Morgunblaðið - 12.06.2020, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 12.06.2020, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Athugasemdirnar hrönnuðust upp þegar Erling Ólafsson skordýrafræð- ingur sagði frá því á samfélagsmiðl- um í fyrradag að einkanlega mikið væri um aðmírálsfiðrildi á sunnan- verðu landinu þessa stundina. Í sam- tali við Morgunblaðið segir hann undirtektirnar til marks um mikla út- breiðslu þessarar litríku og stóru fiðr- ildategundar þetta árið. Erling biðst undan því að lýsa ástandinu með sama orði og blaða- maður hefur af skiljanlegum ástæð- um tilhneigingu til, þ.e. að kalla þetta faraldur. Hann segir þetta öllu heldur ánægjulega heimsókn, sem sé einkar víðtæk að þessu sinni. Erling útskýrir að fiðrildin flækist hingað norður til Íslands með hlýjum loftstraumi sunn- an úr álfu og sé fjöldinn mismikill eft- ir árferði. Hér dvelja þau síðan yfir sumarið og týna tölunni eitt af öðru, ýmist af náttúrulegum orsökum eða fara í gogginum á voldugri vængjuð- um dýrum, sem er reyndar einnig náttúruleg orsök útaf fyrir sig. Erling segir að maður geti rekist á aðmírála, eða þistilfiðrildi sem eru ná- skyld tegund, hvar sem er á flögri, hvort sem er á fjöllum eða í görðum. Sömu sögu má lesa úr athugasemd- unum á Facebook-síðunni Heimi smádýranna, en þar greinir fólk frá fundum við þessi fiðrildi á eftirfarandi stöðum: Ásfjalli í Hafnarfirði, Fanna- fold í Breiðholti, Eskifirði, Torfastöð- um í Grafningi, Höfn í Hornafirði, Smárarima í Grafarvogi, Grindavík, Eyrarbakka, Svalbarða í Þistilfirði, Húsafelli í Borgarfirði, Sauðanesi á Langanesi, Vopnafirði, Breiðafirði, Mýrum á Vesturlandi, Akranesi, Þórshöfn og Selfossi. Fleiri staði mætti nefna, en eins og má ráða af þessu virðast aðmírálar helst staddir á sunnanverðu landinu en Erling seg- ir þistilfiðrildin frekar finnast á Austurlandi. Heimsókn, ekki faraldur  Sérstaklega margir aðmírálar á flögri Ljósmynd/Erling Ólafsson Aðmíráll Stærri og litríkari. Myndin er tekin á Reykjanesi síðasta haust. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is Dásamlegt kaffi nýmalað, engin hylki. – Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Tuttugu komur farþegaskipa til Reykjavíkur eru áætlaðar í júlí. Enn er óljóst hvort af öllum þess- um komum verður en Gyða Guð- mundsdóttir, framkvæmdastjóri North Atlantic Agency og tals- maður Cruise Iceland, segir að lík- urnar á því að skemmtiferðaskip komi til landsins séu meiri nú en fyrr í sumar þar sem línur varðandi skimanir séu farnar að skýrast. Staðan breytist þó í hverri viku. Um er að ræða skemmtiferðaskip sem taka 1.000 til 2.400 farþega og minni skemmtiferðaskip sem kallast leiðangursskip og taka allt að 500 farþega. Allir ferðamenn sem koma til landsins með skemmtiferðaskipum verða prófaðir fyrir kórónuveirunni rétt eins og þeir sem koma með flugi. Gyða telur mestar líkur á því að þýskir ferðamenn fari að koma til landsins með skemmtiferðaskipum á næstunni. Betur borgandi ferðamenn Gyða segir að 15.000 króna gjald- ið sem tekið er fyrir hverja skimun sé ekki fælandi fyrir ferðamenn skemmtiferðaskipa en útgerðirnar hafi alltaf gert ráð fyrir því að gjald yrði tekið. Þá eru þeir ferðamenn sem koma til landsins með minni útgerðum gjarnan betur borgandi ferðamenn og því skiptir skimana- gjaldið þá takmörkuðu máli. Þær útgerðir sem sjá fyrir sér að hefja siglingar fljótlega eru með mikið eftirlit með gestum sínum. „Útgerðirnar fara varlega af stað því ef það kæmi upp smit um borð gæti það orðið mikið högg fyrir bransann og þá gæti það jafnvel þýtt að þetta væri alveg búið í ár,“ segir Gyða og bætir því við að slæm staða sem kom upp á skemmtiferðaskipum erlendis fyrr á árinu þar sem fjöldi fólks smit- aðist af kórónuveirunni hafi hvatt skemmtiferðaskip til að skoða starf- semi sína og gera betur. Gyða telur að áhugi á að koma til Íslands með skemmtiferðaskipi sé enn til staðar hvað varðar minni skip og hópa. Fólk sé komið með nóg af því að vera heima hjá sér og sjái tækifæri í því að ferðast til Ís- lands nú þegar minna er um ferða- menn og öryggið er talið mikið. Tuttugu komur áætlaðar í júlí  Sjá tækifæri í að ferðast til Íslands núna  Staðan breytist þó vikulega Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Skip Farþegaskip hafa ekki komið til landsins síðan í mars. Síðan þá hafa komur verið áætlaðar og þeim aflýst. Óljóst er hvort farþegaskip komi í júlí. Keppni hófst á TM-mótinu í Vest- mannaeyjum í gærmorgun. Á mótinu keppa stúlkur í 5. flokki í knattspyrnu, en mótið hefur verið haldið á hverju ári frá 1990. Þátttakendur og aðstandendur hafa streymt til Eyja síðustu daga, en dagskrá mótsins hófst á mið- vikudag með bátsferðum og fleiru. Ekki er heldur ólíklegt að ein- hverjar stúlknanna hafi prófað að spranga. Mótið í ár er það stærsta hingað til. Alls taka 100 lið þátt að þessu sinni og hefðu raunar verið fleiri ef kórónuveiran hefði ekki sett strik í reikninginn. Meðal þeirra sem öttu kappi í gær voru stúlkur úr Breiðabliki og Fjarðabyggð og var allt lagt í söl- urnar á vellinum. Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Fjölmenn- asta mótið til þessa

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.