Bæjarins besta - 09.12.1987, Side 6
6
Isfirðingar eru alls staðar
BÆJARINS BESTA
„Die Familie Jóhannesson“ ber Bæjarins besta augum.
Vilberg
Viggósson
skrifar
frá Freiburg
í Þýskalandi
„Maður er alltaf með
blandna heimfþrá
-segir Þorsteinn Jóhannesson, skurðlæknir í viðtali við BB
Margir ísfirðingar muna senni-
lega eftir Þorsteini Jóhannessyni
sem var læknir hér árið 1979.
Þorsteinn, sem er fæddur og
uppalinn á ísafirði, hefur síðast-
liðin sjö ár búið í Þýskalandi
ásamt konu sinni Friðnýju Jó-
hannesdóttur, sem reyndar er líka
að læra læknisfræði og syni þeirra
Jóhannesi.
Þorsteinn lauk prófi árið 1985 í
almennum skurðlækningum, en
er nú að sérmennta sig enn frekar
í þeirri grein. Hjartaskurðlækn-
ingar heitir það, og framkvæmir
hann m.a. hinar svokölluðu "By-
pass“ aðgerðir ásamt kollegum
sínum. Þorsteinn starfar nú við
háskólasjúkrahúsið í Freiburg, en
til að gefa einhverja hugmynd um
stærð þess, þá eru þar tvö þúsund
og eitt hundrað sjúkrarúm og við
það vinna sex þúsund starfsmenn,
næstum tvisvar sinnum fleiri en
allir ísfirðingar.
Við rétt náðum á Þorstein áður
en hann lagði af stað til Parísar í
stutt frí og spjölluðum stuttlega
við hann. Við byrjuðum auðvitað
á því að spyrja hvers vegna hann
hafi valið Þýskaland, þar sem svo
margir fara til norðurlandanna
eða Bandaríkjanna í læknisfræði-
nám.
„Það var einmitt þess vegna.
Mig langaði að fara aðrar leiðir
og skrifaði mörgum spítölum og
leist mjög vel á hér í Þýskalandi.,,
Hvemig líkar ykkur hér?
„Okkur líkar vel. Hér höfum
við kynnst mjög góðu fólki og
Iíka erfiðu. í Freiburg er fólk
opnara en annarsstaðar í Þýska-
landi og er það sennilega vegna
þess hve þetta er mikil náms-
manna borg.“
Við biðjum Þorstein um örfá
fróðleiksorð um borgina.
„Nú Freiburg er í hjarta
Schwartswald og er nálægt hinu
svokallaða þriggja landa horni
þ.e. Þýskalandi, Frakklandi og
Sviss, þannig að héðan eru góðir
feröamögu.eikar. Hér búa um
190 þúsund manns og þar af eru
22 þúsund námsmenn, sem setur
óneitanlega mikinn svip á
borgina. Freiburg er lítil
iðnaðarborg sem byggir afkomu
sína að mestu leiti á þjónustu,
iðnaði og ferðamönnum. Þó
borgin sé ekki stór, þá eru hér
flestar tegundir skóla, ópera,
leikhús og flest það sem prýðir
stærri borgir. Munsterkirkjan er
mjög eftirtektarverð, en hún
hefur verið lengi í smíðum eða
síðan á 12tu öld að mig minnir."
Hér skýtur Friðný inní:
„Hér eru menn mjög meðvitaðir
um mengunarvandamál og hér
hefur m.a. verið byggt mikið af
hjólabrautum, til þess að fá fólk
til að leggja bílnum og hjóla í
staðinn. Hefur þetta tekist það
vel að í Freiburg er mesta reið-
hjólamenning í öllu Þýskalandi.
Hér hefur fólk tvennskonar
ruslafötur og þarf að flokka sitt
sorp í þær, vegna þess að mest af
sorpinu er endumýtt. Hér em
líka hinir svokölluðu græningjar
fjölmennastir.“
Nú er lega borgarinnar hag-
stæð upp á ferðalög að gera,
hafið þið getað nýtt ykkur það?
Þorsteinn: „Ég vinn það mikið
á klínikinni þ.e. frá kl. 7 á
morgnana til kl. 7-8 á kvöldin og
svo eru 5-6 sólarhringsvaktir í
mánuði, að það er ekki mikill tími
til aflögu til að notfæra sér það.“
Er rnikill samgangur milli
ykkar íslendinganna hér?
„Tíminn leyfir ekki mikinn
samgang, en við vitum af öllum
og það þekkjast allir.“
Friðný bætir við: „Þeir leita til
Þorsteins ef það em einhver
læknisvandamál.“