Bæjarins besta - 09.12.1987, Qupperneq 7
BÆJARINS BESTA
7
Jóhannes að dunda sér við danska gæðaframleiðslu.
Þorsteinn: ,,Já, ég bendi þeim á
réttar leiðir, ef ég get ekki
hjálpað sjálfur. Annars erum við í
íslendingafélaginu í Stuttgart þar
sem við íslendingarnir höldum
m.a. þorrablót og svo Jólamessu,
sem er sérstök að því leiti að þar
messar þýskur prestur á full-
kominni íslensku. Það er mjög
gaman að hlusta á hann.“
Nú hefur þú búið í 7 ár hér í
Þýskalandi, ertu nokkuð með
heimþrá?
„Maður er alltaf með blandna
heimþrá. Það er margt sem
maður hefur hér, en líka margt
sem maður saknar. Við reynum
að fara heim á hverju ári en tvö
árin höfum við ekki komist.“
Sonur þeirra, Jóhannes, fædd-
ist á ísafirði, en var aðeins 19
mánaða gamall þegar fjölskyldan
flutti til Þýskalands. Hér gengur
hann í þýskan skóla og lærir þar
það sama og þýskir jafnaldrar
hans. Þó að hans nám og leikur
við vini fari aðallega fram á
þýsku, þá talar hann ekki síðri
Islensku en níu ára jafnaldrar
hans á ísafirði.
Nú ólst Þorsteinn upp í fjör-
unni og tjöllunum á Isafirði, hefði
hann viljað að Jóhannes ælist þar
upp líka?
„Vissulega. ísafjörður er til-
valinn staður fyrir böm að alast
upp á. Þar er svo margt sem
heillar barnshugann, bæði stutt
upp í fjall og niður á bryggju að
dorga og svo auðvitað skíðaað-
staðan. Þar kynnast þau mörgum
þáttum mannlífsins t.d. atvinnu-
lífinu. Þó er leitt til þess að hugsa
hversu aðstöðumunurinn er
mikill í sambandi við menntun
miðað við höfuðborgarsvæðið og
eru það náttúrulega samgöngu-
erfiðleikarnir sem ráða þar
mestu. Það er erfitt að fá fólk til
að setjast þar að til frambúðar.“
Hvenær ertu svo búinn að
læra?
„Maður er náttúrulega aldrei
búinn, en ætli það verði ekki tvö
til þrjú ár í viðbót.“
Ferðu þá tíl íslands eða ætlar
þú að starfa hér?
„Við höfum alltaf ætlað heim.“
Með þessum orðum lokum við
minnisbókinni, þökkum Þorsteini
fyrir spjallið og óskum fjöl-
skyldunni góðrar ferðar til
Parísar.
BÆJARFÓGETINN Á ÍSAFIRÐI
SÝSLUMAÐURINN í ÍSAFJARÐARSÝSLU
Brennur á gamlárskvöld
Þeir sem hyggjast hlaða bálkesti á ísa-
firði og í ísafjarðarsýslu til þess að
kveikja í þeim á gamlárskvöld eða á
þrettándanum, skulu sækja um leyfi til
þess sem fyrst. Fulltíða ábyrgðarmaður
skal vera fyrir hverri fyrirhugaðri
brennu.
2. desember 1987.
Bæjarfógetinn á ísafirði
Sýslumaðurinn íísafjarðarsýslu
Pétur Kr. Hafstein
JOLASMELLUR
Laugardaginn 12./12. kl. 13-20
10-20% afsláttur
af öllum snyrtuvörum
Gefðu CLARINS jólagjöf
Pantið jólasnyrtinguna tímanlega
ARIANNA
Snyrti-, fótaaðgerða-, og nuddstofa,
Hólastíg 6, Bolungarvík. Sími 7326.
15% afsláttur
af Kitchen Aid hrærivélum
og fylgihlutum í setti
Eldhúsljós -10% afsláttur
hljómtæki og örbylgjuofnar
10% kynningarafsláttur
ATH!
Jólatilboð Nesco
gilda einnig hjá okkur
Litaðar útiljósaperur - 55 kr. stk.
SVIunið ódýru jólaserírunar
Lítið inn og fáið ykkur kaffi og konfekt
Rafmagnsverkstæðið RAFSJÁ
Holtastíg 6, Bolungarvík, sími 7326