SÍBS blaðið - feb. 2020, Síða 22

SÍBS blaðið - feb. 2020, Síða 22
22 SÍBS-blaðið sem viðkomandi andar að sér. Þættir sem hafa áhrif á útsetn- ingu eru styrkur loftmengunar hverju sinni og sá tími sem dvalið er í menguðu lofti. Einnig hefur öndunarhraði áhrif. Fólk sem er í mikill áreynslu andar að sér meira lofti. Hvað varðar aðgerðir við að draga úr útsetningu utandyra er ýmis- legt sem hver og einn getur hugað að fyrir sjálfan sig. Hér má nefna nokkur ráð. Misjafnt er hvað á við eftir því hver ferðamátinn er hverju sinni og hvort um er að ræða útivist í frístundum eða ferðir til og frá vinnu. Þegar um er að ræða útivist í frístundum er málið nokkuð einfalt. Forðist útivist við miklar umferðargötur. Á höfuðborgarsvæðinu eru mörg skemmtileg svæði sem ekki eru nálægt miklum umferðargötum þar sem hægt er að stunda göngur, hlaup eða hjólreiðar. Þar má nefna til dæmis Elliðaárdalinn, Laugardalinn, Fossvogsdalinn og svo ýmsa strandstíga á svæðinu. Þegar um er að ræða ferðir til og frá vinnu flækist málið aðeins því þá er verið að ferðast milli A og B og því oft óhjákvæmilegt að fara um eða vera í grennd við umferðar- miklar götur. Fyrir þá sem eru gangandi eða hjólandi getur mismunandi leiðaval haft mikil áhrif á útsetningu. Þá er rétt að hafa í huga að það munar um hverja 10 metra sem komist er fjær miklum umferðargötum. Þannig að ef það er í boði að fara stíga sem liggja fjær umferðargötum heldur en að fara gangstétt sem er þétt við umferðarmikla götu þá dregur það úr útsetningu. Helsta verkfærið til að draga úr áhrifum loftmengunar á heilsu fólks er minnka mengunina sjálfa. Aðgerðir sem draga úr loftmengun geta hins vegar tekið langan tíma að virka. Hertar kröfur um útblástur nýrra bíla fara til dæmis ekki að hafa áhrif að ráði fyrr en einhverjum árum síðar þegar nokkur endurnýjun hefur orðið í bílaflotanum. Almennt séð eru loftgæði á Íslandi mikil og oftast er Ísland í fyrsta sæti meðal Evrópulanda þegar borin eru saman töpuð æviár vegna loftmengunar á hverja 100 þúsund íbúa. Hins vegar koma dagar, sérstaklega í hægviðri síðla vetrar, þegar loftmengun getur farið yfir heilusverndarmörk. Útsetning Daglegar venjur fólks geta hins vegar haft áhrif á útsetn- ingu þess fyrir loftmengun. Það gildir jafnt um loftmengun utanhúss sem og gæði innilofts á heimilum. Þegar kemur að innöndun loftmengunar er hugtakið útsetning (e. „exposure“) mikið notað. Útsetning er mælikvarði á magn mengunarefna Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur Umhverfisstofnun Loftmengun og heilsa Úti að trimma. Þetta er ekki besti staðurinn til að stunda líkamsrækt. Betra er að trimma fjarri umferðarmiklum götum. Grein

x

SÍBS blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.