugmyndum að
blanda þessum starfstöðvum meira
saman en gert er í dag. Það úti-
lokar þó ekki þann möguleika að í
framtíðinni muni starfsemi Búkollu
byggjast upp á þessum reit.
Akraneskaupstaður tók yfir hús-
næði Fjöliðjunnar af Framkvæmda-
sjóði fatlaðra árið 2011 eftir að
þjónusta við fatlaða einstaklinga
var flutt frá ríkinu til sveitarfélaga.
Áður en að þessu kom, eða árið
2007, hafði farið fram greiningar-
vinna sem unnin var af nefnd sem
skipuð var af starfsmönnum fram-
kvæmdasjóðsins á framtíðarþörfum
Fjöliðjunar. Í framhaldi af þeirri
vinnu var farið í endurbætur á nú-
verandi húsnæði og hönnun á við-
byggingu. Verkið var í framhald-
inu boðið út en því miður bárust
engin tilboð. efnahagshrunið á
haustmánuðum 2008 gerði það svo
að verkum að ekkert varð úr verk-
efninu. Þegar starfshópur um upp-
byggingu Fjöliðjunnar hóf störf
fyrr á þessu ári, var farið í það að
rýna fyrri hönnun. Þrátt fyrir að
nokkuð sé liðið frá því að hún kom
fram, kom í ljós að hún samræm-
ist nær öllum þeim markmiðum
sem stefnt er að. eftir viðræður
við félagsmálaráðherra fékk hóp-
urinn afhent öll hönnunar- og út-
boðsgögn frá þeirri vinnu sem fram
fór árið 2007. Lauslega má áætla að
þarna hafi sparast um sextíu millj-
ónir króna. Að sjálfsögðu er það svo
að margt hefur breyst í kröfum til
aðbúnaðar og aðstöðu frá 2007 en
ytri ramminn er sá sami. Vinna við
hönnun á innra skipulagi til sam-
ræmis við kröfur nútímans er að
fara af stað.
Í grein sinni tala fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks um brunarústir.
Húsnæðið fór vissulega illa í
bruna eins og þekkt er. Samkvæmt
tjónamati urðu mestar skemmdir á
þaki en jafnframt töluverðar sót-
skemmdir. Húsið er úr forsteyptum
einingum og urðu þær ekki fyrir
skemmdum. Skömmu fyrir brun-
ann var gerð ástandsskoðun á hús-
næði Fjöliðjunnar vegna hugsan-
legra rakaskemmda. Niðurstaða
þeirrar skoðunar var á þá leið að
ráðast þyrfti í aðgerðir, en helstu
merki um rakaskemmdir fundust
í þaki. Það er ljóst að endurbætur
húsnæðisins munu m.a. fela í sér
nýtt þak, hreinsun og uppbyggingu
með það að markmiði að koma í
veg fyrir tjón af völdum raka, hvort
heldur sem er á húsnæði eða fólki.
Í grein sinni minnast fulltrúar
Sjálfstæðisflokks aðeins á umsögn
notendaráðs um málefni fatlaðra á
Akranesi, en umsögn þeirra var á þá
leið að skoða ætti betur þá mögu-
leika sem fælust í breytingu á bygg-
ingarreit. Það gæti þýtt töf í allt að
8-12 mánuði að bíða þess að skipu-
lagsferli á reitnum ljúki. Það er
skoðun meirihlutans að við þá töf
verið ekki unað. Notendur þjón-
ustunnar og starfsfólk Fjöliðjunnar
eiga að geta treyst því að við bæjar-
fulltrúar höfum þarfir Fjöliðjunnar
að leiðarljósi við skipulagsvinnu á
reitnum. Í fyrrnefndri grein bæj-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokks er ekki
einu orði nefnd umsögn leiðbein-
enda, aðstandenda eða starfsmanna
Fjöliðjunnar.
Í lokaskýrslu starfshóps um upp-
byggingu Fjöliðjunnar kemur fram
að tryggja þurfi andrými í kringum
starfsemina. Meirihlutinn getur
tekið undir það og er kaupstaður-
inn einmitt í þeirri vænlegu stöðu,
eins og hér að framan greinir, að
geta aðlagað skipulag á nálægum
byggingarreitum að starfsemi Fjöl-
iðjunnar og þeirri vinnu sem þar fer
fram.
Meirihlutinn hefur kappkostað
að nálgast þetta verkefni af metn-
aði og fagmennsku og treysta þeim
sérfræðingum sem valdir voru til
þess að skipa starfshópinn. Hópur-
inn samanstendur af starfsmönn-
um kaupstaðarins sem búa allir yfir
mikilli þekkingu á málefninu. Um-
ræðan um Fjöliðju framtíðarinnar
má ekki eingöngu snúast um hús-
næðið og hvort það verði byggt
svona eða hinsegin, við höfum sér-
fræðinga til þess að leiðbeina okkur
í rétta átt hvað það varðar. Umræð-
an ætti miklu frekar að snúast um
það hvað við sem samfélag erum
tilbúin að gera fyrir þá einstaklinga
sem þjónustuna nota og þar starfa.
Hlutverk okkar bæjarfulltrúa er
ekki að horfa eingöngu til starfsem-
innar innan veggja Fjöliðjunnar og
tækifæranna þar, þó svo að það sé
vissulega stór þáttur. Við eigum
einnig að horfa til þess og stuðla að
því að fleiri og fjölbreyttari tækifæri
verið sköpuð á vinnumarkaði fyrir
þennan hóp samfélagsins.
Fjöliðja framtíðarinnar á það inni
hjá okkur.
Elsa Lára Arnardóttir
Ragnar Sæmundsson
Valgarður Lyngdal Jónsson
Bára Daðadóttir
Kristinn Hallur Sveinsson
Höfundar skipa meirihlutann í
bæjarstjórn Akraneskaupstaðar.
Fjöliðja til framtíðar
Tillaga að endurbyggðu húsi Fjöliðjunnar og viðbyggingu við Dalbraut.
Salbjörg Nóadóttir er hér með fullt skottið af gjöfum á leið til Reykjavíkur þar sem pakkarnir verða afhentir til áframsend-
ingar til Úkraínu.
Með skottið
fullt af gjöfum til
úkraínskra barna