Morgunblaðið - 12.06.2020, Síða 6

Morgunblaðið - 12.06.2020, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2020 Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Ég myndi segja að salan sé nú um fimmfalt meiri en hún var í upphafi. Hún var um tíföld þegar mest lét,“ segir Einar Krist- jánsson, fram- kvæmdastjóri Rekstrarvara, um sölu á spritti. Hef- ur salan þó dreg- ist talsvert saman frá því að hægja tók á faraldri kórónuveiru hér á landi. Að sögn Einars er salan þrátt fyrir það enn mjög góð. „Bæði fyrirtæki og einstaklingar eru mjög meðvituð um þetta ennþá. Sömuleiðis erum við að merkja aukn- ingu í sölu á yfirborðsspritti, sem not- að er til að hreinsa snertifleti. Þá er þjónusta flugvallarins að fara af stað,“ segir Einar og bætir við að eftir að hægja tók á faraldrinum hafi verð á spritti færst í eðlilegt horf að nýju. „Sendingarnar voru að hækka í verði um tugi og stundum hundruð pró- senta. Þetta virðist vera að jafnast út hér og við erum að komast nær eðli- legu verði,“ segir Einar. Ferðalangar sækja í grímur Í faraldrinum var tryggt að nóg væri af spritti fyrir heilbrigðisstofn- anir og aðrar grunnstoðir samfélags- ins. Af sölu Rekstrarvara er lang- stærstur hluti til fyrirtækja og stofnana. Aðspurður segir Einar að flest fyrirtæki haldi áfram að tryggja öflugar sóttvarnir. „Fólk er auðvitað meðvitað auk þess sem öll betri veit- ingahús, verslanir og kaffihús standa áfram fyrir öflugum sóttvörnum og bjóða viðskiptavinum upp á að spritta sig,“ segir Einar. Aðspurður segir hann að undanfar- in misseri hafi sala á grímum tekið mikinn kipp. Svo virðist vera sem þær séu sérstaklega vinsælar meðal ferða- langa. „Við erum að finna fyrir aukn- ingu þar og þá hjá fólki sem ætlar út fyrir landsteinana síðar á árinu. Það er verið að leggja aukna áherslu á grímunotkun og hún er í raun orðin krafa á mörgum stöðum, til dæmis flugvöllum. Þá hefur Alþjóðaheil- brigðisstofnunin sömuleiðis mælt með því að bera grímu, ólíkt því sem hún gaf fyrst út,“ segir Einar. Sala á grímum aukist verulega  Spritt heldur áfram að seljast vel Einar Kristjánsson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Áformað er að laxeldi verði fjór- eða fimmfaldað í Þorlákshöfn á næstu árum. Mest munar um áform Tálkna/Landeldis um 5.000 tonna eldi á bleikju og regnbogasilungi en einnig eru áform um að stækka verulega seiðastöðvar Laxa fisk- eldis og Ísþórs. Laxar fiskeldi, sem er með sjó- kvíaeldi í Reyðarfirði, áformar að auka framleiðslu seiðastöðvarinnar við Laxabraut í Þorlákshöfn og er frummatsskýrsla í kynningu. Nú er heimilt að ala 500 tonn af laxaseið- um en áformað að auka framleiðsl- una þannig að hægt verði að ala 2.500 tonn af laxi. Í frummats- skýrslunni kemur fram að gert er ráð fyrir að nýta framleiðslugetu stöðvarinnar til framleiðslu laxa- seiða, eins og þörf er á í sjókvía- eldinu hverju sinni, en einnig lax í sláturstærð. Í frummatsskýrslu Laxa fiskeldis er gerð grein fyrir öðrum fram- kvæmdum á svæðinu. Þar segir að eldisstöðin Ísþór, sem er í eigu Arnarlax og Fiskeldis Austfjarða, áformi stækkun úr 600 tonnum í 1.800 tonn á ári. Seiði fyrir sjókvía- eldi fyrirtækjanna eru framleidd þar. Skipulagsstofnun hefur sam- þykkt endanlega matsskýrslu. Fram kemur að Tálkni/Landeldi áformar að byggja upp 5.000 tonna landeldisstöð fyrir bleikju og regn- bogasilung. Endanleg matsáætlun hefur verið samþykkt. Fjórða fisk- eldisfyrirtækið, Náttúra fiskirækt, er með leyfi til framleiðslu á 1.200 tonnum af bleikju og hefur ekki til- kynnt um frekari stækkun. Fyrirtækin þrjú sem eru að fram- leiða mega vera með 2.300 tonna framleiðslu alls. Framleiðslan fer upp í 10.500 tonn ef núverandi og væntanleg leyfi verða fullnýtt. Eldi í Þorlákshöfn margfaldast  Eldisstöðvarnar stefna að aukningu úr 2.300 tonnum í 10.500 tonn Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vöxtur Þórarinn Ólafsson framkvæmdastjóri í seiðaeldisstöð Ísþórs. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fyrirtæki sem er að undirbúa fram- leiðslu á ís úr sauðamjólk fékk hæsta styrkinn úr Samfélagssjóði Fljóts- dals, við fyrstu úthlutun. Mikil ásókn var í styrki og gat stjórn sjóðsins að- eins orðið við hluta þeirra. Tilkynnt var í gær um styrki til 22 verkefna í ár, samtals að fjárhæð 12,9 milljónir kr. Sauðagull, einkahlutafélag Ann- Marie Schlutz á bænum Egilsstöðum í Fljótsdalshreppi, hefur verið að gera tilraunir með að framleiða af- urðir úr mjólk úr kindum. Á síðasta ári hóf hún sölu á fyrstu framleiðslu sinni, fetaosti sem nefndur er Kubbur. Einnig konfekti sem gert er úr sauðamjólk og mysu. „Við settum vörurnar á markað hér á Austurlandi og þær slógu í gegn. Ég fékk líka nokkrar fyrir- spurnir úr Reykjavík. Ég geri mér vonir um að þetta gangi vel,“ segir Ann-Marie. Hún tekur fram að ákveðið hafi verið að byrja smátt enda sé hún í annarri vinnu. Hún bindur vonir við að geta aukið fram- leiðsluna smám saman og að hún geti lifað af henni og jafnvel ráðið fólk í vinnu. Ís og sælgæti úr sauðamjólk Sauðaostur er þekktasta afurðin úr sauðamjólk í Evrópu en mjólkin er einnig talin góð í sælgæti og er vax- andi í ísgerð. „Ég hef lesið um mjólk- ina og smakkað ís og sælgæti og fór á námskeið í ísgerð í Þýskalandi. Mér finnst þetta áhugaverð framleiðsla sem mig langar að fara með lengra og veit að hún getur slegið í gegn,“ segir Ann-Marie um ísinn. Hún fær að mjólka ærnar hjá tengdaföður sínum, Gunnari Jóns- syni, bónda á Egilsstöðum. Verið er að bæta mjaltaaðstöðuna. Sauðagull fékk 1.500 þúsund kr. styrk úr Samfélagssjóði Fljótsdals- hrepps til þess að kaupa sérhæfðan tækjabúnað fyrir sauðamjólkurís og þróa ísgerðina. Áður hafði hún fengið annan álíka styrk úr Atvinnumálum kvenna. Samfélagssjóður Fljótsdals var formlega stofnaður í vor með fjár- framlagi frá Fljótsdalshreppi. Til- gangur hans er að stuðla að jákvæðri samfélagsþróun og/eða eflingu at- vinnulífs í Fljótsdal. 22 verkefni voru styrkt að þessu sinni. Næsthæsti styrkurinn er til skinnaverkunar. Það verkefni geng- ur út á að komast yfir þau tæki til skinnaverkunar sem liggja ónotuð á Sauðárkróki og koma þeim fyrir í Fljótsdalnum til að efla atvinnu og fullvinnslu dýraafurða. Hyggst gera ís úr sauðamjólk Ljósmynd/Aðsend Mjaltir Ann-Marie Schlutz mjólkar kindurnar með sérstakri færanlegri mjaltavél sem hún keypti erlendis.  Styrkir úr Samfélagssjóði Fljótsdals SMÁRALIND www.skornirthinir.is Strigaskór úr leðri. Mjúkur leðurinnsóli sem gerir skóna einstaklega þægilega. Sumartilboð 5.997 Verð áður 12.995 Stærðir 36-42 Leður strigaskór í úrvali

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.