Nesfréttir - 01.08.2020, Side 10

Nesfréttir - 01.08.2020, Side 10
10 Nesfrétt ir Dansskóli Birnu Björns Dansskóli Birnu Björns byrjar haustönnina af krafti 14. september á fimm stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Þar er boðið upp á dansnám fyrir alla frá þriggja ára aldri. Í dansskólanum er boðið uppá fjölbreytt dansnám en einnig er starfandi við skólann söngleikjadeild þar sem nemendur læra leiklist, söng og dans. Söngleikjadeildin er alltaf að stækka og hún spilar virkilega stóran þátt í nemendasýningu dansskólans ár hvert í Borgarleikhúsinu sem er hápunktur ársins! Nemendasýning 2021 verður Mary Poppins þar sem öllu verður til tjaldað! Einnig bjóðum við upp á barnadansa þar sem við erum með skapandi dans og tónlist í fyrirrúmi þar sem nemendur fá að leyfa ímyndunaraflinu að njóta sín. Nemendur hjá Dansskóla Birnu Björns taka þátt í undankeppni Dance World Cup árlega og keppa síðan erlendis á sumrin þar sem þeir hafa náð frábærum árangri og fengið að kynnast dansheiminum í stærra samhengi sem er virkilega ánægjulegt fyrir okkur. Einnig fer árlega stór hópur skólans í æfingarferð til London þar sem nemendur fá að kynnast nýjum dansstílum og hitta virta danshöfunda erlendis. Það er alltaf hápunkturinn að fara á söngleiki og kynnast listalífinu í London. Ár hvert heldur dansskólinn einnig sína eigin danskeppni þar sem nemendur fá að spreyta sig, læra að semja sjálfir, hanna búninga og leyfa hugmyndafluginu að njóta sín, sú keppni fer fram í nóvember og er útkoman alltaf jafn skemmtileg. Það sem stendur upp úr í dansskólanum er vináttan sem myndast í tímum og stelpurnar eru að ná gríðarlega miklum árangri þar sem við bjóðum einnig upp á tæknitíma og fjölbreyttar útfærslur á því hversu oft nemendur vilja æfa í viku. Við mælum með náminu okkar fyrir þá sem vilja fjölbreytta tíma, kynnast nýju fólki og sjá varanlegan árangur! Við tökum vel á móti nýjum og gömlum nemendum, frítt verður í prufutíma fyrstu kennsluvikuna. Opið virka daga 9 - 21 og helgar 10 - 21. Eiðistorgi 15 facebook.com/arnaisogkaffi FALLEGIR LEGSTEINAR Verið velkomin Opið: 11-16 alla virka daga Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Séra Bjarni á ættir frá Hrólfsskála Séra Bjarni Þór Bjarnason sóknar­ prestur á Seltjarnarnesi fór inn á Íslendingabók á dögunum. Þá sá hann bæjarheitið Hrólfsskáli koma fyrir hjá einni af formæðrum sínum. Hann fór að kanna málið betur. Þá kom í ljós að formóðir hans var Guðrún Ingjaldsdóttir frá Hrólfsskála. Hún var systir Sigurðar Ingjaldssonar, útvegs- bónda á Hrólfs skála sem lést árið 1887. Foreldrar þeirra voru hjónin Þuríður Bjarna dóttir og Ingjaldur Ottason á Hrólfsskála. Bjarni sagðist ekkert hafa vitað um þessi ættartengsl við Seltjarnarnesið. Hann sagðist alltaf hafa haldið að hann væri ættaður úr Skagafirði, Álftanesi, Hafnarfirði og undan Eyjafjöllum. Hann sagði að sér fyndist þetta mjög skemmtilegt þar sem hann þjónar á Seltjarnarnesi. Nú hafi hann bein ættartengsl við Seltjarnarnesið og það væri sérlega ánægjulegt. Guðrún Ingjaldsdóttir giftist norður í Skagafjörð, Gunnari Magnússyni sem var Skagfirðingur. Guðrún er því langa, langa, langamma sr. Bjarna. Séra Bjarni Þór Bjarnason.

x

Nesfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.