Bæjarins besta - 09.12.1987, Blaðsíða 13
BÆJARINS BESTA
13
Málefni aldraðra
í tilefni mann-
réttindadags
KYNNING
TIL að vekja athygli á ýmsum
þeim málefnum sem Sameinuðu
þjóðirnar beita sér fyrir, hafa þær
valið ákveðna daga og tileinkað
þeim. Einn þeirra, alþjóðlegi
máhnréttindadagurinn, er hald-
inn árlega 10. desember.
Okkur Islendingum kann í
fljótu bragði að virðast umræða
um mannréttindi koma okkur
lítið við, því þau séu hér með því
sem best gerist í heiminum.
— Einmitt þess vegna höfum við
þó frjálsari hendur en margir
aðrir til að vinna fyrir málstað
réttlætisins, og berum nokkra
ábyrgð að falla ekki í sinnuleysi
um mannleg málefni.
Bahá’íar eru meðal þeirra ó-
pólitísku aðila sem starfa við
Sameinuðu þjóðirnar, og eiga
m.a. fulltrúa við mannréttinda-
stofnun þeirra.
í samþykktum og yfirlýsingum
Sameinuðu þjóðanna hefur því
marg sinnis verið haldið fram að
áhrifaríkasta, og raunar eina
leiðin til að bæta mannlegar að-
stæður — til að tryggja mann-
réttindi og koma á friði og rétt-
læti á jörðinni — sé með mennt-
un. Báhá’íar telja að menntun í
þessu samhengi geti ekki verið
bara fræðileg. Sú menntun sem
þarf, er þroskun skapgerðar. Pað
er t.d. ekki nægilegt að segja
barni að það sé skylda þess að
virða mannréttindi, heldur þarf
tilsögn og þjálfun sem þróa með
barninu eiginleika svo sem rétt-
lætiskennd, umburðarlyndi og
samúð — eiginleika sem eru
ómissandi ef barnið á í fram-
tíðinni að stuðla að og vemda
mannleg réttindi.
Fram hjá því verður ekki geng-
ið, að uppeldi er undirstaða
menningar og mannlegra fram-
fara. Þess vegna leggja Bahá’íar
til, að ríkisstjómir stuðli að
skilningi og viðurkenningu allra
sem fást við uppeldi — og þá
sérstaklega foreldra og forráða-
manna — á ómissandi hlutverki
sínu, og hve fordæmi þeirra er
mikilvægt félagslegum, andlegum
og siðferðilegum þroska bam-
anna.
Hlutverk unglinga í mótun
framtíðarsamfélags okkar er afar
athyglisvert. Mannréttinastofn-
unin hvatti fyrir fáum ámm ámm
ríkisstjórnir til að gera ráðstafanir
til þess að ungmenni nýti sér öll
mannréttindi sín, þ.á.m. réttinn
til náms og vinnu, og til þess að
ungt fólk geti tekið virkan þátt í
að móta og framkvæma áætlanir
varðandi efnahagslega og félags-
lega þróun í löndum sínum.
Þaö er mikilvægt að á öllum
stigum, bæði á heimilinu og utan
þess, sé ungt fólk búið undir að
takast á hendur störf, sem ekki
eru aðeins ágóðavænleg, heldur
þjóna samborgurum okkar.
Við íslendingar segjumst oft
vera fáir og smáir. Frumkvæði
okkar, og fordæmi getur þó verið
stórt.
F.h. andlegs ráðs Bahá’ía
á ísafirði.
Ingibjörg Daníelsdóttir.
Dagvistun - dagdeild aldraðra
Dagvistir fyrir aldraða eru reknar á nokkrum stöð-
um hér á landi í dag. Starfsemi slíkra dagvista er þá
tengd einhverri stofnun sem veitir ákveðna þjón-
ustu eða er sett upp til að efla þá þjónustu sem þeg-
ar er veitt.
Hlutverk dagvistunar aldraðra er að mæta þörf-
um þeirra sem búa í heimahúsum, einir eða hjá
skyldmennum, en þarfnast umönnunar og sam-
félags við aðra sem erfitt er að veita þeim á full-
nægjandi hátt í heimahúsum. Hér er því um að ræða
mikilvægan hlekk í þjónustukeðju fyrir aldraða, sem
gerir þeim kleift að dvelja sem lengst í heimahús-
um, ef þeir vilja og geta.
Yfirleitt er reiknað með að þeir sem dvelja á dag-
vist geti verið það í ákveðinn tíma daglega.
Meðal þeirrar þjónustu sem boðið er upp á, er að-
stoð við böð og persónuleg þrif, eftirlit með lyfjum,
sjúkraleikfimi og aðstoð við gönguferðir, fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla, ýmiss konar tómstunda-
starf og fjölbreytt handavinna, matarþjónusta í há-
degi, morgun- og síðdegiskaffi, flutningur til og frá
heimili fyrir þá sem ekki geta annast það sjálfir.
Vonandi getur slík deild sem hér um ræðir tekið
til starfa hér á ísafirði bráðlega.
Jólaqleði í Krúsinni, lauqardacrskvöld kl. 20-3
TÍSKUSÝNING FRÁ BLONDIE
HÁRGREIÐSLUSÝNING FRÁ TOPPHÁRI
SKARTGRIPIR FRÁ GULLAUGA
FÖRÐUN: KRISMA
Jólaqlöqq og piparkökur - iólastemninq
Hljómsveitin DOLBY leikur fyrir dansi kl. 23-3
Sunnudagskvöld, opið kl. 20-1