SÍBS blaðið - feb. 2020, Síða 17

SÍBS blaðið - feb. 2020, Síða 17
17 1. tbl. 2020 unarefni ásamt því að settar eru fram samræmdar leiðbein- ingar um mælingar á styrk þeirra. Tilgreind mörk þessara reglugerða, að undanskilinni reglugerð um styrk H2S í and- rúmslofti, eru í samræmi við mörk Evrópureglugerða,. Ekki er til samræmd löggjöf fyrir styrk H2S í andrúmslofti á Evrópska efnahagssvæðinu. Alþjóða heilbrigðismálastofnun (WHO) leggur til að heilsuverndarmörk fyrir sólarhringsstyrk H2S sé 150 µg/m3 en árið 2010 voru íslensku heilsuverndarmörk skil- greind sem 50 µg/m3 og ekki má fara oftar en þrisvar sinnum yfir þau mörk á ári hverju. Í 2. töflu má sjá íslensk heilsu- verndarmörk fyrir helstu loftmengunarefni sem eru mæld á Íslandi samkvæmt framangreindum reglugerðum. Heimildir 1. Umhverfisstofnun Evrópu (EEA). Air quality in Europe — 2017 report [Rafrænt]. Lúxemborg: Umhverfisstofnun Evrópu; 2017 [tilvitnun 11. októ- ber 2017]. Report No.: 13/2017. Aðgengilegt á: https://www.eea.europa. eu/publications/air-quality-in-europe-2017 2. Bryndís Skúladóttir, Arngrímur Thorlacius, Hermann Þórðarson, Guð- mundur G. Bjarnason, Steinar Larssen. Samsetning svifryksmengunar í Reykjavík [Rafrænt]. Iðntæknistofnun; 2003. Aðgengilegt á: http://www. vegagerdin.is/vefur2.nsf/Files/Svifryk/$file/Svifryk.pdf 3. Páll Höskuldsson. Svifryk í Reykjavík [Rafrænt]. Reykjavík: Efla verk- fræðistofa; 2013. Aðgengilegt á: http://www.vegagerdin.is/Vefur2.nsf/ Files/Samsetning_svifryks_Rvk/$file/Samsetning%20svifryks%20 %C3%AD%20Reykjav%C3%ADk.pdf 4. Páll Höskuldsson, Arngrímur Thorlacius. Uppruni svifryks í Reykja- vík - Rannsóknarverkefni Vegagerðarinnar 2015 [Rafrænt]. Efla verkfræðistofa; 2017 Jún [tilvitnun 12. september 2017]. Report No.: 01/27. Aðgengilegt á: http://www.vegagerdin.is/vefur2.nsf/Files/upp- runi_svifryks_i_reykjavik/$file/Uppruni%20svifryks%20%C3%AD%20 Reykjav%C3%ADk.pdf 5. Sigurjón Þórðarson. Frumdrög að áætlun um loftgæði á Íslandi. 2017. 6. Orkuveita Reykjavíkur. Umhverfisskýrsla OR 2016 [Rafrænt]. Reykjavík: Orkuveita Reykjavíkur; 2016. Aðgengilegt á: https://www.or.is/sites/or.is/ files/umhverfisskyrsla_or_2016.pdf mars og gerist helst þegar er heiðskírt. Svipað ferli má sjá við Mývatn. ON áætlar að árið 2016 var um 60% af öllu H2S sem virkjunin losaði dælt aftur niður í berglögin. Þetta verkefni er tækninýjung sem virðist vera fýsilegur kostur til að draga úr losun H2S í andrúmsloftið. Þessi aðferð gæti verið mót- vægisaðgerð til að lágmarka H2S í andrúmslofti í grennd við slíkar uppsprettur. Frekari upplýsingar um Sulfix og Carbfix verkefnið má nálgast á heimasíðu ON, www.on.is. Vöktun loftmengunar á Íslandi Heildarfjöldi mælistöðva á Íslandi í lok árs 2019 var 31 (7. mynd), þar af eru fjórar í eigu Umhverfisstofnunar. Aðrar eru í eigu sveitarfélaga eða starfsleyfishafa þar sem fram kemur að vöktun loftgæða þurfi að fara fram. Stöðvar Umhverfisstofnunar eru staðsettar á Grensásvegi, í Fjöl- skyldu- og húsdýragarðinum, á Hvaleyrarholti við Golf- klúbbinn Keili (í eigu Umhverfisstofnunar og Rio Tinto) og á Akureyri við Tryggvabraut en Akureyrarbær rekur þá stöð í samvinnu með Umhverfisstofnun. Til viðbótar eru nokkrar færanlegar mælistöðvar í eigu Umhverfisstofnunar. Loftgæði utandyra hafa verið mæld reglulega í Reykjavík frá árinu 1986 og á undanförnum árum hefur vöktun á loft- gæðum stóraukist með auknum fjölda mælistöðva og þeirra efna sem mæld eru. Í október 2016 tók gildi reglugerð nr. 920/2016 sem fjallar m.a. um brennisteinsdíoxíð (SO2), köfn- unarefnisdíoxíð (NO2) og köfnunarefnisoxíð (NOx), kolsýring (CO) og svifryk í andrúmsloftinu, styrk ósons (O3) við yfirborð jarðar og um upplýsingar til almennings. Reglugerðin leysti af hólmi tvær eldri reglugerðir. Til viðbótar gilda einnig reglugerð nr. 514/2010 um styrk brennisteinsvetnis (H2S) í andrúmslofti og reglugerð nr. 410/2008 um arsen, kadmíum, kvikasilfur, nikkel og fjölhringa arómatísk vetniskolefni í andrúmslofti. Í þessum reglugerðum eru sett mörk fyrir skilgreind loftmeng- Svissnesk gervitár við augnþurrki • Fást í öllum helstu apótekum Vantar smurolíu í augun? Tárin sem endast VISMED® myndar náttúrulega tárafilmu á yfirborði hornhimnunnar sem endist óvenjulengi á auganu VISMED® inniheldur hýalúrónsýru sem er smurolía náttúrunnar og finnst víða í mannslíkamanum VISMED® inniheldur engin rotvarnarefni og því eru hverfandi líkur á ofnæmi Vertu viss með DROPAR Skammtahylki, án rotvarnarefna. Hægt er að loka eftir opnun. Dreypiglas 10 ml Má nota í 3 mánuði eftir opnun. GEL Skammtahylki, án rotvarnarefna. Hægt er að loka eftir opnun. Dreypiglas 10 ml Má nota í 3 mánuði eftir opnun.

x

SÍBS blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.