SÍBS blaðið - feb. 2020, Side 11

SÍBS blaðið - feb. 2020, Side 11
11 1. tbl. 2020 munar um minna. Lausnin á þessu væri að banna þessum skipum að koma til landsins .... nei annars það er ekki málið. Kannski mætti mögulega styrkja rafmagnskerfið á bryggj- unum þar sem þessi skip leggjast að landi þannig að þau nýttu meira rafmagn úr landi. Rafmagnið mætti selja þeim. Málin snúa að fleiru en eiginlegri loftmengun utandyra Fyrir nokkru áttum við hjá AO kost á því að senda inn ábendingar til Reykjavíkurborgar varðandi umhverfistengda þætti sem betur mættu fara. Þar listaði undirrituð upp hreinsun á götum sem gríðarlega mikilvægan þátt, hversu oft gras á umferðareyjum og á almennum stöðum væri slegið, auk þess sem plöntun tiltekinna trjátegunda nærri opinberum stöðum var einnig rædd. Þarna vorum við að benda á mengun sem skiptir okkur öll máli en einnig málefni tengd sérhæfðari vandamálum okkar skjólstæðinga sem snúa að frjókornaof- næmi og öðrum gróðurtengdum ofnæmum. Á þessum tíma voru fyrirhugaðar sparnaðaraðgerðir hjá Reykjavíkurborg sem meðal annars áttu að felast í minni grasslætti, en sá sparnaður var greinilega tekinn af annars staðar því það var slegið reglubundið sumarið eftir. Síðustu sumur höfum ekki fengið ábendingar um óeðlilega loðnar umferðareyjur eða að gras sé ekki hirt eftir slátt og vonandi verður það svo áfram. Loftgæði innandyra eru töluvert til umræðu erlendis og þá ekki aðeins í tengslum við myglu heldur almenn loftgæði. Við hér á Íslandi tengjum vel við umræður um myglu sem er orðið stórt mál og veldur fólki miklum heilsufarslegum vanda og vanlíðan svo mánuðum og árum skiptir. Annað sem færri átta sig á er að hópur fólks hefur ofnæmi fyrir lyktar- og hreinsiefnum, og það sem er ekki síður flókið og hamlandi, ilmvötnum og rakspíra. Fyrir þessa einstaklinga eru heimsóknir í sum apótek og snyrtivöruverslanir ávísun á vanlíðan, hvað þá leikhús- og listsýningar. AO hefur áhuga á að ná til einstaklinga sem eiga við þetta vandamál að stríða með stofnun hóps í huga og eru áhugasamir hvattir til að hafa samband við félagið. Útivera á höfuðborgarsvæðinu Undirrituð, sem hlaupari, hlaupaþjálfari og næringarfræð- ingur sem hvetur fólk til hreyfingar sér til heilsubótar, hefur áhyggjur af því hvort að við séum að setja okkur í heilsu- farslega áhættu með útiveru á þeim dögum sem mengunin er hvað mest, ekki síst hvað varðar langtímaáhrif á lungu og öndunarveg. Áhugavert væri að gera læknisfræðilega rann- sókn til að kanna þetta en ekki hefur fundist farvegur fyrir slíka rannsókn ennþá. Það er ljóst að grípa verður fast og yfirvegað í taumana til sporna gegn þeirri mengun sem við verðum ítrekað fyrir í okkar nánasta umhverfi. Við getum ekki stöðvað eldfjöllin í að gjósa en við getum gert svo ótal margt til að vernda umhverfið okkar betur og betur á hverjum degi. Af framangreindu má ráða að það er í mörg horn að líta en fyrst þurfum við Íslendingar að viðurkenna, hversu erfitt sem það er, að við eigum við mengun að stríða, að við erum ekki lengur „ferskasta land í heimi“. til viðbragðsáætlun þegar eldgos verða til að draga úr skaða sem mengun af þeirra völdum getur valdið. Leiðir til úrbóta Stjórnvöld og bæjaryfirvöld á hverjum stað setji aukið fjár- magn í að þrífa götur, gang- og hjólastíga, það þýðir ekkert að leggja hjólastíga út um allt án þess að hafa á planinu að þrífa þá reglubundið! Skipuleggja þarf þessi þrif á skynsamlegan máta þannig að þegar þörfin er mest þá sé mest þrifið. Vinna með hagsmunaaðilum að því að hingað séu aðeins fluttir inn vottaðir flugeldar. Þetta er mikilvægt því Íslendingar eru ekki að fara að hætta að flytja inn flugelda, svo að stjórna gæðum þeirra er það sem skiptir mestu máli að mínu mati. Mögulega mætti stjórna betur magninu sem flutt er inn. Það er reyndar áhugavert hvernig afstaða almennings hefur breyst á einu ári en samkvæmt könnun Maskínu vildu 37% svarenda óbreytt fyrirkomulag á flugeldasölu í kringum síð- ustu áramót (2019) samanborið við rúm 45% árið á undan. Leggja alfarið af áramóta- og þrettándabrennur. Brennur eru bara framleiðsla á reyk, sóti og mengun, þó svo að ástandið hafi batnað á síðustu áratugum og einungis megi setja tiltekinn eldsmat á brennurnar. Ég myndi vilja sjá meira af mengunarmælum við leik- og grunnskóla borgarinnar og að þeir séu vaktaðir á viðeigandi máta og starfsmenn upplýstir um það hvenær börnin megi fara út að leika sér og hvenær ekki. Börn átta sig síður á lélegum loftgæðum en við fullorðnu gerum og kvarta síður. Öndunarfæri barna eru viðkvæm og enn að þroskast og því er mengun mjög skaðleg fyrir þau eins og komið hefur fram hjá Gunnari Guðmundssyni lungnalækni. Einnig má nefna að svifryk kemst niður í lungnablöðrurnar og þaðan í blóðrásar- kerfið og getur magn agna í öndunarfærum barna verið 2-4 sinnum meira en hjá fullorðnum. Reykjavíkurborg og sveit- arfélögin þurfa því að sinna þessu eftirliti sérlega vel og hafa virkt upplýsingaflæði til þeirra sem sinna börnunum og bera ábyrgð á þeim á skólatíma. Hvetja fólk til að nota almenningssamgöngur meira og að hjóla, ganga eða hlaupa til vinnu eða í skóla. Mörg fyrir- tæki og stofnanir hafa sýnt gott fordæmi og bjóða upp á sam göngustyrki til sinna starfsmanna, eitt dæmi um þetta er Landspítali. Á þennan hátt má draga úr bílaumferð en við hér á höfuð- borgarsvæðinu gætum fljótlega farið að sjá og reyna á eigin skinni það sem íbúar í stórborgum heimsins þurfa að sætta sig við og snýr að notkun ökutækja innan borgarinnar. Við þyrftum þá að hafa í huga í okkar þétta skipulagi að mega kannski aðeins aka bílnum okkar á mánudögum, miðviku- dögum og föstudögum. Mælingar á svifryki í Reykjavík þurftu að vera á fleiri stöðum og upplýsingaflæði til almennings virkara til að þeir sem eru viðkvæmir fyrir geti reynt að forðast útiveru á versta tíma dagsins eða að fara út fyrir borgarmörkin til að stunda útivist sé þess nokkur kostur. Það getur þó verið snúið fyrir suma en með batnandi skipulagi almenningsvagna ætti þetta að vera tiltekinn möguleiki. Svo heyrum við líka af mengun af völdum skemmtiferða- skipa sem spúa reyk og mengun út í andrúmsloftið, það

x

SÍBS blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.