SÍBS blaðið - feb. 2020, Síða 8
8
SÍBS-blaðið
kvæmd og endurnýjun. Til þess að geta valið heilnæma og
betri kosti þarf að vera til þekking bæði hjá neytendum og
seljendum.
VINNUSTAÐIR
Það sama á við um heimili eins og vinnustaði, opinbera staði
og skólastofnanir að innivist þarf að vera góð og loftgæðin
ásættanleg til þess að fólki líði vel, skili góðri framlegð, missi
ekki úr daga og haldi góðri heilsu til langframa. Það er vel
þekkt að loftgæði hafi gríðarleg áhrif á rekstur og velgengni
fyrirtækja, frammistöðu nemenda í skóla og árangur við próf-
töku. Ávinningur fyrir vinnuveitanda er tvímælalaust starfs-
fólk með betri frammistöðu og mætingu.
HVERNIG GETUM VIÐ VANDAÐ VALIÐ?
Til þess að bæta loftgæðin er mikilvægt að velja vandlega
þær vörur og efni sem við berum á okkur, innbyrðum eða
notum innandyra, t.d. við þvotta, þrif og ræstingar. Loftskipti
eru síðan mikilvæg til þess að draga úr áhrifum, þ.e. minnka/
lækka styrk þeirra efna sem inni eru. Lofthreinsitæki sem sía
agnir úr lofti og fjarlægja þær gagnast að einhverju leyti. Til
þess að bæta innivist er þá helst að halda húsum þurrum og
hreinum án ilmefna og takmarka notkun skaðlegra efna.
Það væri hægt að telja upp þau efni sem ber að varast,
en í amstri dagsins er það flókið og erfitt fyrir hinn venju-
lega neytanda. Í fyrsta lagi er góð regla að takmarka alla
efnanotkun og útbúa sín eigin hreinsiefni úr einföldum heil-
næmum hráefnum. Síðan eru nokkrar vottanir sem hægt er
að fylgja (sjá mynd). Þess vegna er gott að hafa eftirfarandi í
huga og velja:
• Ilmefnalausar vörur, eða með náttúrulegum ilmi
• Málningu með lágu útgufunargildi ( VOC), innimálning sem
næst 1g/l
• Byggingarefni sem vottuð eru af viðurkenndum aðilum,
með lágt VOC gildi (A+, M1)
• Hreinsiefni án gervi ilmefna og þalata
• Þvottaefni án ilmefna og þalata, helst ofnæmisprófuð
• Ilmkerti með náttúrulegum ilmi eða sleppa alveg, takmarka
kertanotkun
• Snyrtivörur án parabena, þalata, ilmefna og skaðlegra efna
• Textílvörur sem merktar eru með vottunum
• Svefnvörur, vottaðar og með lágmarks ertandi efnum
• Vörur sem lykta ekki af sterkum kemískum efnum.
LOFTGÆÐI ERU MIKILVÆGUR UMHVERFISÞÁTTUR
Eftir lestur þessa pistils vonast ég til, að þeir sem náðu að
klára, geri sér grein fyrir því hversu mikilvægur hluti það er
af heilsu og vellíðan á allan hátt að loftgæði séu góð. Bæði
tengist það útilofti, húsakosti, viðhaldi, loftskiptum, notkun og
ekki síst efnisvali og því sem við komum með inn í húsin okkar.
Heimilda er getið á stöku stað en heimildalisti þeirra heimilda
sem notaðar voru við greinaskrifin er hér í lok greinar og gefur
lesendum tækifæri til þess að afla sér frekari upplýsinga.
Það er mikilvægt að huga að loftgæðum innandyra þegar
við horfum til framtíðar, ekki síst þar sem áhrifa loftslags-
breytinga gætir í vaxandi mæli með breytingum á veðurfari,
hitastigi, úrkomu og breyttri samsetningu í lofthjúp og lofti
utandyra.
Við þurfum því að horfa okkur nær í neyslu og vali á
efnum, ekki bara hugsa um fjærumhverfið heldur einnig okkur
sjálf og okkar nánasta umhverfi. Þannig höfum við áhrif á
umhverfið hnattrænt til framtíðar.
Heimildaskrá fylgir í greinasafni á sibs.is
vegna efna sem eru notuð í aðildarríkjum Evrópusambandsins
og gefur upp efni sem eru á válista og viðmiðunarmörk þeirra.
Magn einstakra efna sem mynda efnasúpuna ilmefni
(e. fragrance/perfume) er oftast undir viðmiðunarmörkum
en rannsóknir hafa sýnt að komi mörg slík efni saman í einni
vöru er hægt að tala um kokteiláhrif. Við þær aðstæður geta
viðmiðunarmörk hvers efnis verið lægri en áður hefur verið
haldið fram vegna samlegðaráhrifa. Samverkandi áhrif og
skaðleg áhrif geta því verið til staðar t.d. í ilmefnablöndum.
Þetta á ekki eingöngu við um ilmefni heldur mörg efni sem eru
notuð í snyrti-, hreinlætis- og rekstrarvörur ( EUR Lex, 2012).
Það hljómar kannski undarlega, miðað við þá þekkingu
sem til staðar er nú þegar, en framleiðendur þessara vara eru
ekki skyldugir til þess að tilgreina nákvæmlega hvaða efni eru
í blöndu sem merkt er einfaldlega sem fragrance eða perfume
í innihaldslýsingu. Það er því ennþá löglegt að leyna innihaldi
eða gefa einungis upp brot þeirra sem eru til staðar. Efnagrein-
ingar hafa sýnt, að mörg ólík efni geta leynst í þessari ilmefna-
súpu. Nýjustu rannsóknir sýna, að mörg þessara efna eru
hormónaraskandi og geta haft áhrif á kynþroska og frjósemi.
Hormónaraskandi efni
Mörg efna sem eru í vörum okkar eru hormónaraskandi e.
EDC (Endocrine disrupting chemicals) t.d. þalöt (DEHP, DiNP,
DnOP, DEP, DBP), PCB og parabenar, og geta haft áhrif á
hormónabúskap, taugakerfi og ónæmisviðbrögð í lífverum.
Þessi efni leynast m.a. í plastefnum, snyrti- og hrein-
lætisvörum. Rannsóknir sýna að hormónaraskandi efni eins
og þalöt hafa áhrif á kynþroska, frjósemi og aðra hormóna-
starfsemi. Samantektarrannsóknir á faraldsfræðilegum rann-
sóknum gefa til kynna að þalöt auki líkur á astma og ofnæmi,
auk áhrifa á taugaþroska í börnum. Einnig hafa komið fram
vísbendingar um áhrif á virkni og gæði sæðisfruma og virkni
skjaldkirtils. Það er því ávinningur af því að forðast notkun
efna sem innihalda þalöt. Þau má meðal annars finna í ilm-
efnum, snyrtivörum og í þeim tilgangi að mýkja plastvörur og
má því m.a. finna í gólfefnum og matarílátum (Jurewicz J ofl,
2011). einhver þessara efna eru komin á válista Evrópusam-
bandsins (REACH) og notkun þeirra verið takmörkuð.
Heimilis hald og efnisval
Það er vandasamt í dag að velja efni sem eru notuð við
heimilis hald. Eldtefjandi efni má finna í svefnvörum, bólstr-
uðum húsgögnum og jafnvel fötum. Skordýraeitri, rot varnar-
efnum, eldtefjandi efnum og ilmefnum er stundum úðað yfir
föt áður en þau fara í sölu. Þvottaefni og mýkingarefni eru
seld með miklu magni af efnablöndum og stundum er inni-
loftið svo mettað af þeim ilmefnum að lyktin loðir við alla hluti
heimilisins og heimilisfólk. Snyrtivörur, hárvörur og krem geta
innihaldið skaðleg ilmefni og hormónaraskandi efni. Þess
vegna er fyrsta ráð til þess að takmarka þessi efni í nær-
umhverfinu að þvo öll föt áður en þau eru notuð, lofta úr hús-
gögnum og velja ilmefnalaus efni til þvotta og hreingerninga.
Einnig er ráðlegt að kynna sér sérstaklega efni í snyrtivörum
og vanda valið.
Framkvæmdir, endurbætur og nýbyggingar
Byggingarefni geta innihaldið mikið magn og jafnvel kokteil
eða efnablöndur af ýmsum efnum sem geta talist skaðleg.
Þar sem byggingarefni eru sett inn í hús og ekki er auðvelt
að fjarlægja þau, þá er mikilvægt að velja efnin sem fara inn
í húsin okkar strax í upphafi og við endurbætur. Rannsóknir
og mælingar á rokgjörnum lífrænum efnum gefa til kynna
að magn og styrkur þeirra er ávallt mestur rétt á eftir fram-