Bæjarins besta

Eksemplar

Bæjarins besta - 09.12.1987, Side 10

Bæjarins besta - 09.12.1987, Side 10
10 BÆJARINS BESTA Og hefur vkkur gengið vei að verða ykkur út um hráefni? „Já, við vorum búin að lána talsverðan fisk áður en skipið fór, þannig að við erum að fá það svona smátt og smátt til baka. Við fáum hráefni sem dugar fyrir það fólk sem við höfum héma í vinnu. En ef við hefðum meiri fisk þá myndum við ráða fleira fólk og það stendur til bóta eftir áramót. Við emm búin að gera ráð fyrir því að fá tíu til fimmtán erlendar stúlkur í janúar.“ Verður vinna I húsinu hjá ykkur á milli jóla og nýárs? „Ég reikna nú ekki með því í þetta skiptið, af því að við höfum ekki togarann. En það skapast líka af því hvað þeir fiska héma í nágrenninu við okkur.“ „Erlent vinnuafl eftír áramót66 - segir Hansína Einarsdóttir hjá Hraðfrystihúsinu h.f. Hnífsdal VIÐ sögðum frá því í BB í síðustu viku að lítil vinna væri í frystihúsunum. Þetta er sem betur fer ekki algilt. í því sam- bandi má m.a. nefna Hraðfrysti- húsið hf. í Hnífsdal. Togarinn þeirra, Páll Pálson, hefur verið í slipp í haust og því spurðum við Hansínu Einarsdóttur hvemig hefði gengið hjá þeim að undan- fömu. „Það hefur verið næg vinna fyrir það fólk sem við höfum. Þaö hafa alls fallið úr fimm heilir dagar, þó að togarinn sé ekki hér.“ „Okkur vantar fólk en ekki fisk“ í Hraðfrystihúsinu Norður- tanga hf. er sömu söguna að segja. Þar hefur verið næg vinna allt þetta árið og hafa aðeins fallið úr tveir dagar á árinu öllu. Meira að segja hefur verið unnið þar flesta laugardaga. Að sögn Eggerts Jónssonar hefur verið nægur fiskur. Að endingu sagði Eggert: „Við hefðum getað bætt við okkur fólki því við höfum alveg nógan fisk til þess að vera með fleira fólk. Það sem okkur vantar er fólk en ekki fiskur.“ FRÁ LESENDUM: Hörmuleg þjónusta Landsbankinn er fyrir nokkm orðinn 100 ára og var því fagnað með tilstandi í starfstöðvum bankans. Viðskiptavinum vora kynntir nýjir innlánsreikningar og fagur- lega talað um aukna og bætta þjónustu við þá En sælan var ekki langvin á ísafirði. Á liðnu sumri var rokið til og breytt afgreiðsluháttum útibúsins á Isafirði, gagnvart almennum viðskiptavinum. Breyting sú er afturför, svo nánast er kvalræði að þurfa að sinna þar erindum ef fleiri bíða utan borðs, en starf- andi gjaldkerar era fyrir innan. Silagangur afgreiðslunnar er slíkur að einföldustu tilvik, að taka út eða leggja inn peninga á bók eða selja ávísun taka iðulega 10-15 mínútur, en áður var því lokið á 1-2 mínútum. Augljóst er öllum viðskipta- mönnum hörmuleg afturför þjón- ustunnar. í stað fyrirheita um aukna og bætta þjónustu við við- skiptavini er engu líkara en ofgert hafi verið og í framkvæmd hafi þetta snúist í andhverfu sína og nú skuli heldur jafnað um alla „utanborðs“ menn. Hvort þama veldur tækjabúnaður, aflagður hjá öðram, eða vinnuskipulagning, þá væri eflaust skárra að aftur væri tekið upp fyrri búnaður og vinnulag. Telji stjómendur Landsbank- ans slíka þjónustu ekki gefa rétta eða æskilega mynd af þjónustu- lund stofnunarinnar verða þeir að taka í taumana þegar í stað og sjá um að koma á bættri og greiðari afgreiðslu við viðskiptavini bankaútibúsins á ísafirði. E.J. jólagjafir? allt í pakkann í Baðstofunni Barna og unglinga sængurverasett með myndum [) Tommi og Jenni C> BMX [) Barbie í> Prúðuleikararnir í> Madonna James Dean P.S. Nvtt tímabil greiðslukorta er hafið hiá okkur. Opið á laugardag til kl. 18. ibaðstofan SKEIÐI — 400 ÍSAFJÖRÐUR — SÍMI94-4229

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.