Nesfréttir - 01.08.2020, Blaðsíða 6
6 Nesfrétt ir
Bankastræti 4 I sími: 551 2770 I www.aurum.is
FRÍ HEIMSENDING HEIM AÐ DYRUM
Eiðistorg er á mörkum Reykjavíkur og Seltjarnarness og dregur nafn sitt af býlinu Eiði sem stóð skammt frá þar sem Eiðistorg er nú. Býlið varð að víkja fyrir nýrri byggð og var það brennt í maí 1979. Fjórum árum síðar eða 1983 er farið að reisa
byggingar á Eiði. Var um húsaþyrpingu að ræða þar sem íbúðir og
verslun skyldi halda hönd í hönd. Hugmyndin var að þarna risi miðbær
á Seltjarnarnesi en Nesið hafði ekki flaggað neinu er gæti talist til þess
fram að þeim tíma. Í Morgunblaðinu 18. maí 1983 er fjallað um þessar
byggingaframkvæmdir sem nýstárlegan miðbæ sem væri að rísa á
Seltjarnarnesi. Miðbæ sem vekja muni athygli.
Þessar byggingar sem hannaðar voru af arkitektunum Örnólfi Hall og
Ormari Þór Guðmundssyni voru í engri líkingu við það sem áður hafði
sést hér á landi. Miðja hins nýja miðbæjar var yfirbyggt miðbæjartorg,
upphitað með afrennslisvatni húsa í næsta nágrenni. Gert var ráð fyrir að
hlýtt og notalegt yrði á torginu allan ársins hring og að fólk gæti gengið
á milli verslana og fyrirtækja án þess að þurfa að berjast við kulda og
trekk. Þá var einnig gert ráð fyrir að miðbæjartorgið yrði samastaður
fyrir margvíslegar uppákomur og skemmtanir. Árið 1978 var auglýst eftir
aðilum sem kynnu að hafa áhuga á að taka þátt í byggingu miðbæjar á
Seltjarnarnesi reyndist strax mikill áhugi fyrir þessu verkefni.
Að bjóða upp á nýtt og sérstakt
Í Morgunblaðinu 19. maí 1983 var birt viðtal við Sigurgeir Sigurðsson
sem þá var bæjarstjóri á Seltjarnarnesi. Í viðtalinu sagði Sigurgeir að þegar
farið hafi verið að skipuleggja miðbæ á Seltjarnarnesi horfði orðið ljóst að
til þess að gera slíkan stað eftirsóknarverðan fyrir fyrirtæki og viðskiptavini
yrði að bjóða upp á eitthvað nýtt og sérstakt. Einnig yrði að taka tillit til
veðurfars sem geti orið vindasamt á Seltjarnarnesi. Sigurgeir sagði að eftir
ítarlegar athuganir hafi verið ákveðið að reisa yfirbyggt miðbæjartorg. Það
hafi verið talið vænleg leið til þess að fá fólk til þess að fjárfesta og versla.
Íbúðahlutinn átti að styrkja verslunarhlutann
Í upphafi ver ákveðið að skipta Eiðisgrandasvæðinu í tvo megin hluta.
Annars vegar íbúðahluta að austanverðu til að mynda skjól og nýta
útsýnið. Þar er íbúðablokk númer 1 til 9 við Eiðistorg, sem að flestra dómi
er mjög athyglisverð í öllu tilliti. Þar eru um 70 íbúðir. Margar hverjar
með stórkostlegu útsýni og bílskýli fylgdi mörgum þeirra. Sigurgeir sagði
í viðtalinu að þessar íbúðir myndi skapa miðsvæðinu ákveðna festu.
Norðan Suðurstrandar, í framhaldi af miðbænum, væri Byggung að reisa
sjö stórhýsi sem í verða um 120 til 130 íbúðir. Enn fremur yrðu 400 til 500
íbúðir í göngufjarlægð austan svæðisins, þannig að góður viðskiptakjarni
er þegar fyrir hendi.
Besta fáanlega þjónusta hérlendis
Hins vegar er það svo verslunar og viðskiptahlutinn, sem liggur sunnan
og vestan við yfirbyggða torgið. Grípum niður í viðtalið við Sigurgeir.
“Þar er Vörumarkaðurinn hf. að byggja markaðsverslun, sem verður að
gólffleti um 3.300 fermetrar, kjallari, tvær hæðir og ris. Það er óhætt að
fullyrða að þessi verslun komi til með að bjóða bestu fáanlega þjónustu
hérlendis, því hér er byggt frá grunni hús til að þjóna verslun eins og hún
getur best orðið. Við torgið verður Útvegsbankinn með ágætt útibú, þarna
verður lyfjabúð, fataverslun, tískuverslun, blómabúð, gleraugnaverslun,
gullsmiður, hárgreiðslustofa, rakari og póstur og sími með aðstöðu. Og
fleira mætti nefna.”
Fjöldi fyrirtækja á torginu
Fyrsta verslunin sem var opnuð á Eiðistorgi var matvöruverslunin
Vörumarkaðurinn sem tók til starfa í ágúst árið 1983. Í kjölfarið
fjölgaði verslunum á torginu og á blómaskeiði þess hafði fjöldi
fyrirtækja þar aðsetur. Þar á meðal Útvegsbanki Íslands, síðar
Íslandsbanki, Íslandspóstur, Nesapótek, bókaverslunin Eymundsson,
skyndibitastaðurinn Selbitinn, íþróttavöruverslunin Sportlíf, leikfanga- og
bókabúðin Hugföng, Blómastofan, snyrtivöruverslunin Evíta, vídeóleigan
Tröllavídeó og fatahreinsunin Kjóll og hvítt. Um árabil hafði lögreglan
bækistöð á Eiðistorgi og Lyfjastofnun var þar einnig lengi til húsa.
Nýtt líf með Innovation house
Skemmst er frá því að segja að ekkert af þessu er enn starfandi á
Eiðistorgi. Verslunin Nýibær tók við að Vörumarkaðnum og Hagkaup tók
síðan við rekstri matvörubúðarinnar. Þar er nú auk Hagkaupa Bókasafn
Seltjarnarness hárgreiðslustofan Perma, vínbúðin ÁTVR, veitingastaðurinn
Rauða ljónið, Apótekarinn, Arna ís- og kaffibar og frumkvöðlasetrið
Innovation house. Nokkur verslunar- og skrifstofurými standa auð og hafa
sum þeirra ekki verið í notkun um nokkurn tíma. Með tilkomu Innovation
house færðist nokkuð líf í starfsemi á Eiðistorgi en aðaleigandi þess Jon
von Tetzchner hefur á undanförnum árum fjárfest umtalsvert í húsnæði á
Eiðistorgi en hann er fæddur og uppalinn á Seltjarnarnesi.
Nýjar hugmyndir fengu blendnar viðtökur
Árið 2015 var haldin hugmyndasamkeppni um skipulag miðbæjar á
Seltjarnarnesi og var þremur aðilum boðin þátttaka. Kanon Arkitektum,
Trípólí/ VA Arkitektum og Hornsteinum. Kanon Arkitektar unnu
samkeppnina sem náði til þriggja reita: Eiðistorgs, Austurstrandar og
Melhúsareits þar sem leikskólar bæjarins eru. Samkeppninni var ætlað
að draga fram hugmyndir sem skapa áhugavert bæjarrými til frekari
þróunar og tengja reitina betur saman sem samhangandi heild. Ætlunin
var að svæðið gæti byggst upp til að mæta þörf fyrir fjölbreyttari
gerðir íbúðarhúsnæðis, sterkara atvinnusvæði og varðveislu þjónustu
í bænum. Einnig að tekið yrði tillit til nærliggjandi þjónustu bæjarins á
stofnana- og íþróttasvæðum. Skipulagshugmyndir Kanon arkiteka gerðu
ráð fyrir miklum breytingum á þessu svæði. Þar á meðal íbúðabyggð við
Norðurströnd þar sem nú er atvinnusvæði. Einnig íbúðabyggingum á
Melhúsareitnum og víðar. Skemmst er frá því að segja að hugmyndirnar
hlutu blendnar viðtökur á Seltjarnarnesi. Ekkert var aðhafst á grundvelli
þeirra. Nú hefur verið ákveðið að efna til byggingar nýs leikskóla á
Melhúsareit og þar með slegnar af allar hugmyndir um íbúðabyggð þar.
Þessar hugmyndir munu endanlega hafa verið lagðar til hliðar.
Nýjung sem ekki hefur elst vel
Eiðistorg
Fjöldi fyrirtækja og verslana hafa verið með starfsemi á Eiðistorgi
í gegnum tíðina og hafa flest þeirra hætt starfsemi.