Nesfréttir - 01.08.2020, Qupperneq 9

Nesfréttir - 01.08.2020, Qupperneq 9
Nesfrétt ir 9 Hártískan er fjölbreyttari Siddý hefur starfað við hárgreiðslu allt frá unglingsárum. Eitthvað hefur breyst frá þeim tíma að hún tók fyrstu skærin sér í hönd. „Það sem helst hefur breyst að ekkert sérstakt er lengur í tísku. Fólk velur sér miklu fremur stíl sem því finnst passa við persónu sína. Þegar ég var að byrja var permanent í mikilli tísku. Konur vildu hafa krullur í hárinu. Því þurfti að endurnýja permanentið reglulega ef þær vildu gæta að útliti sínu og viðhalda því óbreyttu. Permanentið hefur aldrei horfið. Það kemur aftur og aftur fram eins og hver önnur tíska sem fer í hringi. En það hefur ekki orðið ráðandi eins og það var á árum áður. Konur kjósa svo margt fleira. Þegar ég var að byrja var lítið um að karlar kæmu í klippingu. Þeir fóru meira á hinar hefðbundnu rakarastofur. Svo varð sítt hár í tísku á meðal karlmanna. Eldri rakararnir kunnu lítið á það og treystu sér oft ekki til þess að eiga við það að ósk viðskiptavina. Þeir vildu frekar bara klippa með rafmagnsklippum en nota skæri. Þetta fór að breytast. Karlar fóru að koma í hársnyrtingu. Nú er miklu meiri jöfnuður í þessu. Karlar og konur fara á sömu stofurnar þótt margir karlar haldi sig enn við rakarastofurnar. En hártískan er mun breytilegri en áður var. Mjög margar konur eru með litað hár. Ýmist heillitað eða strípur og karlar eru einnig farnir að lita á sér hárið. Bæði ungir menn sem vilja skapa sér stíl og einnig þeir sem farnir eru að eldast og vilja fela gráu hárin.” Komin langt yfir meðalaldurinn Siddý segir að hársnyrtar endist fremur stutt í faginu. Meðalaldur fólks er ekki nema tæp sjö ár. Af hverju stafar það. „Fyrir því er ef til vill fleiri en ein ástæða. Þetta reynir talsvert á líkamlega séð. Útheimtir miklar stöður. Maður situr ekki við að klippa eins og tannlæknar eru farnir að gera þegar þeir vinna við tannviðgerðir. Svo getur hársnyrtingin líka reynt á andlegu hliðina. Hársnyrtirinn vinnur í mikilli nálægð við viðskiptavininn. Hann verður alltaf að sýna jákvæðu hliðina á sér. Ekki dugar að deila áhyggjum með þeim sem er í stólnum. Á hinn bóginn getur verið nauðsynlegt að hlusta á viðskiptavininn. Þá verður maður að kunna að hlusta. Sumir vilja ræða daginn og veginn. Öðrum liggur ef til vill eitthvað þyngra á hjarta og eru þá komnir í nánd við annan einstakling sem verður þá að hlusta á. En þetta er eðlilega mjög einstaklingsbundið. Hársnyrtistarfið er fjölbreytt og mjög skemmtilegt. Öll flóran úr mannfélaginu kemur á stofurnar með sínum breytileika. Allir þurfa á klippingu og hársnyrtingu að halda." Alþjóðastarfið lærdómsríkt Siddý hefur sinnt félagsmálum fyrir starfsgrein sína. Hún átti sæti í Intercoiffure alþjóðlegum samtökum hársnyrtifólks og var forseti þar fyrir Ísland í sjö ár. Einnig sat hún í stjórn Hárgreiðslumeistarfélags Íslands um tíma. „Þetta var bæði ánægjulegur og gefandi tími. Maður kynntist fólki frá öðrum samfélögum og fékk einnig tækifæri til þess að fylgjast með hvað var að gerast í öðrum löndum. Þótt öll hársnyrting sé af líkum rótum má alveg greina mismunandi stíla hjá öðrum þjóðum. Til dæmis eru Frakkar og Bretar ekki alveg með sama stílinn. Það eru meiri greiðslur ef svo má að orði komast í hárinu á frönskum konum. Mér finnst Bretarnir með flottari klippingu. Breski stíllinn er að mínum dómi flottari. Þessi félagsstörf gáfu mér einnig kost á ferðalögum. Ég hef ferðast mikið um heiminn þótt ég hafi alltaf búið á Seltjarnarnesi.” Á bara yndislega viðskiptavini „Við erum tvær sem vinnum hér á hársnyrtistofunni og svo eru aðrar tvær sem koma inn á álagstíma sem ég kalla spariskvísur. Eru í einskonar hlutastarfi. Ég er löngu komin yfir meðalaldur í þessari atvinnugrein. Þetta er vinnan mín. Mjög skemmtilega og gefandi. Ég á bara yndislega viðskiptavini.” Sigurveig eða Siddý eins og hún er oftast kölluð hárgreiðslu­ meistari á Hársnyrti stofunni Permu á Seltjarnarnesi.

x

Nesfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.