SÍBS blaðið - febr 2020, Qupperneq 7
7
1. tbl. 2020
• Rakaskimun með rakamæli
• Sjónræn skoðun
• Saga byggingar, tjón, viðgerðir og framkvæmdir
• Skoðun með hitamyndavél
• Skoðun og mat á rakaflæði og byggingareðlisfræði
• Loftræsing og möguleiki til loftskipta
• Önnur efni, efnisval
• Mannmergð
• Sýnataka; byggingarefni, ryksýni, loftsýni.
LOFTGÆÐI OG EFNI
Loftgæði innandyra skerðast ekki eingöngu vegna raka-
skemmda þó þær séu veigamikill þáttur. Loftgæði ráðast af
útilofti og þeim efnum og ögnum sem eru á sveimi í lofti á
hverjum tíma. Sum efni sem við notum daglega geta verið
skaðleg heilsu og umhverfi. Öll efni sem við notum skilja eftir
sig leifar í umhverfinu sem safnast síðan fyrir í innilofti og
skerða gæði þess og heilnæmi. Ýmsum efnum er bætt í vörur
til þess að lengja líftíma þeirra, auka bakteríu- og sveppavið-
nám, draga úr niðurbroti, gera eldtefjandi eða gefa góða lykt.
Mikilvægt er fyrir alla að draga úr notkun allra skaðlegra
efna eins og unnt er og velja umhverfis- og heilsuvæn efni
umfram annað.
Útgufun efna og rokgjörn lífræn efni (VOC)
Efni sem meðal annars safnast upp í innilofti eru svokölluð
PAH efni ( polycyclic aromatic hydrocarbons) og getur upp-
runi þeirra verið frá bílamengun að utan, efni sem koma frá
bruna eins og kerta, kola, tóbaks eða timburs.
Rokgjörn lífræn efni (volatile organic compounds= VOC)
gufa auðveldlega út úr efnum eða vökvum við lágt hitastig.
Þessi efni geta hlaðist upp í innilofti og valdið einkennum og
heilsufarsvanda en það er háð því hvaða efni og sambönd
eiga í hlut. Einhverjar lofttegundir geta haft áhrif á tauga-
kerfið, slímhúð, verið krabbameinsvaldandi, truflað ónæm-
iskerfið eða verið hormónaraskandi (naaf.no). Þessi efni
menga inniloftið ásamt því að þau geta bundist rykögnum og
þannig komist í snertingu við fólk í rýminu. Rokgjörn lífræn
efni leynast í mörgu í kringum okkur og geta losnað úr textíl-
vörum, svefnvörum, efnum, leikföngum, tækjum eða hrein-
lætisvörum svo dæmi séu tekin. Önnur dæmi um uppruna er
frá þurrhreinsuðum fötum, skordýraeitri, plastmýkingarefni,
málningu, límefnum, fúavarnarefnum, ilmgjöfum, byggingar-
efnum, húsgögnum, ljósritunarvélum og prenturum.
Ilmefni
Lyktarskyn okkar er mikilvægt meðal annars til að vekja
vellíðan og vara okkur við hættu. Hver þekkir ekki að finna
ilminn af íslensku sumri og finna samstundis til vellíðunar.
Að sama skapi vekur vond lykt með okkur ugg og í flestum
tilfellum forðumst við þær aðstæður eða bregðumst við, s.s.
brunalykt. Ilmur sem vekur vellíðan getur verið blómailmur,
nýslegið gras eða ferskir ávextir svo eitthvað sé nefnt.
Á rannsóknarstofum eru þróuð efni sem líkja eftir þessum
ilmi til þess að vekja hjá okkur vellíðan eða jafnvel hrein-
lætistilfinningu. Þessum ilmefnum (fragrance/perfume) er
síðan bætt í vörur og búnað til þess að við kaupum hann
frekar, eða til þess að við lyktum betur í amstri dagsins.
Þannig nýta framleiðendur sér skynfæri okkar til þess að
okkur líki betur við ákveðnar vörur eða aðstæður, jafnvel fólk.
En það sem við vitum núna er að þessi tilbúnu ilmefni eru
samsett úr ýmsum efnum og mörg þeirra eru jafnvel á válista.
Reglugerð Evrópusambandsins, REACH (Registration, Autho-
ritasion and restriction), nær yfir og metur heilsufarsáhættu
falin inni í veggjum og undir gólfefnum eða í þakrými og því
erfitt að finna. Í rakaskemmdu húsnæði má, eins og áður
hefur komið fram, finna myglusveppi, bakteríur, geislabakt-
eríur, afleiðuefni, útgufunarefni úr byggingarefnum, eiturefni,
agnir og aðrar rakasæknar lífverur. Mygla eða gró hennar eru
aðeins brot af þeirri efnasúpu sem má finna í rakaskemmdum.
Einfaldar grómælingar á myglu, gefa því ekki endilega raun-
sanna mynd af ástandi eða loftgæðum byggingar vegna raka-
skemmda. Undirrót alls þessa er raki sem er til staðar, eða
hefur verið áður, vegna vatnstjóns, leka eða raka þéttingar.
Þar sem loftborin gró finnast víða og mygla eða raka-
sæknar örverur vaxa gjarnan í híbýlum er ekki hægt að
útskrifa húsnæði myglufrítt, frekar er hægt að segja að
húsnæði sé án rakaskemmda eða rakavanda.
Skoðun og mat á húsnæði vegna rakaskemmda
Við úttekt á húsnæði vegna raka og myglu ætti ekki eingöngu
að einblína á það hvort mygla sé til staðar í húsnæðinu heldur
ástandi þess og hvar viðvarandi raka eða leka er að finna.
Greina þarf möguleg eldri vatnstjón og leka, og hvað má gera
til að bæta úr. Einnig þarf að kynna sér sögu, uppbyggingu,
efnisval og notkun.
Rakamælingar eru nauðsynlegar til þess að átta sig á
rakaástandi, enda er oft raki í byggingarefnum þó hann sjáist
ekki með sjónrænni skoðun. Þá er ekki síður mikilvægt, að
skoðunaraðili sé reynslumikill, með tilbæra fagþekkingu og
þjálfun sem þarf til þess að meta rakaástand, beita sjónrænu
mati og nota rakamæla. Þar sem þurrar rakaskemmdir og
mygla hafa sömu heilsufarsáhrif og þar sem raki er, og því
vandast málið þegar þarf að staðsetja þær. Þá er gott að
þekkja sögu húsnæðis og áhættustaði í húsum vegna raka-
vanda og hafa góð tök á sjónrænu mati.
Tryggjum öryggi notenda
Í nágrannalöndum okkar hafa verið gefnir út leiðarvísar
varðandi skoðun og mat á húsnæði til þess að takmarka þá
áhættu sem skapast getur þegar aðilar beita mismunandi
aðferðum við mat eða sýnatökur. Með því er notendum tryggt
öryggi. Á Íslandi eru úttektir ekki samhæfðar og aðferðir í ein-
hverjum tilfellum gefa takmarkaðar niðurstöður. Niðurstöður
geta því verið misvísandi og endurspegla ekki ástand vegna
loftgæða og tryggja því ekki öryggi notenda, sérstaklega ef
rannsókn byggir eingöngu á ryksýnum eða loftsýnum.
Markmið með úttekt á rakaskemmdum er að bæta innivist
og loftgæði og þar með lágmarka áhrif á heilsu þeirra sem þar
dvelja auk þess að viðhalda gæðum og verðmæti eignar. Mik-
ilvægasta skrefið í úttektum er að rakaskima húsnæði og
skoða ástand vegna mögulegs rakaflæðis og lekaleiða. Síðan
er hægt að ákveða sýnatökur og aðrar frekari rannsóknir.
Rannsókn sem byggir eingöngu á einfaldri sýnatöku,
gefur ekki raunsanna mynd af ástandi húsnæðis með tilliti til
rakaskemmda og myglu.
Púsluspil fagaðila
Í raun má segja að úttekt á húsnæði vegna rakaskemmda sé
fólgin í því að safna sem flestum vísbendingum eða púslum
saman til að fá fram heildarmynd af ástandi byggingar vegna
raka. Nauðsynlegt er að fagaðili safni nógu mörgum púslum
og raði saman til þess að geta dregið ályktun um ástand og
leggi til úrbætur. Eitt eða tvö púsl geta ekki gefið manni nema
vísbendingu að heildarmyndinni.
Púslin geta verið eftirfarandi:
• Skoðun á teikningum
• Mat á húsagerð, byggingarlagi og byggingarefni