Skessuhorn


Skessuhorn - 11.11.2020, Síða 27

Skessuhorn - 11.11.2020, Síða 27
MIÐVIKUDAGUR 11. NóVeMBeR 2020 27 Það hefur verið ákveðin vakn- ing fyrir sjósundi hjá grundfirsk- um konum upp á síðkastið og hef- ur sérstakur hópur verið stofnaður fyrir baðferðirnar. Sigurborg Kr. Hannesdóttir í Grundarfirði var sú sem byrjaði á þessu og hrein- lega fær ekki nóg af því að kæla sig í sjónum. „Þetta byrjaði með því að ég prófaði að fara í sjósund í Stykkis- hólmi í ágúst í fyrra,“ segir Sigur- borg í stuttu spjalli við Skessuhorn. „Þar fékk ég að kynnast þessari frá- bæru íþrótt sem sjósund er,“ bæt- ir hún við. Sjósundið í Grundar- firði byrjaði 3. október síðastliðinn með heimsókn sjósundskvenna úr Stykkishólmi sem komu og kynntu íþróttina fyrir þessum áhugasömu konum og komu þeim af stað. „Við höfum flestar verið sextán og þá koma konur frá ólafsvík, Staðar- sveit og Stykkishólmi og syntu með okkur,“ segir Sigurborg. „Núna síðustu vikurnar höfum við verið sjö til átta að mæta en það er ákveð- inn kjarni. Það eru alltaf að koma einhverjar nýjar með til að prófa og margar þeirra ætla að byrja á þessu í vor með okkur.“ enn sem komið eru þetta einung- is konur sem taka þátt í sjósundinu, en þær auglýsa eftir körlum til að prófa með þeim. Sigurborg segir að þær séu oft spurðar hvort að þær ætli að baða sig í sjónum í allan vet- ur, því vissulega er orðið frekar hrá- slagalegt í veðri þessa dagana. „Við erum oft að hugsa um að pakka niður sjósundsdótinu en svo kem- ur fallegt haustveður og við erum stokknar af stað og út í sjó,“ segir Sigurborg. „Við erum reyndar að gæla við að fara í sjóinn á gamlárs- dag og enda árið með stæl ef veður leyfir,“ bætir hún við. Aðspurð segir Sigurborg að þetta sé nú frekar sjó- böð heldur en sjósund enda er ekki mikið verið að synda þarna. „Þetta er ótrúlega gefandi, náttúrulegt orkuskot fyrir líkama og andlega líðan. Hækkar hreinlega hamingju- stigið hjá manni og svo á þetta víst að vera gott fyrir ónæmiskerfið sem hlýtur að styrkjast þessa dagana. Svo finnst mér sjósundið hafa gef- ið mér aukinn framkvæmdakraft,“ segir Sigurborg er hún dásamar þessa iðju. „Svo er félagsskapurinn einstaklega góður. Það er bara allt uppbyggilegt við þetta.“ Það er því ljóst að mikil sjósókn er í Grundar- firði og snýst ekki eingöngu um að sækja björg í bú. tfk Knattspyrnufélag ÍA hefur samið við fjóra nýja leikmenn fyrir kom- andi tímabil og endurnýjað samn- inga við aðra. Árni Salvar Heimisson er fædd- ur árið 2003 og hefur hann samið við félagið til lok árs 2022. Hann hefur spilað einn leik í Pepsi Max deildinni og kemur hann inn í liðið í gegnum uppeldisstefnu félagsins. Júlíus emil Baldursson er fædd- ur 2002 og kemur einnig í gegn- um uppeldisstefnu félagsins. Hann gerði samning til lok árs 2023. Þá hefur félagið samið við Loga Mar Hjaltested sem er efnilegur mark- vörður. Hann er fæddur árið 2005 og kemur í gegnum uppeldisstefnu félagsins og samdi við ÍA til loka árs 2023. Loks hefur Lilja Björg ólafsdóttir gert sinn fyrsta samn- ing við Knattspyrnufélag ÍA en hún kemur í gegnum yngri flokka starf félagsins. Lilja Björg er fædd 2003 og hefur spilað sex leiki fyr- ir meistaraflokk kvenna í deild og bikar. ÍA hefur einnig endurnýjað samning við Árna Marinó einars- son markvörð sem gekk til liðs við félagið 2018. Árni hefur bæði leik- ið með 2. flokki karla og meistara- flokki Skallagríms. Steinar Þor- steinsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við ÍA en hann hefur verið einn af lykilmönnum félagsins undanfarin ár. Ísak Örn elvarsson hefur einnig endurnýjað sinn samning við félagið til loka árs 2022, en hann er ungur og efnileg- ur leikmaður. Loks hefur Bryndís Rún Þór- ólfsdóttir fyrirliði framlengt samn- ing sinn við ÍA til næstu tveggja ára. Bryndís hefur spilað 118 leiki í deild og bikar og skorað níu mörk. arg/ Samsett ljósmynd/ kfia. Kvennalandslið Íslands í körfubolta hélt til Heraklion í Grikklandi á sunnudaginn og keppir nú í vikunni tvo leiki í undankeppni eM. Liðið tekur nú þátt í mótinu þrátt fyrir mótmæli KKÍ undanfarnar vikur og fleiri þjóða. Þrátt fyrir þau ákvað FIBA að halda sig við að láta leik- ina fara fram. Hér á landi hafði ver- ið æfingabann í íþróttum og því var engan veg- inn hægt að segja að und- i rbúningur liðsins hafi verið viðun- andi áður en haldið var utan. Leik- irnir tveir hjá stelpunnum áttu að vera heima og að heiman í þessum nóvember glugga, en verða báðir spilaðir í Grikklandi. Leikdagar stelpnanna verða á morgun, fimmtudag og laugardag- inn 14. nóvember. Báðir hefjast þeir kl. 15.00 að íslenskum tíma og verða í beinni útsendingu á RÚV. Fyrri leikurinn er gegn Slóveníu og sá síðari gegn Búlgaríu. FIBA gaf fyrir helgi út styrkleikastöðu þjóð- anna fyrir komandi leiki og er Ís- land númer 31 af 33 þjóðum. Alls taka 40 þjóðir þáttt í evrópukeppni kvenna á vegum FIBA en sjö af þessum 40 eru í svokallaðri smá- þjóðakeppni og því ekki undan- keppni eM. Fulltrúar Vesturlands í landsliðs- hópnum eru Sigrún Sjöfn Ámunda- dóttir úr Skallagrími, sem jafnframt er leikjahæst íslensku stúlknanna, og fararstjóri er Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ. mm „Þessi ákvörðun knattspyrnuyfir- valda komu mér alls ekkert á óvart. Knattspyrnusambandið var búið að lýsa því yfir að tímaramminn til þess að klára Íslandsmótið væri 1. desember næstkomandi og þegar sóttvarnaryfirvöld ákváðu að stöðva allar keppnir og æfingar til a.m.k. 17. nóvember þá fannst mér þetta liggja alveg ljóst fyrir. Auk þess vildu knattspyrnuyfirvöld helst ekki láta leika síðustu umferðirnar inn- anhúss,“ segir Jóhannes Karl Guð- jónsson þjálfari meistaraflokksliðs ÍA um þá ákvörðum að aflýsa öllum knattspyrnumótum. „en ég neita því ekki að ég hefði viljað láta klára mótið. Við sigldum nokkuð lygnan sjó í deildinni og það hefði verið gott tækifæri til þess að gefa ungu strákunum í liðinu aukin tækifæri til bæta við reynslu sína í þessum fjórum umferðum sem eft- ir voru.“ Jóhannes Karl segir að æf- ingar liggi nú alveg niðri en um leið og sóttvarnayfirvöld gefa grænt ljós á að hefja æfingar að nýju, þá fari allt á fulla ferð aftur og undirbún- ingur fyrir næsta tímabil hæfist þá formlega. Tækifæri fyrir yngri spilara Tveir af lykilmönnum Skagamanna í sumar, þeir Stefán Teitur Þórð- arson og Tryggvi Hrafn Haralds- son, fóru nýlega í atvinnumennsku til Danmerkur og Noregs. Það var vissulega blóðtaka fyrir Skagaliðið. Hvernig sér Jóhannes Karl næsta sumar fyrir sér án þeirra. „Það lá alltaf ljóst fyrir í sumar að þeir tveir væru hugsanlega á förum frá okkur. Við höfum ætíð viljað gefa yngri leikmönnum tækifæri að þróa sig og eiga þann möguleika að fara lengra og þá í atvinnumensku. Yngri leikmenn fá þá verðskulduð tækifæri með liðinu og munum við sýna þeim fullt traust til þess. en við munum þrátt fyrir það senni- lega líta eitthvað í kringum okk- ur með utanaðkomandi styrkingu fyrir næsta sumar,“ sagði Jóhannes Karl. se/ Ljósm. úr safni. „Þessi ákvörðun kom mér alls ekki á óvart“ Nýir leikmenn í herbúðir ÍA Taka þátt án viðunandi undirbúnings Sigurborg Kr. Hannesdóttir. Mikill áhugi fyrir sjósundi í köldum Breiðafirði Þær voru ófeimnar við að vaða út í kaldan sjóinn þessar kraftmiklu konur. Svo er hoppað upp í ölduna.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.