SÍBS blaðið - febr 2020, Qupperneq 5

SÍBS blaðið - febr 2020, Qupperneq 5
5 1. tbl. 2020 skemmdu húsnæði og athuga hvernig þeim reiðir af. Við vitum nógu mikið til þess að framkvæma ekki slíkar rannsóknir þar sem áhættan er þekkt. Það sem er þó óljóst er hvaða þáttur eða samspil það er í rakskemmdu húsnæði sem veldur heilsuskaða. Hingað til hafa mælingar gefið takmarkaðar upplýsingar eins og áður hefur komið fram. Það má því eiga von á frekari upplýsingum á næstu árum með tilkomu DNA raðgreininga og nýrra rannsóknaraðferða. Mögulega spila einnig inn í heilsufarsáhrif, viðnám einstaklings, fyrri saga og lifnaðarhættir. Okkur skortir tvíblindar rannsóknir en byggjum þess í stað frekar á niðurstöðum faraldsfræðirannsókna, feril- og samanburðarrannsóknum. Rannsóknir þar sem hópar eru bornir saman til að prófa tilgátu um samband á milli áreitis og sjúkdóms eða einkenna, gefa skýrt til kynna, að viðvera í rakaskemmdu húsnæði er heilsuspillandi. Einkennin sem helst eru nefnd eru astmi, öndunarfæraeinkenni, tíðari sýk- ingar, húðvandamál og truflun í ónæmiskerfi (WHO, 2009). Önnur einkenni sem hafa fengið meiri athygli síðustu ár og er verið að skoða betur eru einkenni frá taugakerfi, meltingu, hormónakerfi og breytt geðslag, svo sem kvíði og þunglyndi. Það er mikilvægt að hafa í huga að þessi einkenni tengjast flest ekki beinum ífarandi sýkingum myglu, heldur viðbrögðum ónæmiskerfisins við áreiti af þeirri efnasúpu og örögnum sem eru til staðar í rakaskemmdu húsnæði, við innöndun eða inntöku í gegnum húð og meltingarveg. Rakaöryggi í byggingum Það er vandasamt verk að halda húsnæði þurru, en samt vel gerlegt. Strax á hönnunarstigi þarf að huga að rakaöryggi og takmarka áhættu vegna rakaþéttingar og leka. Koma má í veg fyrir ýmsa áhættuþætti strax á hönnunarstigi, með því að rýna verklýsingar og frágang með þessu tilliti, horfa til bygg- ingareðlisfræði og reikna út áhættu vegna rakaþéttingar. Þá er einnig mikilvægt að velja rétt efni sem henta aðstæðum og því álagi sem líklegt er að verði á þeim. Við framkvæmd þarf einnig að huga að rakaöryggi og verklagi, auk þess að geyma byggingarefni þannig að þau haldist þurr og halda byggingum Húsnæði er oft stærsta fjárfesting einstaklinga og því mikilvægt að huga vel að þeim og viðhalda verðmæti þeirra. Með því að viðhalda fasteign, fyrirbyggja leka, bregðast strax við rakavanda og endurnýja skemmd byggingarefni má reikna með að fasteign haldi verðgildi sínu og gæðum. Myglusveppir Myglusveppir eru nauðsynlegir fyrir hringrás og niðurbrot í náttúrunni. Þeir vaxa utandyra og gró þeirra berast með vindum, lofti og lífverum inn í húsin okkar. Gróin geta legið í dvala og endað undir parketi eða innan í vegg við fram- kvæmdir á húsnæði, eða verið til staðar á yfirborði í gluggum, við rúður sem dæmi. Gró þurfa eingöngu raka til þess að spíra, vaxa upp og verða að myglu. Það er alls staðar nóg af lífrænum efnum eða ryki í húsum okkar sem myglan nærist á, og hitastig í híbýlum er henni afar hagstætt. Gró myglu má því finna alls staðar en myglusveppi eingöngu þar sem raki er, eða þar sem raki hefur verið til staðar. Þegar um myglu er að ræða, tölum við um rakaskemmdir, örveruvöxt og þá efnasúpu sem fylgir raka. Vegna mikilvægis þessara efna í lífríkinu þurfum við því að læra að lifa með myglu á jörðinni en að sama skapi gæta þess að búa þeim ekki hagstætt umhverfi í híbýlum okkar. Hvað segja nýjustu rannsóknir Þegar gluggað er í gagnabanka með ritrýndum vísindagrein um þar sem fjallað er um rakaskemmdir og heilsufars áhrif, kennir margra grasa. Það sem sérstaklega vekur eftirtekt er að flestar rannsóknir eru faraldsfræðilegar en ekki beinar til- raunir, íhlutandi rannsóknir né tvíblindar rannsóknir (RCT = randomized control trial). Sú gerð rannsókna (RCT) er talin einna marktækust, auk kerfisbundinna yfirlitsrannsókna, en fast á eftir koma faraldsfræðilegar ferilrannsóknir (cohort studies) og síðan samanburðarrannsóknir (case control studies). Vandamálið við rannsóknir sem fást við umhverfisþætti eins og rakaskemmdir í húsnæði er að siðferðislega er ekki hægt að velja hópa eða einstaklinga til þess að dvelja í raka- INNIVIST LOFTGÆÐI HLJÓÐ LÝSING ÖRYGGI EFNISVAL HÖNNUN Mynd 1. Innivist samanstendur af nokkrum þáttum ANNAÐ • Framkvæmdir • Endurbætur • Ób. reykingar • Ofnæmisvaldar LOFTGÆÐI VOC • Innréttingar • Byggingarefni • Málning/gólf • Tæki og vélar ÖRVERUR • Bakteríur • Sveppir • Vírusar • Afleiðuefni örvera EFNANOTKUN • Hreinlætisv. • Snyrtivörur • Ilmefni • Skordýraeitur • Eiturefni ÚTILOFT • Loftskipti • Bílamengun • Svifryk • Annað RAKASKEMMDIR • Mygla/bakteríur • Útgufun byggingarefna • Afleiðuefni örvera/ eiturefni • Öragnir/niðurbrot Mynd 2. Áhrifaþættir innilofts

x

SÍBS blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.