Morgunblaðið - 12.06.2020, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 12.06.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 2020 Ríkisútvarpið og samstarfsmiðillþess fara mikinn í umfjöllun um það að Þorvaldur Gylfason hag- fræðingur skuli ekki hafa notið stuðnings íslenska fjármálaráðu- neytisins til að fá að gerast ritstjóri samnorræns hagfræðitímarits.    Rúv. þráspurðifjármála- ráðherra út í þetta og bersýni- legt var að frétta- manninum þótti mikið hneyksli að Þorvaldur hefði ekki fengið starfið og jafnvel að „akademískt frelsi“ hans hefði orðið fyrir tjóni!    Í öllu spurningaflóðinu tókst Rúv.að skauta algerlega framhjá mikilvægustu spurningunum í mál- inu, sem eru meðal annarra eftir- farandi:    Hverjum datt í hug og komþeirri stórfurðulegu hug- mynd á framfæri að vel færi á því að umræddur hagfræðingur yrði ráðinn í þetta starf?    Kom þessi hugmynd frá ein-hverjum hér á landi, eða fæddist hún erlendis (sem verður að teljast ólíklegt í meira lagi)?    Hvaða rit er þetta eiginlega oghefur einhver maður utan norrænu ráðherranefndarinnar heyrt á það minnst?    Hvers vegna í ósköpunum er Ís-land að taka þátt í kostnaði við útgáfu þessa rits? Er ekki þarna komið kjörið tækifæri til að spara í útgjöldum ríkisins?    Og svo mætti áfram spyrja. Furðulegt upphlaup STAKSTEINAR Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Búið er að falla frá tillögu skrifstofu framkvæmda og viðhalds hjá Reykjavíkurborg um uppsetningu hundagerðis á lóð Vesturbæjar- laugar. Þetta kemur fram í fundar- gerð skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur. Samþykkt var að falla frá breytingu á deiliskipulagi og hef- ur málinu verið vísað til borgarráðs. Mikil óánægja var meðal íbúa á svæðinu varðandi uppsetningu hundagerðisins, og ef marka mátti athugasemdir þeirra virtist sömu- leiðis málum blandið í hverju raun- verulegar framkvæmdir á svæðinu áttu að felast. Auk hundagerðis átti að festa í sessi grenndargámastöð á svæðinu og fækka bílastæðum lítil- lega. Í bókun fulltrúa Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata um málið á fundi skipulags- og samgönguráðs segir: „Mikilvægt er að vanda til verka þegar kemur að aðstöðu fyrir ferfætta íbúa borgarinnar. Tillagan er dregin til baka og samþykkt að ráðast í heildarendurskoðun á skipu- lagi svæðisins. Betur þarf að sam- ræma fjölbreytta nýtingu svæðisins, hvort sem um er að ræða staðsetn- ingu grenndargáma, veitingaað- stöðu, bíla- og hjólastæði, útivist eða aðra þætti.“ Fallið frá tillögu um hundagerði  Óánægja meðal íbúa á svæðinu með framkvæmdir við Vesturbæjarlaug Morgunblaðið/Eggert Garður Svæðið við laugina. Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is Vefverslun komin í loftið! mostc.is Gerið verðsamanburð l búð af nýju allegum vör 6.990 kr. Kjólar Ful og f m um Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ „Þegar lokað er í bænum virðist leið- in liggja í heimapartí,“ segir Har- aldur Axel Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Hreyfils. Vísar hann í máli sínu til takmarkana á opnunar- tíma skemmtistaða í miðborginni. Er framangreindum stöðum gert að loka klukkan 23 á kvöldin, en að sögn Haraldar hefur slíkt ekki kom- ið í veg fyrir skemmtanahald. „Það er mikill akstur þegar djamminu lýkur klukkan 23 og svo myndast mikil törn í tvo tíma eftir það. Af skemmtistöðum virðist leiðin yfirleitt liggja í partí í heimahúsum. Að þeim loknum er fólki skutlað til síns heima,“ segir Haraldur og bætir við að snemmbúin lokun skemmti- staða ýti undir verri drykkju. Þann- ig endi fjölmargir verulega ölvaðir snemma kvölds. „Ég hef heyrt að fólk sé ölvað snemma og það sé í talsvert meiri kappdrykkju en áður. Fólk hættir síðan ekki að drekka þegar stöðunum er lokað heldur fer annað og heldur áfram,“ segir Har- aldur. Spurður hvort mikilvægt sé að af- létta takmörkunum á opnunartíma skemmtistaða kveður Haraldur já við. Það myndi jafnframt auðvelda rekstur leigubílaþjónustu í núver- andi umhverfi. „Mér þætti skyn- samlegt að aflétta skemmtanabanni eða þessum takmörkunum. Við vilj- um að þetta komist aftur í eðlilegt horf,“ segir Haraldur og bætir við að bílstjórar hafi orðið fyrir verulegum tekjumissi meðan á faraldri kórónu- veiru stóð. Það sé enn ekki gengið til baka. „Þetta dróst saman um 80%, sem er eitthvað farið að ganga til baka en er þó engan veginn nálægt því sem það var áður,“ segir Har- aldur. aronthordur@mbl.is Djamma til morg- uns í heimahúsum  Takmarkanir koma ekki í veg fyrir skemmtanahald Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Leigubíll Takmarkanir í miðbænum hafa áhrif á rekstur Hreyfils.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.