Morgunblaðið - 12.06.2020, Síða 1

Morgunblaðið - 12.06.2020, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 1 2. J Ú N Í 2 0 2 0 Stofnað 1913  137. tölublað  108. árgangur  MIKIÐ UM AÐMÍRÁLS- FIÐRILDI Í ÁR HIPSUMHAPS Í NÝRRI TÓN- LISTARMYND HEFUR KOMIÐ FRAM VÍÐA UM HEIM SVARTHVÍTUR DRAUMUR 28 ELÍSABET WAAGE 24ÁNÆGJULEG HEIMSÓKN 2 A ct av is 91 10 13 Omeprazol Actavis 20mg, 14 og 28 stk. Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og auka- verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is Yrði eins og „villta vestrið“  Deilt er um innviðagjald sem Reykjavíkurborg leggur á framkvæmdir  Hér- aðsdómur kveður upp dóm um lögmæti gjaldsins  Fimm milljarðar í Vogabyggð Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Aðilar á byggingamarkaði segja að byggingamarkaður verði eins og „villta vestrið“, fari svo að Héraðs- dómur Reykjavíkur komist að þeirri niðurstöðu eftir helgi að innviðagjald sem Reykjavíkurborg leggur á fram- kvæmdir í borginni verði dæmt lög- mætt. Sveitarfélög geti þá haft sína hentisemi og mismunað verktökum að vild. Heimildir Morgunblaðsins herma til dæmis að þó að innviðagjald sé 25 þúsund krónur á hvern fer- metra í Vogabyggð sé ekkert sam- bærilegt innviðagjald lagt á bygging- ar á Hlíðarendasvæðinu eða í Efstaleiti. Skortur sé á jafnræði milli aðila. Á báðum síðarnefndu stöðunum hefur verið mikil uppbygging á síð- ustu árum. Þá er bent á að byggja þurfi upp alla innviði á Hlíðarenda svæðinu en í Vogabyggð séu þeir að mörgu leyti nú þegar til staðar. 200 m.kr. brú yfir Sæbraut Samkvæmt sundurliðun á kostnaði við innviðauppbyggingu í Vogabyggð sem Morgunblaðið hefur undir hönd- um er gert ráð fyrir 546 milljóna króna kostnaði við gerð útsýnis- og göngupalla. Stígar og strandstígar munu kosta 89 milljónir króna og brú yfir Naustavog 45 milljónir króna. Brú yfir Sæbraut er hins vegar öllu dýrari, en hún á að kosta 206 milljónir króna. Framkvæmdirnar eru fjár- magnaðar með fyrrnefndu innviða- gjaldi en samanlagt kostar uppbygg- ing innviðanna á svæðinu fimm milljarða króna. MHálfur milljarður í … »4 Krakkar á öllum aldri fjölmenntu í skor- dýraskoðun í Elliðaárdal síðdegis í gær. Vísindamenn úr Háskóla Íslands skipulögðu jafnan mikilla vinsælda. Gátu ungir sem aldnir skoðað skordýr í smásjám vísinda- manna en ekki var síður forvitnilegt að kynna sér sjálf hvað leyndist í lággróðr- inum. Allir héldu á endanum sáttir og glaðir heim á leið – og margs vísari. viðburðinn í samstarfi við Ferðafélag barnanna. Viðburðurinn er í röð sem kallast Með fróðleik í fararnesti og nýtur hann Morgunblaðið/Eggert Kynntu sér undraheim skordýranna  „Ef það er eindregin stefna borgarinnar að gera þetta svæði að lokuðu svæði er borgin að gefa hreyfihömluðum þau skilaboð að við eigum afskaplega lítið erindi í mið- borgina,“ segir Bergur Þorri Benja- mínsson, formaður Sjálfsbjargar. Reykjavíkurborg hefur óskað eftir því við umhverfis- og samgöngu- nefnd Alþingis að sveitarfélög fái sjálf að ákveða hvort hreyfihamlaðir fái að aka um göngugötur. »14 Sjálfsbjörg ósátt við stefnu borgarinnar Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þegar boðuð hlutdeildarlán voru kynnt í gær sagði að með þeim mætti kaupa íbúðir á 30-50 milljónir. Um er að ræða lán fyrir fyrstu kaupendur sem hafa tekjur undir tilteknum mörkum. Hermann Jónasson, forstjóri Hús- næðis- og mannvirkjastofnunar, segir upphæðirnar hafa verið nefndar í dæmaskyni. Ekki sé búið að taka endanlega ákvörðun um hámarks- kaupverð eignanna. Upphæðirnar verði tilgreinar í reglugerð. Þá eigi eftir að taka endanlega af- stöðu til þess hvaða íbúðir uppfylli skilyrði um lántöku. Horft sé til kaup- verðs út frá herbergjafjölda fremur en fermetraverði. Markmiðið sé að setja ramma sem verktakar geti unn- ið út frá til að mæta þörfum og fjár- hag kaupenda. „Ég tel að þessi nálgun muni stuðla að nýsköpun í byggingariðnaði. Greiningar HMS hafa leitt í ljós skort á hagkvæmum íbúðum fyrir fyrstu kaupendur og tekjulægri. Þetta úr- ræði stjórnvalda hvetur verktaka til að hanna og byggja íbúðir sem henta ákveðnum markhópi. Það mun aftur leiða til nýsköpunar,“ segir Hermann. Hann telur lánin munu hafa varan- leg áhrif á fasteignamarkaðinn. „Þetta skref mun auka samráð stjórn- valda og byggingariðnaðarins við áætlanagerð og hvað eigi að byggja og hvenær.“ »11 og 12 Hámarksverð enn í vinnslu  Óvíst hvað kaupa megi dýrar íbúðir með hlutdeildarlánum sem kynnt voru í gær Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Framboð Íbúðir á Hverfisgötu. Byggja á fleiri ódýrar íbúðir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.